Fréttablaðið - 27.04.2007, Síða 36

Fréttablaðið - 27.04.2007, Síða 36
BLS. 4 | sirkus | 27. APRÍL 2007 É g svara ekki þessari spurningu. Það er minn réttur,“ segir flugdrottningin Þóra Guð- mundsdóttir, oft kennd við Atlanta, í samtali við Sirkus hver sé ástæðan fyrir því að hún sé að selja rúmlega 560 fermetra glæsivillu sína í Asparhvarfi í Kópavogi aðeins rétt rúmum fjórum mánuðum eftir að hún keypti húsið af Einari Páli Tamimi, lögfræðingi hjá Glitni. Glæsivillan er tilbúin að utan en fokheld að innan og fylgja teikningar að skipulagi innanhúss eftir Rut Káradóttur innanhússarkitekt. Á efri hæð hússins eru til að mynda 100 fermetra svalir. Þóra vill fá 125 milljónir fyrir villuna sem stendur á frábærum útsýnisstað efst í Kópavog- inum, rétt við Elliðavatn. Lóðin er gríðarstór, tæpir 2.000 fermetrar, og var í fyrstu gert ráð fyrir hesthúsi innan lóðamark- anna. Að sögn fasteignasala sem Sirkus ræddi við getur orðið erfitt fyrir Þóru að selja húsið. Ekki sé stór markaður kaupenda að húsum sem kosta meira en hundrað milljónir auk þess sem staðsetningin hjálpi ekki til. Þóra býr nú í rúmlega 250 fermetra einbýlishúsi í Leirutanga í Mosfellsbæ ásamt dóttur sinni en það hús byggði hún ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum og viðskiptafélaga, Arngrími Jóhanns- syni. Þau seldu flugfélagið Atlanta til Magnúsar Þorsteinssonar fyrir um þremur árum og hefur Þóra verið talin með auðugustu konum landsins. oskar@frettabladid.is VILL FÁ 125 MILLJÓNIR FYRIR 550 FERMETRA GLÆSIVILLU LÁTLAUST Þóra býr nú í einbýlishúsi í Leirutanga í Mosfellsbæ. SIRKUSMYND/VILHELM STÓRGLÆSI- LEGT Hús Þóru í Asparhvarf- inu er risastórt og afar huggulegt. VILL EKKI SVARA Þóra Guðmunds- dóttir vill ekki gefa upp ástæður þess að hún kýs að selja glæsivillu sína við Asparhvarf. ATHAFNAKONAN ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR SELUR FOKHELT HÚS SITT Í KÓPAVOGI SIR K USM YN D /VILH ELM É g held að ég hafi nú bara aldrei verið þyngri,“ segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hlæjandi við Sirkus. Hann hafði mælst 105 kíló á vigt í Forvarnahús- inu þar sem blásið var til blaða- mannafundar á mánudaginn í tilefni af því að alþjóðleg öryggisvika Sameinuðu þjóðanna hófst sama dag. „Annars kann ég nú betur við baðvigtina heima. Hún sýnir 102,5 kíló og er eflaust mun áreiðanlegri,“ segir Sturla. Þrátt fyrir annir í kosningabarátt- unni segist Sturla bæta á sig kílóum meðan á slagnum stendur. „Ég hef tilhneigingu til að borða mikið í kosningabaráttunni, mikið af tertum, og hef lítinn tíma til að hreyfa mig,“ segir Sturla og bætir við að hann fari ekki oft yfir hundrað kílóin. „Ég er alveg í toppformi. Ég byrjaði ungur að vinna erfiðisvinnu og fékk þá vöðva fyrir lífstíð,“ segir Sturla. Spurður um hreyfingu segist hann labba og synda reglulega. En hvenær var hann í sínu besta formi? „Það hlýtur að hafa verið á því herrans ári 1978. Þá var ég búinn að vera bæjarstjóri í Stykkishólmi í fjögur ár og var 78 kíló. Síðan eru liðin mörg ár og þó nokkur kíló,“ segir Sturla og hlær. Sturla hefur aldrei verið þyngri ÞYNGIST Í KOSNINGABARÁTTUNNI Sturla Böðvarsson vegur nú 105 kíló og segist aldrei hafa verið þyngri. Kosningabaráttan tekur sinn toll enda úðar hann í sig tertum hvar sem hann kemur að eigin sögn. SIRKUSMYND/VILHELM Heyrst hefur Fyrirsæta á nýjum bíl Eftir því hefur verið tekið að Björn Sveinbjörnsson, fyrrverandi fyrirsæta og sambýlismaður Svövu Johansen, einatt kennd við 17, er kominn á nýjan bíl. Sá er ekki af verri gerðinni því um er að ræða kolsvartan Mercedez Benz-jeppa af gerðinni GL 500. Þessi bíll kostar á bilinu 11 til 14 milljónir frá Öskju, sem er með umboð fyrir Benz á Íslandi. Meðal annarra sem hafa keypt sér þennan glæsilega lúxusjeppa frá Benz eru flugkóngurinn og stjórnarformaður RÚV ohf., Ómar Bene- diktsson og Frakkinn Olivier Bremond, sem rekur verslunina Kisu ásamt eiginkonu sinni, Þórunni Eddu Anspach. Rappari til Kaupþings Tónlistarmaðurinn knái Sölvi Blöndal, sem eitt sinn var forsprakki rappsveitarinnar vinsælu Quarashi, mun vinna í greiningardeild- inni hjá Kaupþingi í sumar. Sölvi, sem var aðalsprautan í útgáfu plötunnar Goldmine með Silviu Nótt, leggur nú stund á nám í hagfræði við Háskóla Íslands og fær því fína reynslu hjá bankanum í sumar. Engir peningar enn Tónlistar- maðurinn Máni Svavarsson þvertekur fyrir það að hann sé orðinn moldríkur á góðu gengi tónlistarinnar úr Latabæ sem farið hefur sigurför um heiminn og meðal annars unnið hin virtu bresku BAFTA-verðlaun. Máni keypti sér nýlega einbýlishús í Garðabænum og fóru sögur á kreik um að þar væri Latabæjargróðinn kominn. Máni segist hins vegar ekki hafa séð mikið af peningum. „Þetta tekur mikið lengri tíma. Ég neita því hins vegar ekki að það væri gaman að græða á þessu eftir fjögurra ára streð í stúdíói á litlum launum,“ segir Máni. Bond-bíllinn safnar ryki Illa gengur að selja Bond-bílinn Aston Martin Db9, sem notaður var í nýjustu James Bond-myndinni Casino Royale. Bíllinn hefur staðið óhreyfður á bílasölu frá því fyrir jól og þrátt fyrir að margir áhugasamir milljónamæringar hafi komið og skoðað hann hefur enginn ekið á brott á honum. Bíllinn, sem kostar 25 milljónir, stendur því óhreyfður og safnar ryki. Bundnar eru þó vonir við að bíllinn seljist þegar dag tekur að lengja og sumarið nálgast.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.