Fréttablaðið - 27.04.2007, Page 72

Fréttablaðið - 27.04.2007, Page 72
Þó að hip-hoppið hafi byrjað sem partítónlist í Bronx snemma á átt- unda áratugnum þá fékk það fljótlega samfélagslegt hlutverk. Bæði pólit- ískt hlutverk með sveitum eins og Public Enemy en líka hlutverk sam- einingartákns fyrir þeldökka Banda- ríkjamenn, en því hlutverki hefur það haldið alla tíð síðan þó að tónlist- in sjálf sé löngu orðin að iðnaði. Hip-hoppið hefur breiðst út um allan heim og víða hafa undirokaðir minnihlutahópar tekið það í sína þjónustu, hvort sem er á Kúbu, í Afríku eða í úthverfum franskra stór- borga. Besta leiðin til þess að vita hvað hinn æsti múgur úthverfanna í óeirðunum í Frakklandi hér um árið var að hugsa var að hlusta á rappar- ana. Nú er palestínskt rapp að verða mjög áberandi. Fyrsta palestínska rappsveitin til að vekja athygli utan heimalandsins heitir DAM, sem stendur fyrir Da Arabian MCs, en orðið dam þýðir líka blóð bæði á ar- abísku og hebresku. DAM er skipuð þremur ísraelskum Palestínumönn- um. Hún var stofnuð árið 1999 í úthverfi Tel Aviv og sló í gegn með lag- inu Min erhabi? sem þýðir „Hverjir eru hryðjuverkamennirnir?“ Vel- gengni DAM hefur hrundið af stað bylgju palestínskra hip-hop sveita. Þær spretta nú upp eins og gorkúlur, en kvikmyndin Slingshot Hip Hop: The Palestinian Lyrical Front sem verður frumsýnd fljótlega fjallar um þessa bylgju sem er bæði áberandi á Gaza, Vesturbakkanum og á meðal Palestínumanna í Ísrael. Hvað tónlistina varðar er DAM mjög flott band sem sækir áhrif í bandarískt rapp (Nas, 2Pac, Mos Def), franskt rapp (IAM, NTN, Saina Supa Crew) og arabíska tónlist. Þeir berjast fyrir sjálfstæði Palestínu og segja í nýlegu viðtali: „Við viljum einfaldlega að hernámi Ísraelsmanna í Palestínu ljúki og við fáum okkar eigið ríki. Við leggjum mikla áherslu á friðarboðskap því að við erum sannfærðir um að öðruvísi náum við ekki takmarkinu.“ Hljómar betur en sjálfsmorðssprengingar. Þeir sem hafa áhuga ættu að skoða Myspace.com/damrap og Slingshothiphop.com. Er rappið sterkara en sverðið? Franska danstónlistar- plötufyrirtækið Ed Banger er það langheitasta í dag. Steinþór Helgi Arnsteins- son grennslaðist fyrir um fyrirtækið og steig villtan dans í leiðinni. Ed Banger var stofnað árið 2002 sem undirfyrirtæki Headbanger- plötuútgefandans og má því á engan hátt rugla saman við hina goðsagna- kenndu pönkhljómsveit Ed Banger and The Nosebleeds. Höfuðpaur Ed Banger er maður að nafni Pedro Winter, öðru nafni Busy P, en með ötulli aðstoð goðsagna á borð við Mr. Ozio (gerði lagið Flat Beat sem varð geysilega vinsælt árið 1999 er það birtist í Levi’s-auglýsingu) og Philippe Zdar (annar helming- ur rafdúettsins Cassius) stofnaði hann kjölfestu fyrir unga og efni- lega danstónlistarmenn til þess að koma tónlist sinni á framfæri. Í nýlegu viðtali við URB-tímaritið sagði Pedro að peningar frá Daft Punk hefðu komið Ed Banger á fót en Pedro hefur lengi verið umboðs- maður þeirra. Markmiðið: að „gefa út plötur sem gætu selst illa, án þess að hafa áhyggjur,“ og að koma Frakklandi aftur á danstónlistar- kortið. Önnur tólf tomman sem Ed Bang- er gaf út hét Never Be Alone og innihélt endurhljóðblöndun rafdú- ettsins Justice á samnefndu lagi eftir Simian (seinna Simian Mobile Disco). Í dag þekkja allir þetta lag sem We Are Your Friends með Justice vs. Simian. Eftir það byrj- uðu hjólin að snúast og það á ógn- arhraða, ekki síst fyrir Justice, sem vann í kjölfarið með til dæmis Britney Spears, Franz Ferdinand, Daft Punk og Fatboy Slim. Fyrsta breiðskífa Justice, †, er væntanleg í júlí og gefin út í sam- vinnu við Vice. Mun platan inni- halda meðal annars smáskífuna Waters of Nazareth. En Justice er svo sannarlega ekki eina nafnið sem slegið hefur í gegn hjá Ed Banger. Ed Banger hefur spunnið um sig stóran og mikinn vef og nægir í því sambandi að nefna Feadz og kærustuna hans Uffie sem nýlega komu til Íslands. Auk þess verður að nefna höf- uðpaurinn sjálfan, Busy P, en lagið hans Rainbow Man er með því besta sem komið hefur frá útgáfunni, SebastiAn sem framkallar líklegast vélrænustu tónana, Dj Mehdi, sem mikið hefur unnið með bæði Daft Punk og MC Solar, ofur 80’s hetj- una Kavinsky, hinn svala Vicarious Bliss, Mr. Flash sem er hálfgerð hip-hop hlið Ed Banger og í svipuð- um dúr er Krazy Baldhead. Sá sem líklegast mestu athygl- ina hefur fengið er So Me en hann sér um öll myndbönd, plötuumslög og grafík fyrir Ed Banger. Hann gerði myndbandið við We Are Your Friends sem valið var besta mynd- bandið á síðustu MTV-hátíð. Öll þessi fyrrnefnda fjölskylda kemur síðan saman í villtum partí- um undir nafni Ed Banger og hefur troðið upp á skemmtistöðum úti um allt. „Það er tími til kominn að við sýnum fólki að hægt sé að fara frá klassísku rave-lagi yfir í það nýj- asta frá Soulwax eða Justin Timber- lake. Við erum ekki teknó plötu- snúðar sem horfa ekki á áhorfend- urna – við deilum tónlistinni en einnig partíandrúmslofti til Spike Jonze/Beastie Boys-kynslóðarinn- ar, ég meina fólk er að kasta sér fram af sviðinu okkar,“ útskýrir Busy P í fyrrnefndu URB-viðtali. Sannkallað neu-rave hér á ferð. Upptökur í Nashville KLIPPIÐ HÉR! - Ekkert hlé á góðum myndum Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321 2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu. FRUMSÝND 27. APRÍL SÝND Í REGNBOGANUM STURLAÐ STÓRVELDI „Engin mynd mun skelfa eða heilla þig jafnmikið á þessu ári!“ - Total Film „Ráðgáta sem á sér engan líka!“ - Empire

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.