Fréttablaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 12
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Íslenskir karl-
menn á aldrinum 18 til 23 ára
hafa meiri væntingar til launa
en jafnöldrur þeirra fyrir sömu
störf. Strákar sem hafa áhuga á
að verða læknar reikna með að
fá laun sem eru um þrjátíu pró-
sentum hærri en hjá jafngöml-
um stúlkum sem vilja verða
læknar.
Jafnréttisráð kynnti í gær
niðurstöður könnunar sem Capa-
cent Gallup gerði. Henni var
ætlað að kanna viðhorf til starfa
og væntingar til launa á meðal
ungs fólks.
Spurt var um viðhorf ung-
menna til tíu starfa; læknis,
kennara, lögfræðings, starfs-
mannastjóra, markaðsstjóra,
hjúkrunarfræðings, smiðs,
verðbréfamiðlara, kerfisstjóra
og launagjaldkera.
Áhugi á viðkomandi starfi var
kannaður ásamt því sem þátttak-
endur mátu hvaða laun þeir teldu
líklegt að fá fyrir þau störf sem
þeir höfðu mjög eða frekar mik-
inn áhuga á að sinna í framtíð-
inni.
Í átta störfum af tíu reiknuðu
karlmenn með að fá hærri laun
en konurnar. Munurinn var töl-
fræðilega marktækur hjá
tveimur þeirra; lækni og lög-
fræðingi. Þeir karlar sem höfðu
áhuga á að vera læknar reiknuðu
að jafnaði með að fá 574 þúsund
krónur á mánuði en konurnar
reiknuðu með 440 þúsundum.
Karlar með áhuga fyrir lögfræði
töldu líklegt að fá 561 þúsund á
mánuði en konurnar 436 þúsund.
„Mér finnst niðurstöðurnar
gefa ákveðna vísbendingu um að
við lifum enn í heimi kynskipts
vinnumarkaðar. Þegar konurnar
eru spurðar um launavæntingar
verðleggja þær sig lægra en
karlar,“ segir Fanný Gunnars-
dóttir, formaður Jafnréttisráðs.
Hún ætlar að senda könnunina
til allra grunn- og framhalds-
skóla í von um að niðurstöðurnar
verði nýttar í kennslu og fræðslu
um íslenskan vinnumarkað og
sem innlegg í jafnréttisumræðu
í skólunum.
Þegar spurt var um áhuga á
störfum voru læknir, kennari og
lögfræðingur vinsælustu störfin
óháð kyni. Hjá körlum höfðu
flestir áhuga á að vera smiðir og
lögfræðingar, en konurnar höfðu
mestan áhuga á að starfa sem
hjúkrunarfræðingar og læknar.
Úrtakið var átta hundruð manns,
handahófsvalið úr þjóðskrá.
Svarhlutfall var 54 prósent.
Strákar hafa
meiri vænt-
ingar til launa
Íslenskir karlmenn á tvítugsaldri reikna með að fá
hærri laun fyrir sömu störf en konur á sama aldri.
„Vísbending um að við lifum enn í heimi kynbund-
ins vinnumarkaðar,“ segir formaður Jafnréttisráðs.
Lögreglan á
Blönduósi hafði afskipti af
tveimur ungum ökumönnum í
gær sem grunaðir voru um að
hafa fíkniefni í fórum sínum.
Mennirnir voru færðir á
lögreglustöðina þar sem leitað
var í bílum þeirra.
Fíkniefnahundur lögreglunnar
fann nokkur grömm af kannabis-
efnum í öðrum bílnum en
eigandi hins bílsins benti
lögreglumönnum á kannabisefni
í bíl sínum.
Lögreglan segir óvíst að efnin
hefðu fundist hefði hundsins
ekki notið við. Mál mannanna
teljast upplýst.
Fíkniefnahund-
ur sannar sig
Sérfræðingar Microsoft
komu hingað til lands í byrjun vik-
unnar til að kanna aðstæður til að
koma upp netþjónabúi hér á landi.
Slík starfssemi tekur svipað pláss
og sjö til átta knattspyrnuvellir og
notar um 50 megavött af raforku.
Halldór Jörgensson, fram-
kvæmdastjóri Microsoft á Íslandi,
segir sérfræðingana hafa verið hér
á landi í um sólarhring. Á þeim tíma
hafi þeir einkum rætt við hérlenda
aðila um sæstrengi og við íslensk
orkufyrirtæki um kaup á raforku.
Netþjónabú (e. server farm) af
þeirri stærðargráðu sem Microsoft
hyggst reisa notar um 50 megavött
af raforku, sem er þriðjungur orku-
framleiðslu Blönduvirkjunar.
Microsoft mun nú vinna úr gögn-
um sem aflað var, en val um stað-
setningu á netþjónabúi stendur á
milli átta til tíu landa. Listinn verð-
ur skorinn niður í þrjú lönd áður en
ýtarlegri úttekt á staðsetningar-
möguleikum fer fram.
Halldór segir að Ísland hafi ýmsa
kosti fyrir Microsoft. Stjórnvöld í
öðrum löndum virðist þó meðvit-
aðri en íslensk stjórnvöld um kosti
þess að fá slíka starfsemi til sinna
landa. Um fimmtíu vel launuð sér-
fræðistörf myndu skapast, opnaði
Microsoft netþjónabú hér á landi.
Til að netþjónabú verði að veru-
leika verður að leggja nýjan
sæstreng til landsins, auk þess sem
50 megavött af orku liggja ekki á
lausu, segir Halldór. Hann segir að
Microsoft hafi hug á því að hefja
starfsemi innan tveggja til þriggja
ára, og því skipti miklu hvenær
strengur og orka verði fáanleg hér
á landi.
Þarf 50 megavött af raforku
Shimon Peres, aðstoðar-
forsætisráðherra Ísraels, greindi
í gær frá því
að hann ætlaði
að bjóða sig
fram til
forseta.
Ísraelsþing
kýs forseta
landsins hinn
13. júní
næstkomandi.
Núverandi
forseti, Moshe
Katzav, hefur
sætt alvarleg-
um ásökunum
um nauðganir og kynferðislega
áreitni gagnvart starfsfólki sínu.
Peres, sem er 83 ára, bauð sig
fram til forseta fyrir sjö árum
en þá varð Katzav fyrir valinu.
Peres hefur verið þingmaður
síðan árið 1959 og hefur gegnt
ýmsum helstu valdaembættum
landsins.
Shimon Peres
býður sig fram
Voltaren Emugel® er notað sem stað-bundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera á skrámur, opin sár eða á exem, varist
snertingu við augu og slímhúðir, notist eingöngu útvortis og má aldrei taka inn. Þegar lyfið er notað án ávísunar læknis skal hafa samband við lækni
ef einkenni batna ekki eða versna innan viku. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða lyfjafræðings áður en lyfið er notað, þó skal það ekki
notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og
fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan, Kirkjulundi 17, 210 Garðabæ.
Fæst án lyfseðils
Af hverju meðhöndla allan líkamann
þegar þér er bara illt á einum stað?
Voltaren Emugel dregur úr verkjum
og minnkar staðbundnarbólgur í
sinum, vöðvum og liðum
Díklófenak tvíetýlamín 11,6 mg
SS hefur nú tekið ómakið af
ömmum landsins og gert
frábæra kindakæfu að
hætti ömmu. Prófaðu
þessa hefðbundnu og
góðu kæfu og rifjaðu upp
góðar stundir þegar fólk
hafði meiri tíma.
– sígild og bragðgóð á brauðið