Fréttablaðið - 27.04.2007, Síða 6
Hópur íbúa á Njálsgötunni hóf undir-
skriftasöfnun í gærkvöld gegn stofnun heimilis
fyrir tíu heimilislausa menn á Njálsgötu 74.
„Íbúar í hverfinu eru staðráðnir í að láta ekki
valta yfir sig í þessu máli,“ segir Sigfús Þ. Sig-
mundsson, sem býr á Njálsgötu 79.
Sigfús segir mikinn hita í fólki á Njálsgötunni.
Undirskriftasöfnunin sé aðeins upphafið. Athuga
eigi réttarstöðu íbúanna og ráðgert sé að ráða lög-
fræðing sem kanni hvort borgin hafi farið eftir
lögum og reglum og hvort hægt sé að koma slíkri
starfsemi fyrir í miðri íbúðarbyggð án samþykkis
íbúa. Þá segir Sigfús í skoðun að stofna félag íbúa á
svæðinu og kjósa því talsmann.
„Á undanförnum árum hefur mikið af ungu fólki,
margt með börn, keypt eignir á þessu svæði og lagt
mikið fjármagn í endurbætur á þeim. Óttumst við
nú að eignir okkar muni hríðlækka í verði í kjölfar
þessarar ákvörðunar borgarinnar,“ segir í mót-
mælabréfinu. Gengið var með það hús úr húsi í
gærkvöld til að afla undirskrifta. Í bréfinu er skorað
á borgaryfirvöld að hætta við heimilið á Njálsgötu
74.
„Það kemur upp eðlilegur ótti í byrjun,“ segir
Ellý A. Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri á velferðar-
sviði borgarinnar.
Ellý kveður nokkra nágranna hafa rætt við hana
um heimilið fyrirhugaða. Hún segir að um leið og
fólk átti sig á að þarna verði um að ræða heimili en
ekki gistiskýli verði viðhorf flestra jákvæðara.
„Við höfum reynslu af öðrum heimilum í borginni
og leggjum upp úr að vera í góðri samvinnu við
nágranna,“ segir Ellý. Hún nefnir sambærilegt
heimili á Miklubraut sem hafi verið starfrækt í
fimm ár án árekstra við nágrannana.
Aðspurð segir Ellý að fyrir þennan tiltekna hóp
sem búa eigi á Njálsgötu hafi síður komið til greina
að gera honum heimili í úthverfi:
„Þessi hópur sækir sér ýmiss konar þjónustu í
miðborginni á daginn. Þetta eru einstaklingar sem
ekki eru á bíl og kannski flókið fyrir þá að fara
langar vegalengdir.“
Mótmælendur gengu
í hús á Njálsgötunni
Gengið var í hús á Njálsgötu í gærkvöld og undirskriftum safnað á harðort
mótmælabréf gegn heimili fyrir heimilislausa. Skrifstofustjóri velferðarsviðs
segir ótta íbúanna eðlilegan í byrjun.
Engin manneskja
fæðist með hneigð til þess að
skoða barnaklám, heldur er hún
áunnin. Þetta segir Anna Kristín
Newton, sálfræðingur hjá Fang-
elsismálastofnun.
Barnaklám hefur fundist hjá
fjórtán einstaklingum hér á landi
það sem af er þessu ári. Tölvu-
rannsóknardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu hefur á
sama tímabili tekið til rannsókn-
ar 68 tölvur og tölvutengd gögn,
þar sem fundist hefur barna-
klám. Fréttablaðið greindi frá
þessu í gær. Lögregluyfirvöld
lýsa áhyggjum af þessari þróun.
Aukið aðgengi að klámi er ein
helsta skýring þess að svo marg-
ir hafa verið teknir með barna-
klám, segir Anna Kristín. „Í rann-
sóknum hefur komið fram að
hneigð til barnakláms er nokkuð
sem stigmagnast. Í byrjun er
hugmyndin ekkert endilega sú að
fara að leita að barnaklámi,
heldur einhverju „viðurkennd-
ara“ ef svo má orða það. En smám
saman er eins og fólk ánetjist
þessu eins og hverri annarri
fíkn.“
Anna Kristín segir afar mikil-
vægt að fá þá einstaklinga sem
ánetjast til að leita sér aðstoðar;
ef þeir geri það sé hægt að hjálpa
þeim. Lykilatriði sé að þeir átti
sig á vandamálinu áður en það
gangi lengra. „Menn sem eru
farnir að skoða barnaklámsíður
hafa þá þegar gengið of langt, því
þarna er um að ræða lögbrot að
hálfu viðkomandi, auk þess sem
brotið hefur verið á saklausum
börnum.“
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi vilja
hitta þig. Þeir verða á eftirtöldum stöðum um helgina:
Tölum saman!
Laugardagur 28. apríl
09.30 Seltjarnarnes
Sal Sjálfstæðisfélagsins
Austurströnd
11.30 Kópavogur
Kosningamiðstöð
Sjálfstæðisflokksins
Hlíðarsmára 19
13.30 Garðabær
Garðabergi
Garðatorgi 7
Sunnudagur 29. apríl
12.00 Hafnarfjörður
Félagsheimili
Sjálfstæðisfélagsins
Strandgötu 27
14.00 Álftanesi
Haukshúsum
20.00 Mosfellsbæ
Safnaðarheimilinu,
Þverholti 3
Góðar veitingar og létt spjall.
Hlökkum til að sjá þig!
Vladimír Pútín, forseti
Rússlands, gaf í gær til kynna að
hann hygðist ekki sækjast eftir
þriðja kjörtímabilinu. Í árlegri
stefnuræðu sinni sagði hann að
næsta stefnuræða yrði flutt af
öðrum en sér en gaf þó engar vís-
bendingar um hvern hann sæi sem
hugsanlegan eftirmann sinn.
Forseti má aðeins sitja tvö kjör-
tímabil samkvæmt rússnesku
stjórnarskránni og á næsta ári
lýkur Pútín öðru kjörtímabili sínu.
Getgátur um að hann muni reyna
að breyta stjórnarskránni til að
geta setið lengur í embætti fengu
byr undir báða vængi þegar leið-
togi efri deildar þingsins lagði
slíka breytingu til í síðasta mán-
uði. Pútín hefur þó staðfastlega
neitað slíkum getgátum.
Næsta árið verður tíðindamikið
í rússneskum stjórnmálum; kosið
verður til þings í desember og for-
setakosningar fara fram í mars.
Undanfarna mánuði hafa rúss-
neskir ráðamenn sakað vestræn
ríki um að reyna að hafa áhrif á
stjórnmál í landinu með því að
styrkja samtök sem hafa það yfir-
ýsta markmið að berjast fyrir
auknu lýðræði í Rússlanddi.
Pútín ítrekaði þessar ásakanir í
ræðu sinni þótt hann tilgreindi
ekki sérstök lönd. Sagði hann mál-
flutning sumra andstæðinga sinna
einkennast af „sýndarlýðræði“ og
að þeir vildu snúa aftur til nýlið-
innar fortíðar og svipta þjóðina
efnahagslegu og pólitísku sjálf-
stæði.
Nýr forseti í Rússlandi að ári
Sænskir
neytendur munu bráðlega geta
valið að kaupa matvæli sem eru
framleidd á máta sem hjálpar til
við að draga úr loftslagsbreyting-
um, að því er matvælastofnun
Svíþjóðar tilkynnti í gær.
Matvælin, sem verða sérmerkt,
þurfa að uppfylla ákveðin
loftslagsvæn viðmið sem
stofnunin KRAV hefur útbúið, en
markmið hennar er að hvetja til
umhverfisvænnar neyslu.
Talskona KRAV segir óljóst
hvernig mati verði háttað en það
gæti átt við um hvernig matvæli
eru flutt og hvers konar orka er
notuð við framleiðsluna.
Loftslagsvæn
matvæli merkt
Ætti að leyfa hjónaband sam-
kynhneigðra?
Á að efla varnir gegn
barnaklámi á netinu?