Fréttablaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 29
Dögg Hjaltalín, fjárfestatengill hjá Eimskipi,
var nýlega í Taílandi þar sem hún fór meðal
annars á matreiðslunámskeið.
Dögg og kærastinn hennar komu heim í síðustu viku
úr skipulagðri tólf daga ferð um Taíland. Ferðin var á
vegum erlendrar ferðaskrifstofu og voru þau einu Ís-
lendingarnir í hópnum. „Inni í ferðinni var matreiðslu-
námskeið þar sem okkur var kennd taílensk matar-
gerð og það var rosalega skemmtilegt,“ segir Dögg.
Matreiðslunámskeiðið var aðeins eitt skipti og
segir Dögg að byrjað hafi verið á því að fara á mark-
að að kaupa hráefni. „Allt hráefnið var ferskt og við
fórum svo með það út í sveit þar sem námskeiðið var
haldið. Þar lærðum við allt um hráefnið og fengum að
elda fjóra rétti, mjög sterka,“ segir hún og hlær.
Eftir námskeiðið fengu allir matreiðslubók og
segist Dögg ætla að vera dugleg að elda taílenskan
mat. „Nú verður bara taílensk matarveisla einu sinni
í viku,“ segir hún og hlær. „Ég hef samt ekki prófað
að elda neitt annað en það sem ég eldaði á námskeið-
inu en það var svo gott að kannski held ég mig bara
við það. Ég er heldur ekki ennþá búin að bjóða nein-
um í mat en það stendur til að gera það fljótlega.“
Ekki er mikið mál að fá hráefni í taílenska rétti hér
á landi, að sögn Daggar. „Það er orðið mikið af aust-
urlenskum búðum en ég fór einmitt og verslaði í mat-
inn eftir að ég kom heim og það var svo ótrúlegt úrval
að það var eiginlega allt til. Í sælkerabúðinni á Suður-
landsbraut má fá flest en við keyptum líka krydd úti
sem ég nota. Ef eitthvað er ekki til má bara laga upp-
skriftina að íslenskum aðstæðum,“ segir hún.
Inni í blaðinu er uppskrift að Tom Yam-súpu með
rækjum sem Dögg lærði að elda á matreiðslunám-
skeiðinu.
Taílenskt í hverri viku
Helgartilboð
í Flash
20% afsláttur
af kjólum
við buxur
stærðir 36-46