Fréttablaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 80
Sé árangur Íslands og
Liechtenstein í síðustu undan-
keppni borinn saman kemur í
ljós að síðarnefnda liðið kom
mun betur út.
Fyrir það fyrsta fékk Liechten-
stein átta stig í sínum riðli. Liðið
vann báða leiki sína gegn Lúxem-
borg og náði jafntefli gegn Portú-
gal og Slóvakíu á heimavelli.
Ísland fékk fjögur stig. Liðið
náði jafntefli gegn Möltu á úti-
velli og vann Maltverja svo á
Laugardalsvelli. Allir aðrir leikir
töpuðust.
Það sem meira er að Liechten-
stein fékk færri mörk á sig í
keppninni en Ísland í sínum riðli
þrátt fyrir að hafa spilað tveimur
leikjum meira en Ísland. Ísland
fékk 27 mörk á sig, Liechtenstein
23.
Samanburður á markatölu lið-
anna á heimavelli sýnir þennan
mun greinilega.
Liechtenstein skoraði átta en
fékk níu á sig. Ísland skoraði níu
en fékk fjórtán á sig.
Knattspyrnulandslið
Liechtenstein er ekki nema rétt
rúmlega 25 ára gamalt en liðið lék
sinn fyrsta leik við Möltu árið 1981.
Þá náði liðið jafntefli en það er ef
til vill lýsandi að það er það eina
sem hefur nokkru sinni tapað fyrir
San Marínó, öðru smáríki í Evrópu.
Sá leikur var vináttulandsleik-
ur sem fór fram hinn 28. apríl árið
2004. Versta tap liðsins kom árið
1996 en þá fór lið Makedóníu illa
með Liechtenstein og vann 11-1.
Liðið hefur þó unnið sína sigra
líka og nýjasta dæmið er 1-0 sigur
á Lettlandi í undankeppninni sem
nú er í gangi. Þar með hefur liðið
unnið jafn marga leiki og það ís-
lenska í riðlinum. Ísland er þó með
betri markatölu.
Stærsti sigur Liechtenstein til
þessa kom gegn Lúxemborg sem
þó hefur fjórtán sinnum fleiri
íbúa og talsvert fleiri en Ísland.
Sá leikur vannst 4-0 en hann var
leikinn í október árið 2004, í undan-
keppni HM 2006.
Fjórum dögum áður vakti lið
Liechtenstein jafnvel enn meiri
athygli á sér þegar það náði 2-2
jafntefli gegn stórliði Portúgals
á heimavelli. Í síðari leiknum, í
Portúgal, komst Liechtenstein yfir
en tapaði á endanum, 2-1.
Fyrir jafnteflisleikinn við
Portúgal hafði liðið tapað öllum
sínum tuttugu leikjum í undan-
keppni HM, þar af tveimur gegn
Íslandi en þeir leikir fóru fram
árið 1997.
Liechtenstein er eina liðið sem
hefur tapað fyrir San Marínó
Fékk tvöfalt fleiri stig en Ísland
Ísland og Liechtenstein
leika nú saman í annað skipti í
sögunni í undankeppni stórmóts.
Fyrir tíu árum vann Ísland báða
leikina en liðin mætast á Laugar-
dalsvelli um helgina.
Ísland vann sinn fyrsta leik í
riðlinum, gegn Norður-Írlandi.
Síðan þá hafa allir leikir Íslands
tapast. Liechtenstein tapaði öllum
sínum leikjum framan af en vann
í síðustu umferð lið Lettlands
afar óvænt, 1-0.
Þetta er ef til vill besti sigur
Liechtenstein í sögu liðsins en
þetta var sá fyrsti á liði sem
hefur spilað á stórmóti í knatt-
spyrnu. Þjálfari Letta sagði af sér
eftir leikinn. Lettland vann Ísland
á heimavelli í haust, 4-0.
Ísland er þó með talsvert betri
markatölu, fimm mörk í mínus,
en Liechtenstein er með tólf í
mínus.
Frækinn sigur
gegn Lettum
Reynsluboltinn Ryan
Giggs hefur ákveðið að leggja
landsliðsskóna á hilluna eftir leik-
inn gegn Tékkum á laugardag í
undankeppni EM. Þetta er mikið
áfall fyrir Wales enda Giggs ein-
hver besti leikmaður þjóðarinnar
frá upphafi.
Giggs hefur leikið 64 landsleiki
á þessum 16 árum.
Hættur með
landsliðinu
Thierry Henry þótti ekki
sannfærandi þegar hann ræddi
um framtíð sína á blaðamanna-
fundi í Kína í gær. Barcelona
hefur áhuga á því að fá hann til
sín og jós Henry olíu á eld þess
efnis að hann færi til Spánar-
meistaranna í sumar.
„Ég er leikmaður Arsenal í
augnablikinu,“ sagði Henry, sem
er ekki sáttur við uppskeru Ars-
enal á tímabilinu, fjórða sætið í
ensku úrvalsdeildinni. „Þetta var
erfitt tímabil og enn einu sinni
endum við langt á eftir topplið-
unum. Ég er orðinn pirraður á
því að enda alltaf í síðasta sæti
af toppliðunum fjórum,“ sagði
Frakkinn.
Orðinn pirraður
Íslenska kvennalandsliðið
í knattspyrnu spilar í dag sinn
fyrsta leik í undankeppni Evr-
ópumótsins árið 2009 í Finnlandi.
Stelpurnar eru komnar til Grikk-
lands þar sem heimamenn eru
taldir minni spámenn fyrir leikinn
en árangur þeirra á knattspyrnu-
vellinum undanfarin ár hefur ekki
verið upp á marga fiska. Ísland og
Grikkland hafa mæst í tvígang,
árið 1994 vann Ísland 6-1 þar sem
Ásthildur Helgadóttir skoraði
fjögur mörk. Ári síðar vannst svo
3-0 sigur.
Eldingu laust niður í flugvél
liðsins á leiðinni út. „Smá sjokk“,
viðurkenndi landsliðsþjálfarinn
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, en að
öðru leyti komst liðið klakklaust til
Grikklands þar sem nokkur vand-
ræði hafa verið til staðar. Grikk-
ir ætluðu að láta landsliðið æfa
á gervigrasi í gær en skiljanlega
þvertók hópurinn fyrir það. Á end-
anum, eftir langa töf, fékk liðið að
æfa á keppnisvellinum sjálfum.
Ásthildur, Katrín Jónsdóttir og
Guðný Óðinsdóttir eru allar smá-
vægilega meiddar en Sigurður
vonaðist til að þær gætu tekið þátt
í leiknum. Það kemur þó ekki í ljós
fyrr en rétt fyrir leikinn, sem hefst
klukkan 15 að íslenskum tíma.
„Að mínu mati erum við með
sterkara lið en við þurfum að
sanna okkur. Það hefur verið
sveifla hjá okkur á milli heima-
og útileikja og því ætlum við að
breyta. Stelpurnar eru staðráðnar
í að byrja mótið vel og gefa tón-
inn fyrir mótið. Það gefur líka góð
fyrirheit fyrir stórleikinn gegn
Frökkum í júní og því er stór gul-
rót að sækja þrjú stig hér,“ sagði
Sigurður, sem hugsar um þrjú stig
og ekkert annað.
„Við leiðum ekkert hugann að
því hvað gerist ef við töpum. Við
hugsum bara jákvætt enda höfum
við sett markið hátt. Það er ákveð-
in pressa á okkur og við þurfum að
standast hana til að ná markmið-
inu,“ sagði Sigurður, sem stefnir
með liðið til Finnlands á EM. Liðið
yrði þá fyrst allra íslenskra A-
landsliða til að keppa í lokakeppni
stórmóts.
Stelpurnar ætla að
gefa tóninn í Aþenu