Fréttablaðið - 12.05.2007, Side 96

Fréttablaðið - 12.05.2007, Side 96
Ég varð fyrir því síðustu jól að „festast“ í korseletti eftir heljarinnar hangikjötshlaðborð og gat ómögulega komist úr því sjálf. Ég þurfti því að eyða nokkrum stundum í að líða eins og aðþrengdri konu frá fyrri öldum í hvalbeini og silki. Ég rifjaði þetta upp þegar ég loks horfði á kvikmyndina Marie Antoinette eftir Sofiu Coppola um daginn. Stór- fenglegir búningarnir skildu eftir hjá mér undarlegan keim af rósrauð- um fjaðraskreyttum rjómakökum og slatta af absúrdisma. Aumingja Marie Antoinette sem varð fyrir barðinu á illum tungum og rógburði. Hún sagði víst aldrei „Hvers vegna borða þau ekki kökur?“ og missti höfuð sitt í fallöxi frönsku byltingarinnar. „La Dauphine“ varð þó ein frægasta tískugyðja sögunnar, gerði París að hátískuborg og skanda- liseraði með sínum brjálæðislegu íburðarmikla klæðaburði. Hún var barnlaus fyrstu sjö árin í hjónabandi sínu við krónprinsinn og því var staða hennar innan hirðarinnar fallvölt. Með tískubyltingu sinni styrkti Marie Antoinette völd sín. Hún hóf tískubylgju með brjóstsykurslituð- um, demantsofnum kjólum, ótrúlegum þriggja feta háum hvítum hárkollum og hárgreiðslum sem í voru heil líkön af borgum, skipum eða fjarlægum lönd- um. Korselettin voru svo þröng og fleg- in að næstum því öll munúðarfull nekt brjóstanna var til sýnis. Ímyndunar- aflinu og íburðinum voru engin takmörk sett. Í litlu sveitahöllinni sinni gekk hún í gegnsæjum kjólum sem fengu hirðina til að gapa af hneykslan. Hún var konan sem gat gert allt, gengið í öllu og eytt öllum þeim fjármunum sem henni sýnd- ist, sem að lokum varð til þess að þjóð- in kallaði fyrst á ljóshært höfuð hennar undir „la guillotine“. Kvikmyndin fékk mig til að hugsa um hversu geld tískan er í hinum frjálsa nútímaheimi miðað við þennan seinni hluta átjándu aldar. Ímyndið ykkur heim þar sem allir í kringum ykkur ganga daglega í haute couture fötum Johns Galliano og ýkið svo um helming. Heim þar sem þröng korselett, krín- ólínur, hvítpúðruð andlit og hár á konum jafnt og karlmönnum, svartir fegurðarblettir málaðir ofan í sýfilis- og bólusóttarör, slaufur, sokka- buxur og silki voru daglegt brauð. Heim sem er algjörlega absúrd og súrrealískur í íburði og tísku sinni og á ákveðinn hátt jafnvel hálf ógn- vekjandi fyrir okkar einfalda nútímasmekk. Undanfarið ár, eða síðan mynd Coppola var sýnd í Cannes, hafa tískuhönnuðir fengið innblástur frá frægustu drottningu Frakklands. Gegnsæjar blómaskreyttar flíkur í pastellitum verða áberandi í sumar með íburðarmiklum, efnismikl- um kjólum og jafnvel fjöðrum og glitrandi steinum. Korselett koma áfram sterk inn en á öld frelsis munu þau væntanlega stoppa stutt við og aðeins rétt kinka kolli í átt til fyrri alda. Ég verð þó að viðurkenna að einstöku sinnum í okkar frjálslega vestræna heimi er eitthvað synd- samlega sexý og seiðandi við það að hefta og ýkja kvenlegar kúrvur og hold, svo lengi sem einhver er ekki langt undan til að leysa reimarnar... Fallaxartíska F í t o n / S Í A Hönnuðir endursköpuðu blóm á tískupöllunum fyrir sumarið 2007 og bóndarósir og fjólur voru í aðal- hlutverki. Korselett úr silki litu út eins og væru þau ofin úr rósablöð- um, tjull myndaði blóm á öxlum og úlnliðum og blóm voru sett í íburðarmikið hárskraut. Alexand- er McQueen sótti augljóslega inn- blástur til Frakklands fyrir bylt- ingu og sendi fyrirsæturnar fram í rómantískum Marie Antoinette- legum múnderingum og hárgreiðsl- um. Fyrirsæturnar hjá Yves Saint Laurent voru ekki einungis þaktar blómum heldur gengu þær eftir lif- andi og ilmandi fjóluengi sem hafði verið haganlega komið fyrir. Sum- arið gæti því ekki verið kvenlegra og rómantískara.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.