Fréttablaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 76
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
ALLS EKKI FYRIR
VIÐKVÆMA! STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 18 ÁRA
NEXT kl. 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
SHOOTER kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
PERFECT STRANGER kl. 6 B.I. 16 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6
PATHFINDER kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
INLAND EMPIRE kl. 6 og 9 B.I. 16 ÁRA
HILLS HAVE EYES 2 kl. 8 og 10 B.I. 18 ÁRA
PERFECT STRANGER kl. 8 og 10. 30 B.I. 16 ÁRA
THE SCIENCE OF SLEEP kl. 6 B.I. 7 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6
TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA
NEXT kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 14 ÁRA
NEXT SÝND Í LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15
PATHFINDER kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
HILLS HAVE EYES 2 kl. 8 og 10.10 B.I. 18 ÁRA
PERFECT STRANGER kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
SUNSHINE kl. 5.50 B.I. 16 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 3.45
TMNT kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA !óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
Lokatónleikarnir í tónleikaferð
Rásar 2 um Ísland með Lay Low,
Pétri Ben og Ólöfu Arnalds, undir
nafninu Rás 2 plokkar hring-
inn, verða haldnir á Nasa í kvöld.
Hljómsveitin Hjaltalín mun einnig
koma fram.
„Þetta hefur gengið alveg frá-
bærlega,“ segir Ólafur Páll Gunn-
arsson á Rás 2 um tónleikaferðina.
„Við erum að reyna að ná okkur út
úr rammanum og sýna að það sé líf
og fjör á Rásinni. Við erum mjög
stolt af þessu verkefni okkar.“
Þetta er annað árið í röð sem
Rás 2 stendur fyrir tónleikaferð
um landið, en í fyrra var rokk-
að hringinn með Ampop, Diktu
og Hermigervli. Helsti tilgangur
ferðarinnar er að gefa tónlistar-
áhugafólki á landsbyggðinni tæki-
færi til að sjá og heyra fremsta
tónlistarfólk landsins af yngri
kynslóðinni í heimabyggð.
Pétur Ben lenti í þeirri ógæfu að
ökklabrotna eftir tónleika á Akur-
eyri á dögunum. Hann lætur það
þó ekki hafa áhrif á sig og spilar
núna í gifsi. „Hann stóð úti á götu
og rann til í hálku og missteig sig,“
segir Óli Palli. „Hann spilaði samt
kvöldið eftir í Hrísey og sýndi að
hann er alvörumaður, enginn kett-
lingur.“
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 21.00 og verður þeim út-
varpað beint á Rás 2. Miðaverð er
1.500 krónur.
Lokaplokk á Nasa í kvöld
Nýjasta mynd leikstjórans Davids
Lynch sver sig í ætt við hans fyrri
og það gæti reynst skemmtilegt
sport að rekja Inland Empire
saman við önnur verk hans. Að
sumra mati væri hægt að líta á
Inland Empire sem samnefnara
eða safnhaug fyrir áherslur hans
og hugmyndir og víst er af nógu
að taka. Kunnugleikinn og annar-
leikinn takast á í þessari mynd
sem skilur mikið eftir sig, bæði
furðu og fögnuð.
Inland Empire er verulega dá-
leiðandi mynd og heimurinn sem
Lynch er svo lunkinn við að skapa
getur, þegar best lætur, snúið öllu
á hvolf í höfðinu á fólki. Hentugt
væri að geta slökkt á rökræna
spæjaranum í heilabúinu áður
en maður sest niður til að horfa
á þessa digital-maraþon-martröð
því hjá Lynch er engin hefð fyrir
hefðbundinni framvindu, frá-
sagnalögmálin eru allt önnur en
flestir kollegar hans í leikstjóra-
stétt halla sér að. Það er því fá-
nýtt að reyna að henda reiður
á söguþræðinum í þessu marg-
laga listaverki, sem á köflum er
meiri myndlist en formknúin
kvikmyndagerð. Þó má upplýsa
að við sögu koma ljóshærð leik-
kona, hópur af hórum og annar til
af pólsku fjöllistafólki, framhjá-
hald, draugagangur, kanínur og
skrúfjárn.
Leikararnir fundust mér frá-
bærir, þeir pólsku ekki síðri en
Hollywood-stjörnurnar. Laura
Dern er mögnuð sem hin marg-
klofna Nikki Grace og liggur
styrkur hennar ekki síst í fágaðri
viðkvæmni og nærveru. Hún er
ekta Lynch-kvendi. Irons, Ther-
oux og Stanton fengu minna glans-
rými en nutu sín vel í hálf kóm-
ískum sviðsetningum á tökustað.
Einnig var ánægjulegt að sjá Juliu
Ormond í hlutverki Doris Side,
hún fór vel með sinn trylling. Fjöl-
mörgum kunnuglegum andlitum
og röddum bregður fyrir í ólíkleg-
ustu rullum og er persónugalleríið
jafn fjölskrúðugt og búast má við
í Lynch-mynd.
Þetta er eiginlega meta-mynd
því segja má að hún fjalli um
áhorf, það að horfa og láta tæl-
ast af einhvers konar skilningi.
Þannig eru persónur í myndinni
sífellt í hlutverki „sjáenda“ (og
þarna eru nokkrir véfréttarleg-
ir karakterar líka), þær horfa á
sjónvarpstæki, kvikmyndatjöld,
gegnum brunagöt, út um glugga
og eins og Lynch-legt má teljast er
alls ekki allt sem sýnist.
Fyrir mér er þessi mynd eins og
gáta sem gengur ekki upp en það
er afskaplega gaman að spreyta
sig á henni.
Undirmeðvitundarkarnival
Gríndávaldurinn
vinsæli Sailesh
heldur sýningu á
Broadway í kvöld.
Kappinn hitaði upp
fyrir sýninguna í
Verslunarskólan-
um í hádeginu í
gær þar sem hann
sló rækilega í gegn. Fjölmargir
nemendur grátbáðu hann um að dá-
leiða sig svo þeim gengi vel í yfir-
vofandi prófum og ætlar Sailesh að
verða við þeirri beiðni. Geta áhuga-
samir Verslingar mætt á Park Inn
hótelið á laugardag-
inn til að láta hann
dáleiða sig í þeim til-
gangi að undirbúa sig
fyrir prófin.
Fjölmörg ný at-
riði verða á sýning-
unni í kvöld og eru
mörg þeirra sérhönn-
uð fyrir Íslendinga, enda er Sailesh
farinn að þekkja íslenskan húmor
afar vel. Sýningin byrjar klukkan
20.00 og fer miðasala fram á midi.
is, Skífunni og BT úti á landi. Miða-
verð er 2.500 krónur.
Dáleiðir fyrir próf
MasterCard korthafar fá miðann á 600 kr. dagana 27. apríl - 3. maí,
í Smárabíói, Háskólabíói, Sambíóunum Kringlunni og Borgarbíói
Akureyri greiði þeir með kortinu.
Meira á www.kreditkort.is/klubbar
600 kall
27. apríl - 3. maí!