Fréttablaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 8
Kjörskrá vegna alþingiskosninga
Kjörskrá vegna alþingiskosninganna 12. maí 2007 liggur frammi til sýnis
í þjónustuverinu, Strandgötu 6, frá og með föstudeginum 27. apríl fram
á kjördag. Þjónustuverið er opið alla virka daga frá 8:00 - 17:00.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á
kjörskránni. Athugasemdum við kjörskrá skal beina til bæjarstjórnar.
Kjörstjórn Hafnarfjarðar.
www.vg.is
KRAFTMIKIÐ
SAMFÉLAG
kynntu þér málið á
Byggja á 75 þúsund fermetra
húsnæði á Höfðatorgsreitnum auk tveggja
hæða bílakjallara þar undir. Þriðjungur verð-
ur íbúðir en að öðru leyti verður fyrst og
fremst um skrifstofubyggingar að ræða.
Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri
Eyktar, sagði í gær að uppbyggingin ætti sér
aðdraganda allt aftur til ársins 2000 er kaup á
eignum hófust á reitnum. Kaflaskipti hefðu
orðið 2005 er Eykt hóf mikil uppkaup á reitn-
um. Áður en Höfðatorg var fullhannað var
leitað til þýsks ráðgjafarfyrirtækis um eðli
og ímynd svæðisins. Lagði forstjóri Eyktar
áherslu á að maðurinn sjálfur væri þunga-
miðja allrar hönnunar Höfðatorgs.
Pálmar Kristmundsson hjá PK arkitektum
sagði meðal annars að myndað yrði stórt,
skjólgott og sólríkt torg á milli húsanna. Þetta
torg væri einn ávinningur Reykjavíkur af
nýja svæðinu, sem í heild væri hugsað þannig
að það færði miðborgina lengra til austurs.
Þar yrði fjölbreytt mannlíf, meðal annars
með verslunum og kaffihúsum. Þó verða ekki
skemmtistaðir á Höfðatorgi.
„Höfðatorg kemur til móts við þá sem vilja
búa miðsvæðis í nýju, fáguðu húsnæði,“ segir
í kynningarefni Höfðatorgs ehf.
Hæsta byggingin á Höfðatorgi verður
nítján hæða skrifstofuhús.
Hversu margir eru sagðir
hafa veikst vegna mengunar við
Kárahnjúka síðustu vikur?
Hvað heitir nýr stjórnarfor-
maður Landsvirkjunar?
Hversu margir fuglar voru
aflífaðir vegna viðbragðsæfing-
ar um fuglaflensu á þriðjudag?
Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráðherra og Jonas
Gahr Støre, utanríkisráðherra
Noregs, skrifuðu í gær undir sam-
komulag við Norðmenn um sam-
starf á sviði öryggis- og varnar-
mála. Stuttu síðar skrifuðu
Valgerður og Per Stig Møller,
utanríkisráðherra Danmerkur,
undir viljayfirlýsingu um svipað
samstarf við Dani.
Markmið samningsins við Norð-
menn er að „staðfesta pólitískan
vilja“ þjóðanna um samstarf á
sviði öryggis-, varnar-, viðbúnað-
ar- og björgunarmála á Norður-
Atlantshafssvæðinu.
Einnig segir að stuðla eigi að
„varanlegum stöðugleika og
öryggi á svæðinu“.
Samstarfið tekur sérstaklega til
upplýsingaskipta og fræðslu.
Norðmenn munu mennta og þjálfa
íslenskt starfslið, meðal annars á
sviði flugeftirlits. Gera á samning
um upplýsingaskipti vegna eftir-
lits með skipaferðum og um
björgunarþjónustu. Rætt er um
hugsanlegt samstarf við öflun
nýrra björgunarþyrlna.
Norðmenn fá og „tækifæri til
heimsókna og æfinga og til að
stunda annars konar varnarstarf-
semi“ í lofti og á legi. Sérsveitir
Norðmanna geta einnig æft hérna,
en eiginlegur landher verður ekki
með æfingar. Ísland er samkvæmt
samningnum „viðtökuríki“ og
mun bera kostnað vegna staðsetn-
ingar liðsmanna, kosts og nauð-
synlegs stuðnings á landi. Um
kostnaðinn verður samið fyrir
hverja æfingu fyrir sig, en annars
er ekki fjallað um yfirfærslu fjár
milli landanna í samkomulaginu.
Það skal bíða ítarlegs samnings
um umfang æfinga Norðmanna.
Samkomulaginu má segja upp
með 120 daga fyrirvara.
Viljayfirlýsing Íslendinga og
Dana er styttri og í grunninn
svipuð samkomulaginu við Norð-
menn.
Aukið samstarf við
grannþjóðirnar
Norðmenn og Danir taka þátt í öryggis- og varnarmálum Íslendinga, sérstaklega
varðandi þjálfun Íslendinga. Einnig koma þeir í auknum mæli að björgunar-
aðgerðum. Grannþjóðirnar fá að æfa lofther sinn og sjóher í landhelginni.
Danir ætla að
koma Íslendingum til hjálpar,
sögðu danskir fjölmiðlar í
gær þegar þeir skýrðu frá
viljayfirlýsingu danskra og
íslenskra stjórnvalda um sam-
starf í varnarmálum.
„Danmörk og Ísland ætla að
efla hernaðarsamvinnu.
Íslendingar þurfa á hernaðar-
aðstoð að halda vegna þess að
Bandaríkjamenn eru farnir
frá Keflavík,“ sagði í frétt
danska ríkisútvarpsins.
Í norskum fjölmiðlum var
haft eftir Jonas Gahr Støre,
utanríkisráðherra Noregs, að
samkomulag Íslands og
Noregs um varnarsamstarf
væri mikilvægt fyrir bæði
löndin. Hann lagði sérstaka
áherslu á að hafsvæðið
umhverfis Ísland skipti miklu
máli fyrir flutning á olíu og
gasi.
Gahr Støre tekur jafnframt
fram að samkomulagið feli
ekki í sér að Norðmenn veiti
Íslendingum neina öryggis-
tryggingu.
Slík trygging sé eftir sem
áður á ábyrgð Atlantshafs-
bandalagsins og Bandaríkj-
anna.
Danir koma
Íslendingum
til bjargar
Icebank hefur tekið 217
milljóna evra sambankalán hjá 34
evrópskum bönkum. Upphæðin
samsvarar 19 milljörðum
íslenskra króna.
Bankinn segir endanlega
fjárhæð ríflega tvöfalt hærri en
leitað var eftir í upphafi vegna
eftirspurnarinnar. Hún er
jafnframt sögð endurspegla
traust sem bankinn njóti.
Sambankalánið, sem er til
þriggja ára, var boðið út 8. mars
síðastliðinn. Vaxtaálag er 0,46
prósent, sem sagt er í samræmi
við þau kjör sem íslenskir bankar
njóti um þessar mundir. „Láns-
fénu verður varið til að endur-
fjármagna eldri lán og fjármagna
áframhaldandi vöxt bankans,“
segir Icebank.
Stærsta lán í
sögu bankans