Fréttablaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 64
„Ég hef aldrei verið stuðn-
ingsmaður þess að fara í
stríð, nema því sé ætlað að
koma á friði.“
Sköpun alheimsins
Ástkær dóttir mín, systir, mágkona og
frænka okkar,
Ingibjörg Lovísa Sæunn
Jónsdóttir
lést á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur 24. apríl
síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju
föstudaginn 4. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Margrét Kr. Sigurpálsdóttir
Jón Veigar Ragnhildur Þórðardóttir
Jóhanna María Smári Karlsson
Linda Líf Guðmundur Helgason
og aðrir aðstandendur.
Við þökkum innilega öllum þeim sem auð-
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna and-
láts okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Soffíu Jóhannsdóttur
frá Skálum á Langanesi.
Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki Hrafnistu
í Hafnarfirði fyrir góða umönnun.
Guðbjörg Nielsen Kári Nielsen
Fróði Indriðason Leena Janus
Kristján Indriðason
Kristín María Indriðadóttir Kristinn Óskarsson
Guðmundur Hólm Indriðason
Ragnar Indriðason Aðalheiður Daníelsdóttir
Birgir Indriðason
Rut Indriðadóttir Pétur Bolli Jóhannesson
Útför föður okkar, tengdaföður, afa,
langafa, bróður og mágs,
Skúla Þórðarsonar
fer fram frá Akraneskirkju 30. apríl kl. 14.00.
Bragi Skúlason Anna Þuríður Kristbjörnsdóttir
Hrafnhildur Skúladóttir Ólafur Jón Guðmundsson
Hafdís Skúladóttir Magnús Árnason
Sigríður Birna Bragadóttir Sigurjón Þorsteinsson
Ámundi Steinar Ámundason Hrafnhildur Vala Grímsdóttir
Hafdís Anna Bragadóttir Grímur Arnar Ámundason
Sara Skúlína Jónsdóttir Arnar Már Símonarson
Arnar Ólafsson
Skúli Bragi Magnússon Árni Þórður Magnússon
Bragi Þórðarson Elín Þorvaldsdóttir
Birgir Þórðarson Ása Gústavsdóttir
Hilmar Þórarinsson
Bróðir minn elskulegur,
Herbert Ólafsson
húsvörður,
lést 25. apríl síðastliðinn á Landspítalanum við
Hringbraut.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karitas Laufey Ólafsdóttir.
Félag íslenskra fræða fagnar 60 ára
afmæli sínu í dag. „Félagið var stofn-
að 27. apríl 1947. Þá var lýðveldið enn
kornungt, og mikill eldmóður og bjart-
sýni í hugum fólks,“ sagði Þórður Ingi
Guðjónsson, formaður félagsins. Á
meðal stofnenda félagsins voru marg-
ir þjóðkunnir menn, á borð við Kristján
Eldjárn, Sigurð Nordal, Ásgeir Blöndal
Magnússon og Einar Ólaf Sveinsson.
Að sögn Þórðar var upphaflegur til-
gangur þess tvískiptur. „Fyrst og
fremst var félaginu ætlað að vinna að
vexti og uppgangi íslenskra fræða og
skapa vettvang fyrir umræður um þau.
Það er eiginlega megintilgangur okkar
í dag,“ útskýrði Þórður. Hins vegar átti
Félag íslenskra fræða að vera hags-
muna- og réttindafélag fyrir félags-
menn, en Þórður segir aðra hafa tekið
við því starfi í dag. Til íslenskra fræða
teljast helst bókmenntir, málfræði og
sagnfræði, sem Þórður segir félagið
reyna að gera jafn hátt undir höfði.
Stjórnin sem tók við í október á síð-
asta ári setti sér nokkur markmið fyrir
afmælisárið, að sögn Þórðar. „Það var
í fyrsta lagi að endurskoða lög félags-
ins. Svo héldum við afmælismálstofu á
hugvísindaþingi við Háskólann í mars,
sem var mjög vel sótt,“ sagði hann. „Að
lokum langaði okkur að gefa félaginu
eitthvað í tilefni af þessum tímamót-
um, og við ákváðum að það yrði merki,“
sagði Þórður. „Öll virðuleg félög verða
náttúrlega að eiga merki,“ bætti hann
sposkur við. Mikil leynd hvílir þó enn
yfir merkinu, en það verður afhjúpað
á afmælisfögnuði félagsins sem hefst
klukkan 17.15 í Skólabæ í kvöld.
„Þar ætlum við líka að taka nýja
heimasíðu félagsins formlega í notk-
un. Svo verða stuttir og léttir ræðu-
stúfar og við heiðrum nokkra félags-
menn,“ sagði Þórður. Afmælisfögn-
uðurinn rekur þar með smiðshöggið
á vetrardagskrá félagsins, sem held-
ur á ári hverju rannsóknarfundi jafnt
og þétt yfir vetrarmánuðina. „Það er
einn af föstu punktunum hjá félaginu.
Í vetur lögðum við áherslu á að gefa
ungu fólki tækifæri. Það gafst mjög
vel, það eru margir ungir fræðimenn
að gera spennandi hluti,“ sagði Þórð-
ur.
Afmælishátíðin er fyrst og fremst
ætluð félagsmönnum og velunnurum
félagsins. „Þeir taka það til sín sem
eiga,“ sagði Þórður sposkur.
Rafmagnsveitur ríkisins
fagna 60 ára afmæli með af-
mælismálþingi í dag. Yfir-
skrift málþingsins er Raf-
magn í fortíð, nútíð og fram-
tíð. Það hefst að loknum
aðalfundi RARIK ohf. og
er öllum opið. RARIK ohf.
tók til starfa 1. ágúst 2006,
þegar það tók við rekstri
Rafmagnsveitna ríkisins,
sem höfðu starfað frá 1. jan-
úar 1947. Í fréttatilkynningu
frá Rarik segir: „Blásið er
til málþingsins nú til þess að
fagna stórafmælinu, minn-
ast sögu RARIK og horfa til
framtíðar með nýju rekstr-
arformi.“
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra opnar málþingið með
ávarpi. Þorsteinn Pálsson,
ritstjóri Fréttablaðsins, flyt-
ur erindi um breytt viðhorf
til auðlinda og eignarrétt-
ar. Þá fjallar Sveinn Þórðar-
son sagnfræðingur um sögu
rafmagns hér á landi síðustu
100 ár. Guðný Sverrisdótt-
ir, sveitarstjóri Grýtubakka-
hrepps, segir frá því þegar
rafmagn kom á æskuheimili
hennar. Steinunn Huld Atla-
dóttir ræðir að lokum um-
hverfisstefnu fyrirtækisins.
Málþingið fer fram í Saln-
um í Kópavogi og hefst
klukkan 14 í dag.
Afmæli RARIK