Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 86

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 86
I rma Matchavariani er fædd og alin upp í Tbil- isi, höfuðborg Georg- íu. Hún er tvítyngd, talar bæði georgísku og rúss- nesku, enda gekk hún í rússneskan skóla og lauk doktors- prófi í rússnesku og rússneskum bókmenntum og sögu. „Á komm- únistatímanum var mikilvægt að kunna rússnesku reiprennandi. Ef maður sótti um vinnu hjá hinu op- inbera var spurt um rússnesku- kunnáttuna því að öll skjöl voru til dæmis á rússnesku,“ segir hún. Irma var gift Grigol Matchav- ariani, lögfræðingi frá Tbilisi. Afi Grigols var menntamaður sem kunni mörg tungumál og átti Ís- landsklukkuna eftir Halldór Lax- ness. Grigol sá bókina sem lítill strákur uppi í hillu hjá afa sínum, heyrði frásögn hans um að rithöf- undurinn byggi á eyju langt úti í Atlantshafi, las bókina og fékk brennandi áhuga á íslensku og Ís- landi. Hann las fleiri bækur sem komu út á rússnesku og georgísku og keypti síðan íslensk-rússneska orðabók sem hann fann í fornbóka- búð. Aftast í bókinni var málfræði- hefti og með aðstoð þess lærði hann íslenska málfræði. Hann æfði sig svo í að tala íslensku einn heima, hlusta á hljóðbækur og tala við þýskukennara sem þau hjónin þekktu. Sjaldan gáfust tækifæri til að hitta Íslendinga. Með þennan áhuga á landi, þjóð og tungu langaði Grigol til að heim- sækja þessar eyju langt út í Atl- antshafi. Loks komst hann í bréfa- samband við Íslending í London sem benti honum á að skrifa bréf til Morgunblaðsins. Í bréfinu sem þar birtist kom fram hvernig hann hefði lært íslensku og af hverju. Það vakti svo mikla athygli að Ríkisútvarpið tók við hann síma- viðtal og draumurinn um að heim- sækja landið rættist þegar ríkis- stjórnin bauð þeim hjónum til Ís- lands. „Hann var himinlifandi,“ segir Irma. Irma og Grigol komu hingað til lands haustið 1992. „Þetta var æv- intýralegt ferðalag,“ segir hún og brosir. „Ég gleymi því aldrei! Við fengum að sjá allt!“ Grigol og Irma fóru aftur til Ge- orgíu hálfu ári síðar, í maí 1993. Georgía hafði nýlega fengið sjálf- stæði eftir að Sovétríkin leyst- ust upp og ástandið í landinu var í samræmi við það, slæm staða í efnahagsmálum og erfitt að fá vinnu. Grigol fékk samt vinnu í dómsmálaráðuneytinu og starf- aði þar þegar hann lést í bílslysi árið 1996. Í framhaldi af and- láti eiginmanns síns ákvað Irma að flytja til Íslands með dóttur þeirra sem þá var aðeins sex ára. Irma fékk íbúð á Stúdentagörð- um og fór að læra íslensku í Há- skóla Íslands. Irma hefur nú starfað sem túlk- ur í fjölda ára og það fer vel um mæðgurnar á Íslandi. Hún er á kafi í ýmsum félagsstörfum og henni er sérstaklega annt um mál- efni innflytjenda og barna þeirra. Hún telur að stuðning vanti fyrir unglinga af erlendum uppruna sem hafa búið lengi á Íslandi. „Unglingana vantar aðstoð og stuðning, til dæmis við að skilja ýmis hugtök í eðlisfræði og efna- fræði. Kennararnir halda að krakkar sem hafa búið hér lengi skilji allt en það er ekki rétt. Það vantar þjónustu fyrir þau börn sem vilja afla sér menntunar,“ segir hún. Irma kveðst vera mjög hrifin af Mentor-kerfinu. Í gegn- um það sé hægt að koma upp kerfi þannig að íslenskir krakkar í efri bekkjum geti leiðbeint krökkum af erlendum uppruna sem eru ekki komnir jafnlangt í námi „því að unglingar læra betur af jafn- öldrum sínum“. Irma er nú verkefnisstjóri hjá Mími símenntun og sér um nám fyrir atvinnulífið. Þar segir hún að útlendingar geti bætt við sig námi til að fá menntun sína og reynslu metna að verðleikum. Þeir geti líka tekið námskeið og allt upp í tveggja ára nám á fram- haldsskólastigi. Hún kennir líka Íslendingum rússnesku og rúss- neskumælandi fólki íslensku. Þegar Irma var að alast upp var Tbilisi alþjóðleg borg þar sem bjuggu ekki aðeins Georg- íumenn heldur líka Rússar, Ar- menar, Kúrdar, Aserar, Þjóðverj- ar, Grikkir, Tyrkir og gyðingar. Tbilisi er enn alþjóðleg og í dag eru stjórnvöld í Georgíu hlynnt Bandaríkjamönnum. „Þannig er pólitíkin í dag. Kannski kemur næst forseti sem vill stuðn- ing frá Rússlandi,“ segir Irma. „Þetta er bara lítið land. Georg- íumenn voru eitt sinn fimm millj- ónir. Þrjár milljónir búa í landinu í dag. Unga fólkið vill fara til ná- lægra landa til að vinna. Sumir koma til baka, aðrir ekki eins og gengur. Það hefur mikið gerst í Georgíu. Sumir eru ánægðir og hafa góða vinnu en aðrir eru von- sviknir og óánægðir. Það er eins og alltaf,“ segir hún. Verkefnin bíða stjórnvalda við uppbyggingu landsins. Gríðar- legt atvinnuleysi og óöryggi er á vinnumarkaði og allt upp í áttatíu prósent íbúanna hafa ekki fasta, örugga og góða vinnu og atvinnu- leysi mikið. Kröfurnar á vinnu- markaði hafa jafnframt breyst. Í dag er þess krafist að fólk kunni ensku og hafi góða tölvuþekk- ingu. Nokkuð hefur verið um að fólki á aldrinum fimmtíu til sex- tíu ára hafi verið sagt upp störf- um og ungt fólk ráðið í staðinn. Irma segir að eldra fólkið hugsi Kemur úr vöggu heimsins Það vakti þjóðarathygli þegar Grigol Matchav- ariani skrifaði bréf í Morgunblaðið þar sem hann sagðist hafa lært íslensku af því að lesa íslensk-rússneska orðabók. Það mikla, að íslenska ríkisstjórnin bauð hjónunum til landsins og hér dvöldu þau í hálft ár. Guðrún Helga Sigurðardóttir ræddi við Irmu Matchavariani, ekkju Grigols, sem flutti alfarið til landsins eftir að eiginmaður hennar lést, og hefur nú búið á Íslandi í tíu ár. Unglingana vantar aðstoð og stuðning, til dæmis við að skilja ýmis hug- tök í eðlisfræði og efnafræði. Kenn- ararnir halda að krakkar sem hafa búið hér lengi skilji allt en það er ekki rétt. öðruvísi. Það sé mótað af Sovét-tím- anum. Það hafi vænst þess að geta verið áratugi í sömu vinnunni og ekki búist við miklum breytingum. „Hver getur farið á eftirlaun fjörutíu til fimmtíu ára?“ spyr hún. „Í þorpunum á fólk allavega mat- inn sem það framleiðir en ekki pen- inga og verður því að fara til borg- arinnar til að selja framleiðsluna og kaupa eitthvað í staðinn. Fólk í bæj- unum á erfiðara því að þar geta menn ekki framleitt mikið,“ segir hún og telur fólk í auknum mæli vilja búa í þorpunum til að geta lifað af landinu og framleitt vörur til að selja. Þjóðfélagsleg vandamál eru tals- verð í Georgíu og eiga rætur jafnvel að rekja aftur til ársins 1991 þegar Georgía hlaut sjálfstæði. Átök hafa stundum verið við landamæri Ge- orgíu og Rússlands vegna rússnesku- mælandi grúsíumanna sem þar búa og vilja tilheyra Rússlandi. Frá þessum héruðum hafa líka komið flóttamenn til stærstu borganna Tbilisi og Bat- umi þar sem þeir hafa fyllt öll hótel og gistiheimili. Irma segir að ríkis- stjórnin sé nú að veita þessu fólki að- stoð til að geta keypt sér húsnæði og komið undir sig fótunum. Skólakerf- ið í Georgíu er Irmu hugleikið. Hún hefur áhyggjur af því að opinbera skólakerfið sé ónýtt og bendir á að aðeins sé um tvennt að velja, fara í einkaskóla eða vera í ríkisskóla og fá einkakennara til að undirbúa prófin. Henni berast fregnir af því að metn- aðarfull börn séu send í einkaskóla og að þau börn sem eru í ríkisskólum vilji ekki fara í skólann því að þar sé svo kalt og foreldrarnir kaupi handa þeim einkakennslu. Kennurunum í ríkisskólunum sé alveg sama því að þeir séu á svo lágum launum. „Annað sem er ekki nógu gott er að margir einkaháskólar hleypa öllum inn í skólann ef þeir geta borgað skólagjöldin. Ef nemendurnir falla á prófi þá geta þeir farið aftur í próf- ið. Þeir geta tekið prófið eins oft og þeir vilja ef þeir bara borga. Allt snýst um peninga. Það er hættulegt því þá snýst það minna um menntun- ina. Þegar ég var í háskólanum var maður rekinn úr skólanum ef maður féll á prófi,“ segir hún. „Mig langar til að trúa því að skóla- kerfið sé enn jafngott og það var þá.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.