Fréttablaðið - 27.04.2007, Síða 76

Fréttablaðið - 27.04.2007, Síða 76
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 18 ÁRA NEXT kl. 8 og 10 B.I. 14 ÁRA SHOOTER kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA PERFECT STRANGER kl. 6 B.I. 16 ÁRA ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6 PATHFINDER kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA INLAND EMPIRE kl. 6 og 9 B.I. 16 ÁRA HILLS HAVE EYES 2 kl. 8 og 10 B.I. 18 ÁRA PERFECT STRANGER kl. 8 og 10. 30 B.I. 16 ÁRA THE SCIENCE OF SLEEP kl. 6 B.I. 7 ÁRA ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6 TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA NEXT kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 14 ÁRA NEXT SÝND Í LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15 PATHFINDER kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA HILLS HAVE EYES 2 kl. 8 og 10.10 B.I. 18 ÁRA PERFECT STRANGER kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA SUNSHINE kl. 5.50 B.I. 16 ÁRA ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 3.45 TMNT kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Lokatónleikarnir í tónleikaferð Rásar 2 um Ísland með Lay Low, Pétri Ben og Ólöfu Arnalds, undir nafninu Rás 2 plokkar hring- inn, verða haldnir á Nasa í kvöld. Hljómsveitin Hjaltalín mun einnig koma fram. „Þetta hefur gengið alveg frá- bærlega,“ segir Ólafur Páll Gunn- arsson á Rás 2 um tónleikaferðina. „Við erum að reyna að ná okkur út úr rammanum og sýna að það sé líf og fjör á Rásinni. Við erum mjög stolt af þessu verkefni okkar.“ Þetta er annað árið í röð sem Rás 2 stendur fyrir tónleikaferð um landið, en í fyrra var rokk- að hringinn með Ampop, Diktu og Hermigervli. Helsti tilgangur ferðarinnar er að gefa tónlistar- áhugafólki á landsbyggðinni tæki- færi til að sjá og heyra fremsta tónlistarfólk landsins af yngri kynslóðinni í heimabyggð. Pétur Ben lenti í þeirri ógæfu að ökklabrotna eftir tónleika á Akur- eyri á dögunum. Hann lætur það þó ekki hafa áhrif á sig og spilar núna í gifsi. „Hann stóð úti á götu og rann til í hálku og missteig sig,“ segir Óli Palli. „Hann spilaði samt kvöldið eftir í Hrísey og sýndi að hann er alvörumaður, enginn kett- lingur.“ Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 21.00 og verður þeim út- varpað beint á Rás 2. Miðaverð er 1.500 krónur. Lokaplokk á Nasa í kvöld Nýjasta mynd leikstjórans Davids Lynch sver sig í ætt við hans fyrri og það gæti reynst skemmtilegt sport að rekja Inland Empire saman við önnur verk hans. Að sumra mati væri hægt að líta á Inland Empire sem samnefnara eða safnhaug fyrir áherslur hans og hugmyndir og víst er af nógu að taka. Kunnugleikinn og annar- leikinn takast á í þessari mynd sem skilur mikið eftir sig, bæði furðu og fögnuð. Inland Empire er verulega dá- leiðandi mynd og heimurinn sem Lynch er svo lunkinn við að skapa getur, þegar best lætur, snúið öllu á hvolf í höfðinu á fólki. Hentugt væri að geta slökkt á rökræna spæjaranum í heilabúinu áður en maður sest niður til að horfa á þessa digital-maraþon-martröð því hjá Lynch er engin hefð fyrir hefðbundinni framvindu, frá- sagnalögmálin eru allt önnur en flestir kollegar hans í leikstjóra- stétt halla sér að. Það er því fá- nýtt að reyna að henda reiður á söguþræðinum í þessu marg- laga listaverki, sem á köflum er meiri myndlist en formknúin kvikmyndagerð. Þó má upplýsa að við sögu koma ljóshærð leik- kona, hópur af hórum og annar til af pólsku fjöllistafólki, framhjá- hald, draugagangur, kanínur og skrúfjárn. Leikararnir fundust mér frá- bærir, þeir pólsku ekki síðri en Hollywood-stjörnurnar. Laura Dern er mögnuð sem hin marg- klofna Nikki Grace og liggur styrkur hennar ekki síst í fágaðri viðkvæmni og nærveru. Hún er ekta Lynch-kvendi. Irons, Ther- oux og Stanton fengu minna glans- rými en nutu sín vel í hálf kóm- ískum sviðsetningum á tökustað. Einnig var ánægjulegt að sjá Juliu Ormond í hlutverki Doris Side, hún fór vel með sinn trylling. Fjöl- mörgum kunnuglegum andlitum og röddum bregður fyrir í ólíkleg- ustu rullum og er persónugalleríið jafn fjölskrúðugt og búast má við í Lynch-mynd. Þetta er eiginlega meta-mynd því segja má að hún fjalli um áhorf, það að horfa og láta tæl- ast af einhvers konar skilningi. Þannig eru persónur í myndinni sífellt í hlutverki „sjáenda“ (og þarna eru nokkrir véfréttarleg- ir karakterar líka), þær horfa á sjónvarpstæki, kvikmyndatjöld, gegnum brunagöt, út um glugga og eins og Lynch-legt má teljast er alls ekki allt sem sýnist. Fyrir mér er þessi mynd eins og gáta sem gengur ekki upp en það er afskaplega gaman að spreyta sig á henni. Undirmeðvitundarkarnival Gríndávaldurinn vinsæli Sailesh heldur sýningu á Broadway í kvöld. Kappinn hitaði upp fyrir sýninguna í Verslunarskólan- um í hádeginu í gær þar sem hann sló rækilega í gegn. Fjölmargir nemendur grátbáðu hann um að dá- leiða sig svo þeim gengi vel í yfir- vofandi prófum og ætlar Sailesh að verða við þeirri beiðni. Geta áhuga- samir Verslingar mætt á Park Inn hótelið á laugardag- inn til að láta hann dáleiða sig í þeim til- gangi að undirbúa sig fyrir prófin. Fjölmörg ný at- riði verða á sýning- unni í kvöld og eru mörg þeirra sérhönn- uð fyrir Íslendinga, enda er Sailesh farinn að þekkja íslenskan húmor afar vel. Sýningin byrjar klukkan 20.00 og fer miðasala fram á midi. is, Skífunni og BT úti á landi. Miða- verð er 2.500 krónur. Dáleiðir fyrir próf MasterCard korthafar fá miðann á 600 kr. dagana 27. apríl - 3. maí, í Smárabíói, Háskólabíói, Sambíóunum Kringlunni og Borgarbíói Akureyri greiði þeir með kortinu. Meira á www.kreditkort.is/klubbar 600 kall 27. apríl - 3. maí!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.