Fréttablaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 78
Ýmsir hlutir til
veitingarekstrar.
Erum að selja notaða hluti til veitingarekstrar.
S.s. blástursofna, uppþvottavél, leirtau
(Villeroy & Boch), borð og stóla, hljómtæki
þ.m.t Karaoke magnari, spilari og diskar.
Nánari upplýsingar, Júlíus GSM 893-3569.
Landsliðsmaðurinn Her-
mann Hreiðarsson er loksins orð-
inn heill af hnjámeiðslum sem
hafa plagað hann undanfarna þrjá
mánuði. Þetta sagði hann í samtali
við Fréttablaðið í gær.
„Ég held að ég sé loksins orðinn
góður,“ sagði Hermann, sem kom
inn á sem varamaður í 1-1 jafn-
teflisleik gegn Sheffield United
um síðustu helgi. „Það gekk vel
um helgina og ég fann ekkert fyrir
neinum eymslum. Stjórinn ætlaði
helst ekki að nota mig í leiknum en
neyddist til þess,“ sagði Hermann.
Þrjár umferðir eru eftir í ensku
úrvalsdeildinni og er Charlton
enn í fallsæti, tveimur stigum frá
öruggu sæti.
Alan Pardew, stjóri liðsins,
hefur lagt ríka áherslu á að Her-
mann spili með liðinu þrátt fyrir
meiðslin og hefur hann af þeim
sökum aðeins misst af einum og
hálfum leik undanfarna þrjá mán-
uði. „Þetta er auðvitað búið að
vera hundleiðinlegt hvernig sem á
það er litið. En sem betur fer virð-
ist þetta vera orðið gott.“
Fjögur stig skilja að liðin í
fimmtánda til nítjánda sæti og
þyrfti Charlton því helst tvo sigra
í síðustu þremur leikjunum til að
gulltryggja veru sína í deildinni.
Liðið mætir þó engum aukvis-
um á lokasprettinum. Um helg-
ina mætir Charlton liði Blackburn
á útivelli, þá Tottenham á heima-
velli og loks Liverpool á Anfield.
„Það eru engir auðveldir leikir í
þessari deild en sjálfstraustið í lið-
inu er gott og við vitum að ef við
eigum góðan dag getur allt gerst.
Okkur hefur gengið vel að undan-
förnu og tapað aðeins einum leik
af síðustu átta. Við höfum einn-
ig nú spilað við öll þessi lið sem
eru í fallbaráttunni með okkur og
unnið tvö þeirra og gert tvö jafn-
tefli. Það er því ágætis ról á lið-
inu og menn hafa staðist pressuna
þokkalega.“
Charlton hefur verið í miklu basli
í vetur en eftir að Pardew tók við
félaginu hefur horft til betri vegar.
„Hann hefur blásið nýju lífi í liðið
og það er hugur í mannskapnum.“
Hann segist ekkert hafa hugs-
að um hvað verði um hans framtíð
hjá félaginu ef liðið falli. „Maður
hugsar ekki svo langt enda kemur
ekkert annað til greina en að halda
okkur uppi.“
Í haust bárust fregnir af því að
minnst fimm úrvalsdeildarfélög
sýndu Hermanni áhuga og gerðu
einhver þeirra Charlton tilboð. Fé-
lagið vildi hins vegar ekki semja
og gerði Hermann því þriggja ára
samning við það. Hann segist ekki
sjá eftir því nú.
„Ég hef verið mjög ánægður hér.
Auðvitað hefði það verið gaman að
fara í stærri klúbb en þetta hefur
komið svo oft upp hjá mér að ég
er orðinn vanur þessu. Ef eitthvað
gerist þá gerist það bara.“
Hermann missti af landsleik Ís-
lands gegn Spáni í síðasta mánuði
en hann ætlar sér ekki að missa
af fleirum á næstunni. „Það er nú
kominn tími á okkur að hala inn
einhver stig.“
Hermann Hreiðarsson hefur undanfarna þrjá mánuði átt við hnjámeiðsl að
stríða. Þrátt fyrir það hefur hann misst af fáum leikjum með Charlton í ensku
úrvalsdeildinni en liðið stendur í harðri baráttu fyrir veru sinni í deildinni.
Undanúrslit Lengjubik-
ars karla fara fram í kvöld þegar
Víkingur tekur á móti Val í Eg-
ilshöllinni og Íslandsmeistarar
FH mæta nýliðum HK á Stjörnu-
velli. Sigurvegarar leiksins mæt-
ast síðan í úrslitaleik keppninnar
á þriðjudaginn kemur.
Það vekur athygli að öll fjög-
ur liðin voru saman í 1. riðli og
slógu öll út andstæðinga sína úr
hinum riðlinum í átta liða úrslitun-
um. Breiðablik og KR, sem höfðu
saman aðeins tapað einum leik,
duttu þannig út fyrir liðum Vík-
ings og HK sem urðu í 3. og 4. sæti
í sínum riðli.
Valur vann Víking 2-1 í leik lið-
anna í riðlakeppninni en FH og
HK gerðu aftur á móti markalaust
jafntefli. HK er komið í undanúr-
slit keppninnar þrátt fyrir að hafa
aðeins skorað 7 mörk í átta leikj-
um. Framlengja þurfti leik liðsins
gegn KR og grípa til vítaspyrnu-
keppni þar sem sexfaldan bráða-
bana þurfti til að fá úrslit.
FH-ingar geta unnið þessa
keppni annað árið í röð og orðið
enn fremur fyrsta liðið til þess
að vinna deildabikarinn í fjórða
sinn. FH, ÍA og KR hafa öll unnið
keppnina þrisvar sinnum en hin
þrjú liðin í undanúrslitunum í ár
eru hins vegar á höttunum eftir
sínum fyrsta deildabikartitli.
Annar riðillinn miklu sterkari?
Þýsk og spænsk lið hafa áhuga á Kára Kristjáni
Ólafur Ingi Skúla-
son skoraði sitt fyrsta mark
fyrir sænska úrvalsdeildarliðið
Helsingborg er hann gerði þriðja
mark liðsins í 4-0 sigri á Hässle-
holm í sænsku bikarkeppninni í
gærkvöldi.
Sölvi Geir Ottesen skoraði einn-
ig fyrir sitt lið, Djurgården, í 2-0
sigurleik á Norrby í sömu keppni.
Sigurður Jónsson er þjálfari
Djurgården en Sölvi lék allan
leikinn í stöðu miðvarðar.
Jóhann B. Guðmundsson lék
síðari hálfleikinn er lið hans,
GAIS, tapaði fyrir neðrideildar-
liðinu Skövde, 2-1. Þá léku þeir
Ragnar Sigurðsson og Hjálmar
Jónsson allan leikinn fyrir IFK
Gautaborg sem vann Ängelholm,
6-3, í vítaspyrnukeppni eftir
framlengdan leik.
Ólafur skoraði
sitt fyrsta mark
TuS N-Lübbecke náði
sér í dýrmæt stig í fallbaráttunni
í þýsku úrvalsdeildinni er liðið
vann góðan sigur á Göppingen,
30-27. Þórir Ólafsson lék reyndar
ekki með Lübbecke en Birkir Ívar
Guðmundsson stóð á milli stang-
anna fyrir liðið. Jaliesky Garcia
lék sem fyrr ekki með Göppingen
vegna meiðsla.
Mikilvægur sig-
ur Lübbecke
Fyrri leikirnir í undan-
úrslitum UEFA-bikarkeppninnar
fóru fram í gærkvöldi. Allt útlit
er fyrir að tvö spænsk lið verði
í úrslitum keppninnar en þrjú
eru í undanúrslitum. Það fjórða,
Werder Bremen frá Þýska-
landi, tapaði illa fyrir Espany-
ol á útivelli í gær, 3-0. Í þokka-
bót fékk Tim Wiese markvörður
að líta rauða spjaldið í leiknum og
verður í banni í næsta leik.
Moises, Walter Pandiani og
Coro skoruðu mörk Espany-
ol í gær. Í hinum leiknum vann
Osasuna núverandi meistara
Sevilla, 1-0, með marki Roberto
Soldado á 55. mínútu. Leikið var á
heimavelli Osasuna.
Espanyol valt-
aði yfir Bremen
Íslandsmeistarar
Stjörnunnar og Grótta eru komin
í úrslit deildarbikars kvenna í
handbolta eftir að bæði lið unnu
leiki tvö í undanúrslitunum í gær.
Það verða því engir oddaleikir hjá
stelpunum í ár.
Stjarnan vann sjö marka
sigur, 33-26, á Haukum á Ásvöll-
um í gær eftir að hafa verið 16-
14 yfir í hálfleik. Stjarnan vann
báða leikina við Hauka með
nokkrum yfirburðum. Stjarnan
mætir Gróttu í úrslitaeinvíginu
en Gróttukonur tryggðu sér sæti í
úrslitunum með 28-22 sigri á Val í
Seljaskóla í gær.
Valur var yfir í hálfleik, 13-
11, en Gróttustelpur fóru á kost-
um í þeim seinni, sérstaklega Eva
Margrét Kristinsdóttir sem skor-
aði alls 11 mörk í leiknum. Drífa
Skúladóttir var markahæst hjá
Val með 6 mörk.
Stjarnan og
Grótta í úrslit