Fréttablaðið - 17.03.2007, Side 110

Fréttablaðið - 17.03.2007, Side 110
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Þetta er náttúrlega rosalega gaman en það hefur verið svo brjálað að gera hjá mér að ég hef eiginlega ekki enn gert mér grein fyrir þessu,“ segir Máni Svav- arsson en hann er tilnefndur til Emmy-verðlauna fyrir tónlistar- stjórnun og tónverk í Latabæjar- þáttunum. Flokkurinn sem Máni er til- nefndur í er fyrir sjónvarps- efni að degi til og meðal keppi- nauta íslenska tónlistarmannsins er tónlist úr hinum geysivinsælu Sesam Street og Bratz. „Við erum á síðustu metrunum í framleiðslu næstu syrpu og þetta er góð inn- spýting fyrir þá vinnu,“ bætir Máni við. Hann hefur fengið gríð- arlega mikið af heillaóskaskeytum og þá sérstaklega frá samstarfs- aðilum Latabæjar í Bandaríkj- unum. „Fyrir þá er þetta stórmál enda eru þetta stærstu verðlaunin í bandarísku sjónvarpi þótt við á Íslandi höfum kannski ekki fylgst vel með þeim,“ segir Máni. Verðlaunin verða afhent 15. júní og reiknar Máni fastlega með því að halda til Los Angeles og ganga niður rauða dregilinn með öllum hinum sjónvarpsstjörnunum fyrir framan Kodak Center, sömu höll og Óskarinn er afhentur. „Ef ekki núna hvenær þá?“ segir Máni en svo skemmtilega vill til að tón- skáldið fagnar fertugsafmæli sínu sama dag. „Vonandi fær maður því bara verðlaunin í afmælis- gjöf, það væri nú varla hægt að hugsa sér betri gjöf,“ segir Máni og hlær. Latabæjarþættirnir eru því komnir með tvær tilnefningar til Emmy-verðlaunanna en þeir Magnús Scheving og Jonathan Judge voru sem kunnugt er til- nefndir fyrir leikstjórn þáttarins í sérstökum barnaflokki Emmy. Þá hefur þátturinn gert strandhögg á breskri grundu og tókst smá- skífunni Bing Bang að komast í fjórða sæti smáskífulistans þar í landi auk þess sem stefnan er sett á að koma á fót orkuátaki meðal breskra barna. Flott að fá Emmy-verðlaun í afmælisgjöf „Staða Guðbjargar er óbreytt og hún má halda áfram að sinna kennslu í þeim námskeiðum sem hún er skráð fyrir,“ segir Þorbjörn Broddason, próf- essor í félags- fræði og ábyrgð- armaður fyrir nám í fjölmiðlafræði til BA-prófs. Á vef- síðum í gær var því haldið fram að Guðbjörg Hild- ur Kolbeins hefði sagt starfi sínu lausu sem stunda- kennari í fjölmiðlafræði í skeyti til nemenda en Þorbjörn segir það vera fjarri sanni. „Mér hefur í það minnsta ekki borist slíkt bréf. Og ég sem ábyrgðarmaður þessa náms myndi fá slíkt bréf,“ útskýr- ir Þorbjörn. Hart hefur verið sótt að Guð- björgu Hildi Kolbeins eftir að hún skrifaði færslu á bloggsíðu sinni um forsíðu fermingarbæklings Smáralindar. Mörgum þótti skrif- in vera meiðandi og gróf og Frétta- blaðið greindi nýverið frá því að foreldrar fyrirsætunnar íhuguðu að höfða meiðyrðamál á hendur Guðbjörgu. Þá hefur Háskólinn og fjölmiðlafræðin verið dregin inn í umræðuna og hann sakaður um að hygla þessum skoðunum og að þær séu jafnvel runnar undan rifj- um deildarinnar. Þorbjörn segir þetta af og frá. Þessi skrif hafi algjörlega verið á ábyrgð Guð- bjargar og hafi ekkert með félags- vísindadeildina né Háskólann að gera. „Við kærum okkur ekkert um að vera bendluð við þessa um- ræðu,“ segir Þorbjörn en vill þó ekki meina að ástæða hafi verið til að ávíta Guðbjörgu fyrir skrif sín. Hann hafi heldur ekki rætt þetta við Guðbjörgu en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um stöðu hennar innan háskólans. Þorbjörn viðurkennir að vissu- lega hafi Guðbjörgu orðið á með skrifum sínum en áréttar þó að hún hafi vakið máls á mjög mik- ilvægum hlut sem sé sá boðskap- ur sem birtist í auglýsingum. Hvort hann teldi rétt að hún bæð- ist afsökunar sagði Þorbjörn: „Það verður hver að eiga það við sig hvort hann biðst afsök- unar eða ekki.“ Ekki náðist í Guðbjörgu við vinnslu frétta- rinnar. Guðbjörg gerði mistök með skrifum sínum „Þetta eru alvarlegar aðdróttan- ir. Allsvakalegar. Og ljóst að skjól- stæðingur minn ætlar ekki að láta þetta yfir sig ganga. Augljósasti kosturinn í stöðunni er að höfða meiðyrðamál,“ segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður. Jónas Freydal, annar sakborn- inga í því sem kallað hefur verið Stóra málverkafölsunarmálið, hyggur á meiðyrðamál á hendur Tryggva Páli Friðrikssyni, lista- verkasala í Galleríi Fold. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðs- ins munu bótakröfur nema tugum milljóna. Sveinn Andri segir að téð ummæli, sem hafa birst í Lista- póstinum sem Gallerí Fold gefur út – meðal annars á netinu þar sem þau er enn að finna – hafi vald- ið Jónasi ómældum skaða en til- gangurinn með kæru sé tvíþættur. „Fá það tjón bætt sem menn verða fyrir og síðan kemur í ljós hvern- ig tekst að meta það tjón. Hitt er svo aðalmálið að menn þurfa að þola ómerkingu orða sinna og bera kostnað við að auglýsa þá ógild- ingu.“ Umræddar aðdróttanir í Lista- póstinum taka til langs tíma en þar er oftlega varað við því að fólk eigi í viðskiptum við Jónas, sem kall- aður er „hrappur“ og það fullyrt að hann sé falsari. Dæmi: „Síðan hófust falsanirnar fyrir alvöru. Pétur Jónas málaði myndir á færi- bandi, oft upp úr listaverkabókum, og Jónas Pétur var eins og þeyti- spjald um alla Danmörku að leita uppi myndir sem líktust verkum íslenskra mál- ara.“ Eru ummæli af þessu tagi að finna víða á myndlist.is en höfund- ar greina þar eru Jó- hann Ágúst Hansen og Tryggvi Páll. Ábyrgðarmaður Listapóstsins er Elín Björk Jóns- dóttir, kona Tryggva. Sveinn Andri segir algerlega borðleggjandi að þarna sé grund- völlur fyrir meiðyrðamál. Svo mörg og svæsin séu ummælin. Og vísar til þess að Jónas var sýkn- aður í Hæstarétti síðla í maí árið 2004. „Þótt mönnum sé í nöp við umbjóðanda minn er ekki þar með sagt að þeir hafi á hann skotleyfi. Þannig virkar samfélagið ekki.“ Að sögn lögmannsins er svo til sérstakrar skoðunar þáttur Rík- isútvarpsins í málinu en þangað inn virðast ýmis ummæli óvildar- manna Jónasar hafa runnið hindr- unarlaust inn. „Alveg klár afstaða í fréttaflutn- ingi og virðist fréttastofa útvarps hafa misst fótanna í þessu lista- verkamáli á sínum tíma,“ segir Sveinn Andri. Jóhann Ágúst segir aðspurður að þessi væntanlega kæra komi flatt upp á sig. Og hann kannast ekki við að hafa vegið ómaklega að Jónasi með skrifum sínum á Lista- póstinn. „Ég get ekki ímyndað mér að ég hafi sagt eitthvað um hann sem ekki hefur verið sagt um hann einhvers staðar annars staðar. En okkur hefur ekki borist nein kæra enn og því erf- itt að kommentera á þessu stigi,“ segir Jó- hann sem vill meina að engin óvild sé ríkj- andi í garð Jónasar frá Listapósts- fólki eða Galleríi Fold. „Ég nenni nú ekki að ræða við þig um Jónas Freydal,“ segir Tryggvi í Fold og lætur sér hvergi bregða. En bætir þó þessu við: „Jónas Freydal hefur fengið dóm fyrir alls konar afbrot, meðal ann- ars falsanir. Og það er ekkert flóknara. Það er eina sem þarf að hafa eftir mér í þessu.“ Grímur Sigurðarson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.