Fréttablaðið - 27.04.2007, Blaðsíða 50
BLS. 10 | sirkus | 27. APRÍL 2007
upp á kennara líða illa. Kennarar eru
með léleg laun og það er í raun til
skammar. Ábyrgðin liggur hjá
ríkisvaldinu, sveitarfélögunum og
ekki síður hjá kennaraforystunni. Það
eru þessir aðilar sem eiga að stíga
fram og leita leiða til að bæta hag
kennara. Nú tala ég líka sem foreldri
því fyrir okkur er ekkert mikilvægara
en góðir kennarar. Það þarf ekki að
segja okkur hversu dýrmætt það er
fyrir þjóðina að hafa góða kennara.
Ég tók þennan tíma sem verkfallið
stóð inn á mig, mér fannst vont að
geta ekki komið með þessa töfralausn
sem hefði virkað.“
Smekkur til hins verra
Þorgerður Katrín þykir vera afar
glæsileg kona og er einatt á listum yfir
kynþokkafyllstu konur landsins. Nú
síðast í Sirkus í síðustu viku þegar hún
var kosin kynþokkafyllsta alþingis-
konan af álitsgjöfum blaðsins. Skiptir
þetta máli fyrir hana?
„Þetta skiptir mig engu máli. Mér
finnst þetta aðallega skondið, svolítið
skondið og svolítið gaman en það er
greinilegt að smekkur landans er
eitthvað að breytast til hins verra,“
segir Þorgerður Katrín og hlær. Hún
segist þó vel geta tekið undir þetta
með Bjarna Benediktsson sem var
kosinn kynþokkafyllsti alþingismað-
urinn.
„Ég held að það geti allar konur
tekið undir það. Það er ekki bara að
hann hafi þessa útgeislun og þennan
þokka heldur er hann líka skarpur,
skemmtilegur og tekur sjálfan sig
mátulega alvarlega. Ég lít samt fyrst
og fremst á kosningar sem þessar sem
skemmtiefni og eru hugsaðar sem
söluvara en ekki til að taka mjög
alvarlega. Þetta gerir fólk forvitið og
truflar mig ekki. Í það minnsta á
meðan það truflar ekki börnin mín.“
Tími til kominn að stækka við sig
Þorgerður Katrín og Kristján keyptu
glæsilegt einbýlishús í Mávahrauni
seint á síðasta ári en búa enn á
Tjarnarbrautinni sem þau hafa átt frá
því að Kristján kom heim úr
atvinnumennsku árið 1990.
„Við munum flytja í Mávahraunið
næsta haust. Gísli, bróðir Kristjáns,
sem nú er látinn, byggði húsið og það
er gaman að það sé komið aftur í
fjölskylduna. Við höfum fundið fyrir
því að það er farið að þrengja að
okkur í húsinu og því ákváðum við að
stækka við okkur. Strákarnir hafa
verið saman í herbergi með kojur og
þeir eru eiginlega orðnir of stórir fyrir
kojurnar. Sú litla kúldrast líka í
pínulitlu herbergi og fyrst við getum
veitt okkur þann munað að stækka
við okkur þannig að allir hafi nægt
pláss þá gerum við það. Tjarnarbraut-
in er yndisleg en of lítil. Kannski
erum við gömlu hjónin líka farin að
taka svona mikið pláss,“ segir
Þorgerður Katrín og hlær.
oskar@frettabladid.is
Jón Baldvin Hannibalsson
kallaði Þorgerði Katrínu
„ljóskuna í menntamálaráðu-
neytinu“ í Silfri Egils um liðna
helgi en það hefur ekki mikil
áhrif á hana.
„Mér finnst þetta sorglegt að
maður eins og hann, með þessa
sögu og einn af stjórnmálafor-
ingjum síðustu aldar, skuli fara
út í svona. Það er alveg
greinilegt að hans tími er
liðinn í
stjórnmál-
unum. Ég
tek þetta
ekki inn á
mig og er
stolt af því
að vera
ljóshærð
þótt ég þurfi
nú reyndar að lita á mér hárið
til að viðhalda litnum. Það
spunnust nú reyndar umræður
um það hér í ráðuneytinu
hvaða ljósku hann væri
eiginlega að tala um þannig að
þetta var eftirsóknarvert,“ segir
Þorgerður Katrín og hlær.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem hann talar um mig á
þennan hátt þannig að ég er
svo sem farin að sjá hvaða hug
hann ber til mín. En þetta eru
hans skoðanir og hann má hafa
þær í friði. Mér finnst þessi orð
hans samt bera keim af
fortíðinni og ég vil ekki hafa
svona í nútímanum. Hann
getur gagnrýnt mig á málefna-
legan hátt en ég ætla ekki að
skipta mér af því hvort hann sé
með hökuskegg eða ekki.“
LJÓSKAN
HANS JÓNS
BALDVINS
„ÞAÐ ER AFSKAPLEGA
GEFANDI AÐ VERA TVÖ
EIN, TALA SAMAN OG
ÞEGJA SAMAN. MÉR
FINNST GOTT AÐ VERA
Í ÞÖGNINNI OG LESA.“
PASSA UPP Á
SAMBANDIÐ
Þorgerður Katrín
og eiginmaður
hennar, Kristján
Arason, passa
upp á að rækta
sambandið þrátt
fyrir miklar annir.