Fréttablaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 75
Hin bandaríska Flaming Lips
bættist í gær í hóp þeirra hljóm-
sveita sem ætla að troða upp á
Hróarskelduhátíðinni í Danmörku
í sumar en tuttugu ár eru síðan
hljómsveitin spilaði fyrst á hátíð-
inni. Listinn yfir þær hljómsveit-
ir sem koma munu fram á Hróars-
keldu í ár er nú nær fullmótaður
en af öðrum stórum nöfnum má
nefna Beastie Boys, Muse, Queens
of the Stone Age, Red Hot Chili
Peppers, Mika, The Who og fleiri,
auk þess sem okkar ástkæra Björk
mun ekki láta sig vanta.
Miðasala á hátíðina í ár hefur
aldrei gengið betur og hefur
meirihluti miða selst upp í forsölu.
Tæplega 200 tónlistaratriði verða
á dagskrá hátíðarinnar.
Flaming Lips
á Hróarskeldu
Justin Timberlake virðist hafa
ágætt viðskiptavit en hann hefur
nú ákveðið að setja á fót sitt eigið
útgáfufyrirtæki. Tennman Rec-
ords heitir fyrirtækið en höfuð-
stöðvar þess verða í Los Angeles
og mun Timberlake gegna hlut-
verki stjórnarformanns og fram-
kvæmdastjóra þess. „Við erum öll
mjög spennt fyrir því hæfileika-
fólki sem við munum bjóða upp á
og ég get ekki beðið eftir að kynna
þetta fólk fyrir heiminum,“ sagði
Timberlake.
Justin með
plötuútgáfu
Idol-dómarinn Paula Abdul gerir kollega sínum
Simon Cowell stóran grikk í heimildarþætti um þann
síðarnefnda sem sýndur verður í Bretlandi um helg-
ina. Brot úr þættinum hafa lekið út til fjölmiðla og
talar Abdul þar meðal annars um hið margfræga
sjálfsálit Cowell og hvernig það endurspeglast í kyn-
lífi kappans.
„Hann er eini maðurinn sem ég veit um sem æpir
eigið nafn á meðan bólförum stendur. Hans hug-
mynd að forleik er að horfa á sjálfan sig í spegli,“
segir Abdul. Talið er að þessi ummæli muni koma
Cowell afar illa og þykir ekki útilokað að lögfræð-
ingar hans muni fara fram á að ummælin verði fjar-
lægð úr endanlegri útgáfu þáttarins.
Í myndinni er einnig haft eftir eldri bróður Simon,
Tony Cowell, að hann hafi málað sig með hvítgráum
húðlit á sínum yngri árum til að sleppa við að fara
í skólann. „Þannig leit hann út fyrir að vera fölur
og slappur og þá leyfðu mamma og pabbi honum að
sleppa við skólann,“ segir Tony.
Cowell öskrar eigið nafn í rúminu
Heimasíðan kvikmynd.is, sem
nýtur sívaxandi vinsælda, hefur
aukið til muna áherslu sína á ís-
lenska þætti. „Við sendum út
bréf á dögunum og auglýstum
eftir þáttum og þáttagerðarfólki
og fengum fín viðbrögð. Þetta er
allt í raun hluti af þeim viðbrögð-
um,“ segir Þóroddur Bjarnason,
annar eigenda kvikmynd.is. Á
meðal þátta á síðunni eru 3. hæð
til vinstri, Sleepless in Reykja-
vík, eftir Gunnar Guðbjörns-
son þar sem íslenskar þunga-
rokksveitir eru í brennidepli, og
grínatriði eftir Þórhall Þórhalls-
son, fyndnasta mann Íslands.
Auk þess er hægt að sjá þætti
á borð við Game TV og Sigtið á
síðunni.
Innlent efni aukið