Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.05.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 31.05.2007, Qupperneq 4
 Alþingi, hið 134. í röð löggjafarþinga, verður sett í dag. Þingsetningin er venju sam- kvæmt formleg og hátíðleg og hefst með guðsþjónustu í Dóm- kirkjunni þar sem séra Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkju- prestur og herra Karl Sigurbjörns- son, biskup Íslands, þjóna fyrir altari. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setur þingið og að því loknu tekur starfsaldursforseti, Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra, við fundarstjórn og stjórnar kjöri kjörbréfanefndar. Þá verður gert um klukkustund- ar hlé á þingfundi á meðan kjör- bréf eru rannsökuð. Þingsetningarfundi verður fram haldið klukkan hálf fjögur þegar kjörbréf verða afgreidd og nýir þingmenn undirrita drengskapar- heit að stjórnarskránni. Forseti Alþingis og varaforsetar verða kjörnir, kosið verður í fastanefndir þingsins og að lokum hlutað um sæti þingmanna. Í kvöld flytur Geir H. Haarde forsætisráðherra stefnuræðu sína og á eftir fara fram umræður um hana. Í kosningunum 12. maí voru 39 þingmenn endurkjörnir en 24 nýkjörnir. Af þessum 24 hafa þrír setið áður á þingi, þeir Árni John- sen (1983-1987 og 1991-2001), Ell- ert B. Schram (1971-1979 og 1983- 1987) og Karl V. Matthíasson (2001-2003). Fjórir til viðbótar hafa sest á þing sem varamenn, þau Atli Gíslason, Álfheiður Ingadóttir, Grétar Mar Jónsson og Jón Magnússon. Tveir varaþingmenn sitja sumarþingið í fjarveru aðalmanna, þær Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, varamaður Ögmundar Jónassonar, og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varamaður Jóns Bjarnasonar. Af þeim sautján sem setjast á þing í dag í fyrsta sinn eru nokkrir þaulkunnugir þingstörfunum. Ármann Kr. Ólafsson, Illugi Gunnarsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir hafa öll verið aðstoðar- menn ráðherra og fjölmörg eiga að baki langa reynslu úr sveitar- stjórnum og búa fyrir vikið að nokkrum samskiptum við þingið. Ekki verður þingfundur á morg- un en fundahald er fyrirhugað á mánudag. Sautján setjast á þing í fyrsta sinn í dag Þing kemur saman í dag. Af þeim 24 nýju þingmönnum sem kjörnir voru í kosningunum 12. maí hafa sjö setið áður á þingi sem aðal- eða varamenn. Gerry og Kate McCann, foreldrar fjögurra ára stúlku sem rænt var í Portúgal fyrir tæpum mánuði, gengu í gær á fund Benedikts sextánda páfa í Páfagarði í Róm. „Hann var mjög vingjarnlegur, mjög einlægur,“ sagði Kate McCann um Benedikt páfa, sem veitti þeim blessun sína og sagðist ætla að biðja áfram fyrir dóttur þeirra. „Þetta var miklu persónulegra en ég hefði nokkurn tímann getað ímyndað mér,“ sagði Gerry eftir að þau höfðu hitt páfa stuttlega á Péturstorginu. Við komuna til Rómar í gær sagði Gerry McCann það blendnar til- finningar að vera kominn þangað á fund páfa. „Við venjulegar kring- umstæður hefði þetta verið eitt af því mest spennandi sem við gætum gert á ævinni, en sú staðreynd að við erum hér án Madeleine er okkur mjög ofarlega í huga.“ McCann-hjónin eru kaþólskrar trúar og páfi féllst strax á að hitta þau eftir að breski kardinálinn Cormac Murphy-O‘Connor fór fram á það við Páfagarð. McCann-hjónin hafa dreift myndum af dóttur sinni og biðja fólk um að dreifa þeim sem víðast. Á næstunni ætla þau að fara til Þýskalands, Hollands og Spánar í leit að dóttur sinni, en frá þessum löndum koma margir ferðamenn til ferðamannastaðarins í Portúgal þar sem dóttir þeirra hvarf. Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Kínverski ríkisendurskoðandinn, hr. Li Jinhua, heimsækir Ísland nú í vikunni í boði Ríkisendurskoðunar ásamt sjö manna fylgdarliði. Heimsókninni er ætlað að treysta tengsl stofnananna og miðla þeim aðferðum og vinnubrögðum við endurskoðun opinberra aðila sem talin eru henta best hverju sinni. Li Jinhua hefur fundað með Sigurði Þórðarsyni ríkisendurskoð- anda, kynnt sér starfsemi Ríkis- endurskoðunar og gert grein fyrir starfi sínu í Kína. Hópurinn mun kynna sér virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka og ferðast nokkuð um landið. Heimsækir Kárahnjúka Tvítugur maður hefur í Héraðsdómi Suðurlands verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot, fyrir að aka ölvaður undan lögreglu í Vest- mannaeyjum síðasta sumar og reyna svo að flýja á hlaupum. Hann rauf skilorð með brotinu. Maðurinn var einnig ákærður fyrir að hafa stolið bíl próflaus og undir áhrifum áfengis síðla árs 2005 og velt bílnum. Maðurinn neitaði hvorki né játaði það brot og sagðist ekkert muna sökum ölvunar. Þar sem talsverðir annmarkar þóttu á rannsókn málsins var hann sýknaður af þeim ákærulið. Ók ölvaður og flúði á hlaupum Fyrirhugað er að breyta eða skipta um rafmagn í fasteign- um á Keflavíkurflugvelli en rafmagnsmálin þar samræmast ekki Evrópureglum. Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflug- vallar, Kadeco, segir að unnið sé að útfærslu á málinu. „Við erum að kanna með hvaða hætti verður staðið að þessu. Það þarf að gera ákveðnar endur- bætur á kerfinu sjálfu. Langtíma- markmiðið er að dreifikerfið og allt rafmagn samræmist Evrópu- reglum,“ segir hann. Rafmagnsmálin geta haft áhrif á fasteignaverðið, að mati Kjartans. „Það gilda sömu reglur hvað varðar þessi fasteignavið- skipti eins og önnur. Allur kostnaður er metinn inn í fasteignaverðið.“ Stefnt er að því að breytingar á rafmagninu komi til fram- kvæmda í haust. Rafmagn sam- ræmist Evrópu Rannsókn Samkeppnis- eftirlits á hugsanlegu samráði innan Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) er „talsvert viðamikil“ og ekki er að vænta niðurstöðu alveg á næstunni, segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri eftirlitsins. Páll segir „ekki óeðlilegt að stjórnsýslumeð- ferð máls af þessu tagi taki nokkurn tíma.“ Málsmeðferð hjá samkeppnis- yfirvöldum tekur þó mismikinn tíma. Á árunum 2000 til 2004 tók minnst 45 daga að koma máli til afgreiðslu, en mest 1.009 daga. Húsleit var gerð hinn 3. mars hjá SAF og nokkrum ferðaskrif- stofum. Hald var lagt á marga kassa af gögnum. Talsvert viða- mikil rannsókn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.