Fréttablaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 2
Ég álít að þetta sé
ekki ólöglegt en bjóst
reyndar ekki við að þetta færi
svona langt.
„Já, ég var á vakt,
en þetta var bara gert til að vera
í góðum tengslum við strákana.
Ég álít að þetta sé ekki ólöglegt
en bjóst reyndar ekki við að þetta
færi svona langt,“ segir Svein-
björn Ragnars-
son, lögreglu-
varðstjóri á
Sauðárkróki.
Sveinbjörn lék,
á meðan hann
var á vakt, í
stuttmynd
nokkurra pilta í
bænum þar
sem bjór-
drykkja og lögbrot gegna stóru
hlutverki. Í leikinn fengu dreng-
irnir meðal annars afnot af lög-
reglubíl og fangaklefa bæjarins
auk þess sem varðstjórinn lék
þar hlutverk.
Búið er að senda ríkissaksókn-
ara kæru vegna málsins þar sem
grunur leikur á að varðstjórinn
hafi gerst brotlegur við almenn
hegningarlög, lögreglulög og
reglur sem varða starfsmenn
hins opinbera.
„Þegar þeirri rannsókn er lokið
tekur ríkislögreglustjóri við mál-
inu. Í framhaldi af því verður
tekin ákvörðun um agaviðurlög.
Þá kemur tvennt til greina, ann-
ars vegar að veita honum áminn-
ingu eða víkja honum tímabundið
úr starfi,“ segir Páll Winkel, yfir-
maður á stjórnsýslusviði ríkis-
lögreglustjóra. Hann segir dóm-
greindarleysi lögreglumannsins í
þessu máli óskiljanlegt.
Í myndbandinu hljómar tónlist
og í texta lagsins eru fíkniefna-
neysla og ofbeldi mærð. Meðal
þess sem drengirnir setja á svið
eru slagsmál og hraðakstur.
Sveinbjörn kemur svo og skakk-
ar leikinn í lögreglubúningi, enda
á vakt. Hann tekur drengina upp
í lögreglubíl staðarins og lokar
þá að endingu inni í fangaklefa
bæjarins með nokkrar dósir af
Víking bjór.
Vífilfell sver af sér öll tengsl
við myndbandið. „Það er klárt
mál að við myndum aldrei tengja
akstur og ofbeldi við bjór,“ segir
Hreiðar Þór Jónsson, vöru-
merkjastjóri bjórs hjá Vífilfelli.
Hann segir að ekki verði gripið
til aðgerða vegna notkunar
drengjanna á vörumerkinu.
Vissulega sé þó óheppilegt að
myndbandið sé öllum aðgengi-
legt á netinu þar sem fólk gæti
haldið að fyrirtækið stæði fyrir
uppátækinu og ólöglegt sé að
auglýsa bjór.
„Þetta er alls ekki til eftir-
breytni fyrir aðra lögreglumenn,
það er á hreinu, en við verðum að
sjá hvað rannsókn leiðir í ljós í
þessu máli,“ segir Páll.
Varðstjóri á vakt í
bjórauglýsingu pilta
Búið er að senda kæru til Ríkissaksóknara vegna þátttöku lögregluvarðstjóra í
stuttmynd nokkurra pilta. Í henni fá drengirnir afnot af lögreglubíl og fanga-
klefa staðarins. Dómgreindarleysi, segir yfirmaður hjá Ríkislögreglustjóra.
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, segir áhyggjur Rússa af fyrirhuguðum eld-
flaugavörnum Bandaríkjanna í Evrópu vera „fárán-
legar“. Hún krefst einnig skýringa frá Rússum um
það hvers vegna þeir ætli ekki að virða lengur afvopn-
unarsamning sem gerður var árið 1990.
„Við skulum vera raunsæ og horfa á málið eins og
það er. Sú hugmynd að tíu varnarflaugar og nokkrar
ratsjár í Austur-Evrópu muni grafa undan sovéskum
fælingarmætti er hreinlega fáránleg og það vita
allir,“ sagði Rice í gær áður en hún hélt til fundar við
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. Bæði
voru þau stödd í Osló, þar sem utanríkisráðherra-
fundur Atlantshafsbandalagsins stendur yfir.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagðist telja rétt
að Rússar hættu að virða samning um takmörkun
hefðbundinna vopna í Evrópu, svonefndan CFE-
samning, þangað til öll Natóríki hefðu staðfest hann
og væru farin að fylgja ákvæðum hans út í ystu
æsar.
Bæði Condoleezza Rice og Jaap de Hoop Scheffer,
framkvæmdastjóri Nató, brugðust ókvæða við þess-
ari yfirlýsingu frá Rússum. Rice krafðist nánari
skýringa og Scheffer sagði yfirlýsinguna valda Nató-
ríkjunum „alvarlegum áhyggjum, vonbrigðum og
eftirsjá“.
Deilur við Rússa á Natófundi
Ekið var á tvö hús á Sauðár-
króki í gær. Um klukkan ellefu ók
fullorðin kona á hús á Hólavegi.
Hún kvartaði undan eymslum
eftir slysið og var farið með hana
á heilsugæslustöðina í bænum.
Bíll konunnar skemmdist töluvert
og klæðing á húsinu skemmdist
einnig.
Seinna óhappið varð klukku-
stund síðar. Í það skiptið var ekið
á hús verslunarinnar Hlíðarkaupa
við Akurhlíð. Enginn slasaðist en
bíllinn skemmdist mikið.
Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki er nær óskiljanlegt
hvers vegna þessi atvik áttu sér
stað. Ekki er algengt að ekið sé á
hús og einsdæmi að ekið sé að
tvær byggingar á Sauðaárkróki
sama daginn.
Ekið á tvö hús á
Sauðárkróki
Björgunarsveitir í Skagafirði
voru kallaðar út aðfaranótt
fimmtudags þegar neyðarkall
barst frá trillunni Þyt, sem hafði
strandað við Fagranes, skammt
norðan Sauðárkróks. Einn maður
var í bátnum og var hann ekki í
hættu.
Björgunarbáturinn Sigurvin frá
Siglufirði var kallaður á vettvang
til þess að draga trilluna. Ætlunin
var að draga trilluna til hafnar á
Siglufirði en göt voru komin á
skrokkinn og því var ákveðið að
draga bátinn, marandi í hálfu kafi,
til Sauðárkróks. Báturinn kom til
Sauðárkróks í gærmorgun. Ekki
er ljóst hvað olli óhappinu.
Strandaði við
Fagranes
Mildi má telja að
ekki fór illa þegar glerbrot fannst
í barnamat sem verið var að mata
börn á. Maturinn var framleiddur
af fyrirtækinu Organic Baby og
seldur í verslun Nóatúns í
Smáralind.
„Þetta er bara innflutningsvara,
við settum ekki glerbrot í þetta. Er
þetta eitthvað fréttnæmt?“ sagði
Jóhann Ólafur Ólason, verslunar-
stjóri búðarinnar, þegar hann var
spurður um viðbrögð við atvikinu.
Sigrún Gísladóttir, sem sér um
innflutning á vörum fyrir
verslanirnar, vildi ekki tjá sig að
svo stöddu um málið nema hvað
hún segir vöruna hafa samstundis
verið fjarlægða úr hillum
verslananna og samband haft við
framleiðanda.
Glerbrot fannst
í barnamatnum
Fimmtán ára piltur liggur
þungt haldinn á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi eftir að
hafa nærri drukknað í Kópavogs-
laug í gær. Drengurinn var í skóla-
sundi þegar atvikið átti sér stað.
Ekki er ljóst hver tildrög slyssins
voru en piltinum er haldið sofandi
í öndunarvél.
Pilturinn, sem er nemandi í 10.
bekk við Snælandsskóla, var í
lauginni ásamt bekkjarfélögum
sínum. Svo virðist sem hann hafi
orðið viðskila við félaga sína og
ekki er vitað hve lengi hann hafði
legið á botni laugarinnar þegar
sundkennari varð þess var. Kenn-
arar og starfsfólk sundlaugarinn-
ar hófu strax björgunaraðgerðir
og blésu lífi í piltinn.
Vildís Guðmundsdóttir, for-
stöðumaður sundlaugarinnar,
segir að unnið hafi verið eftir ferl-
um sem æfðir séu reglulega.
„Rannsókn slyssins er í höndum
lögreglu og við getum ekkert sagt
að svo stöddu um hvað gerðist,“
segir Vildís.
Að sögn vakthafandi læknis á
gjörgæsludeild í gærkvöldi var
ástand pitlisns alvarlegt.
Jórunn, er þetta bara spurning
um að elska náungann?
Hátt í fimmtíu fulltrúar
frá Ferðamálaráði Evrópu eru nú
staddir hér á landi í tengslum við
aðalfund samtakanna á Nordica
hóteli. Á fundinum var Magnúsi
Oddssyni ferðamálastjóra veitt
heiðursviðurkenning auk þess
sem hann var kjörinn í fram-
kvæmdanefnd samtakanna til
tveggja ára.
Á aðalfundinum var einnig
gengið formlega frá inngöngu
Kákasuslandsins Georgíu í
samtökin og eru aðildarlöndin þar
með orðin 38 talsins.
Georgía form-
lega gengin inn
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, fyrrverandi
formaður Landsvirkjunar, hefði
kosið að sitja ári lengur í starfi til
að ljúka við
Kárahnjúka-
verkefnið.
Hann kveðst og
enga skýringu
hafa fengið á
því hvers vegna
hann hafi verið
látinn hætta
sem stjórnar-
formaður.
Jón Sigurðs-
son, formaður Framsóknar-
flokksins, gefur enga skýringu á
formannsskiptunum aðra en þá
að hann hafi þurft að velja í
starfið með tilliti til þarfa og
hagsmuna Landsvirkjunar og
orkugeirans. Jón segir skiptin þó
ekki tengjast gagnrýni né
óánægju með störf fráfarandi
formanns.
Fjandsamleg
formannsskipti