Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.04.2007, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 27.04.2007, Qupperneq 34
BLS. 2 | sirkus | 27. APRÍL 2007 Hermikrákur dauðans Ah, hver man ekki eftir þeim einföldu tímum, þegar Justin Timberlake var með aflitaðar krullur, ástfanginn af Britney Spears og enn í strákasveitinni *NSYNC. Spánverjar muna greinilega vel eftir þessum tíma og ákváðu að senda spænsku útgáfuna í Eurovision. D’NASH er spænsk strákasveit sem stofnuð var fyrir rúmu ári er kapparnir gáfu út sína fyrstu smáskífu. Lagið sem drengirnir munu flytja í aðalkeppninni í Finnlandi í ár heitir I love you mi vida. Það er óhætt að segja að þetta sé eitt af verstu lögunum í keppninni í ár og að þeir skuli vera frægir er algjörlega óskiljanlegt. Það fyndasta við þessa sveit er að þeir eru eins og slæm útgáfa af *NSYNC, meira að segja fyrsta smáskífan þeirra minnir á Justin og félaga. „Þetta gengur bara ljómandi vel. Ég er að mestu leyti búinn að syngja,“ segir færeyski hjartaknúsarinn Jógvan Hansen, um ganginn í upptökum á nýrri plötu hans en Jógvan bar sigur úr býtum í X faktor þáttaröð- inni á Stöð 2 fyrir skemmstu. Hann vonast til að platan verði klár í búðir eftir mánuð og segist vera stressaður yfir því hvaða viðtökur hún fái. „Ég hugsa um að gera mitt besta og vona að fólk taki vel á móti,“ segir Jógvan en platan verður á rólegum nótum. „Þetta er svona rólegt popp að mestu leyti þótt einhver keyrslu- lög læðist með,“ segir Jógvan. Eitt frumsamið lag eftir hann verður á plötunni en auk þess verður meðal annars frumsamið lag eftir upptökustjórann Vigni Snæ Vigfússon við texta Magnúsar Þórs Sigmundssonar. Nokkur laga þeirra sem Jógvan söng í X-faktor verða á plötunni auk þess sem hið vinsæla lag Óskars Páls Sveinssonar og Stefáns Hilmarssonar, Hvern einasta dag, verður með enskum texta Stefáns. Heyrt þetta áður RADDBÖNDIN ÞANIN Jógvan sést hér í upptökuverinu ásamt Vigni Snæ upptökustjóra og má sjá að drengurinn lifir sig inn í sönginn. SIRKUSMYND/HÖRÐUR Mánuður í plötu Jógvans A thafnamaðurinn Jón Ólafsson, stundum kenndur við Skífuna, gerði sér lítið fyrir um síðustu helgi og vann 68 þúsund evrur, um sex milljónir króna, í spilavíti í Monte Carlo. Jón hélt eftir þremur evrum sjálfur en gaf restina til munaðarleys- ingjahælis í Cannes þar sem hann er búsettur. Þorsteinn Kragh, stórvinur hans, var staddur með honum í spilavítinu og segir Jón hafa boðið sér upp á einn espresso í tilefni góðs gengis í 21 í spilavítinu. „Hann lagði 300 evrur undir, vann þetta á nokkrum tímum og bauð mér svo upp á kaffi. Afganginn gaf hann svo á munaðarleysingjahæli í heimabæ sínum, Cannes,“ segir Þorsteinn í samtali við Sirkus. Hann bætir við að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem Jón gerir slíkt. „Við höfum margoft farið í spilavíti víðs vegar um heiminn og hann hefur alltaf gefið vinningana sína.“ Jón og Þorsteinn voru staddir á ofurbílasýningunni Top Marques í Mónakó sem fram fór um síðustu helgi. Þar prufukeyrðu þeir alla helstu sportbíla heimsins á götum Mónakó sem einnig eru notaðar undir Formúlu 1 kappakstur. „Þetta var ótrúlegt ævintýri. Þarna var allt fullt af ríku fólki sem keypti bíla í safnið sitt fyrir stjarnfræðilegar upphæð- ir,“ segir Þorsteinn og bætir við að honum hefði liðið eins og hann væri að labba inn í framtíðina þegar hann kom á sýninguna. „Bílarnir voru svakalegir og mótorhjólin ekki síðri,“ segir Þorsteinn sem tók snúning á nokkrum bílum, þar á meðal 850 hestafla Porsche-jeppa. Aðspurður hvort hann hefði keypt sér bíl á sýningunni sagði Þorsteinn svo ekki vera. „En Jón keypti sér bláan Bentley Continental GTC, alveg sérlega glæsilegan blæjubíl,“ segir Þorsteinn. Um verðið á Bentley-bílnum vill Þorsteinn ekkert segja en sagði bílinn þó dýran. Þetta er ekki fyrsta ferðin sem Þorsteinn og Jón fara saman. „Hann hringir í mig þegar hann er í stuði og þá djöflumst við eitthvað,“ segir Þorsteinn og hlær. „Við röltum á Kilimanjaro í júní fyrir tveimur árum og höfum farið í langar hestaferðir um hálendið. Við gistum á algjöru lúxushóteli núna í Mónakó sem var fínt en ég kann betur við mig í hestaskúrum eða tjöldum uppi á hálendinu. Það er meiri stemning enda bý ég nánast í hótelherbergjum í starfi mínu sem umboðsmaður,“ segir Þorsteinn. oskar@frettabladid.is ATHAFNAMAÐURINN JÓN ÓLAFSSON HUGSAR TIL ÞEIRRA SEM MINNA MEGA SÍN VANN SEX MILLJÓNIR Í SPILAVÍTI Í MONTE CARLO OG GAF TIL MUNAÐARLAUSRA FULLT AF PENINGUM Jón vann 68 þúsund evrur á nokkrum tímum í spilavítinu. „Hann er eldsnöggur að hugsa og heppinn,“ segir Þorsteinn Kragh um félaga sinn þegar hann spilar 21. NÝR BÍLL Jón festi kaup á nýjum Bentley-blæjubíl á bílasýningunni í Mónakó. GJAFMILDUR Auðjöfurinn Jón Ólafsson vann sex milljónir í spilavíti um síðustu helgi og gaf þær til munaðar- leysingja- hælis í Cannes þar sem hann býr nú um stundir. FÉKK KAFFIBOLLA Athafnamaður- inn Þorsteinn Kragh var með Jóni í Mónakó og fékk kaffibolla eftir gott gengi í spilavítinu. eurovision Ricky Martin 2 Grikkirnir eru þekktir fyrir að senda sjóðheita karlmenn og konur í Eurovision- keppnina og í ár er það engin undantekn- ing. Ungi söngvarinn Sarbel mun syngja lagið Yassou Maria. Þeir gerast ekki sykursætari en Sarbel og á drengurinn eftir að heilla dömurnar upp úr skónum eða allavega þær sem fíla svona drengi. Sarbel hefur gert það gott í heimalandi sínu og er gefinn út af Sony BMG. Það er áhugavert i þessari keppni í ár hversu margar þjóðir senda söngvara sem eru að gera það gott. Lagið Yassou Maria er eins og Eurovision-lag á að vera nema hvað að við höfum heyrt þetta áður. Þegar viðlagið byrjar segir söngvarinn sjóðheiti, „Shake it up, shake it up Maria“ og maður getur ekki annað gert en að hugsa til Ricky Martin er hann sló í gegn með laginu Livin’ la vida loca. Þau eru ekki alveg eins en það er eitthvað svipað með þessum lögum. hornið REYKJAVIK STORE LAUGAVEGI 86-94, S: 511-2007 Opið föstudaga 11-18.30 laugardaga 11-17 200 frí bílastæði í kjallara hússins. Just the product Spennandi vörur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.