Fréttablaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 64
Kl. 20.00 Kammerkór Suðurlands fagnar tíu ára afmæli sínu með tónleik- um í Versölum, ráðhúsi Ölfuss. Einsöng syngur Sigrún Hjálm- týsdóttir, undirleik annast Kári Þormar en stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. Í sumar verða hundrað ár liðin frá því að Friðrik átt- undi konungur sótti Íslend- inga heim en af því tilefni verður opnuð sýning í Þjóð- arbókhlöðunni í dag. Þar er á veggspjöldum rakin drög- in að heimsókninni, ferðalag kon- ungs um landið og margvíslegur viðbúnaður sem þjóðin hafði uppi vegna heimsóknarinnar, þar eru til sýnis ýmsir gripir frá þess- um tíma sem mönnum okkar tíðar kann að þykja lítt minnisverðir en voru með skýrum hætti, ef betur er að gáð, mikilsverðir fyrir ís- lenska samfélagsþróun, sjálfstæði í orði og borði. Benedikta prinsessa, barna- barn Friðriks Kristjánssonar, kom hingað fyrir fáum dögum og leit til með undirbúningi sýning- arinnar. Heimsóknir einstaklinga úr dönsku konungsfjölskyldunni voru á fyrri helmingi síðustu aldar miklu tíðari en síðar varð. Bæði hafði Friðrik níundi, faðir Mar- grétar Þórhildar, á yngri árum hér oft viðdvöl sem liðsmaður á eftir- litsskipum konungs og eins sóttu foreldrar hans hingað í veiði. Sókn þessa fólks hingað norður byggði ekki síst á þeim viðtökum sem Friðrik áttundi og Kristján níundi fengu hér 1874 og 1907 sem voru konunglegar. Erfitt er nútímamönnum að gera sér í hugarlund hvernig hingað- koma konungs 1907 var. Gríðar- legt tilstand var: stór hluti af fjár- lögum þessa árs var lagður í vega- gerð um Suðurland en til stóð að konungur færi þar um í vagnalest. Var vögnum safnað af öllu land- inu til að flytja föruneyti konungs. Þegar til kom vildi Friðrik sitja hest og fór því föruneyti hans ríð- andi að mestu. Hingað kom í sveit konungs mikill fjöldi danskra blaðamanna og fyrirmenna úr dönsku opinberu lífi. Alþingi bauð hingað 30 dönskum þingmönnum og endurgalt þar með heimboð ís- lenskra þingmanna frá árinu áður en þá fóru 35 af 40 alþingismönn- um til Hafnar í heimsókn. Hingað til lands kom konungur með föruneyti á þremur skipum. Var lagt upp frá Tollbúðinni hinn 21. júlí og var mikill mann- fjöldi við strandlengjuna til að kveðja konung, þúsundir manna segja samtímaheimildir. Var sægur skipa sem fylgdi skipunum þremur, Birma, Atlanta og Geysi, á leið. Fyrri skipin voru fengin að láni frá Austur-Asíufélaginu, því aldna félagi sem hafði um alda- skeið einokun á viðskiptum Dana við Asíulönd. Birma var þeirra stærst, 5.000 smálestir að stærð. Tvö hundruð manns voru um borð, tuttugu þjónar, hljómsveitarmenn, kokkar auk gestanna og áhafnar. Fyrsti áfangi ferðarinnar voru Færeyjar og þangað kom konungs- flotinn 24. júní. Reru heimamenn tugum báta undir flöggum til móts við flotann. Dvaldi konungur með fylgdarliði sínu í Færeyjum í þrjá sólarhringa, fór víða um eyjarn- ar, skoðaði atvinnulíf og híbýli manna. Lagt var upp til Íslands að morgni 27. júlí. Sóttist ferðin það vel að skip konungs máttu liggja heilan dag undan Akranesi til að ná réttum komudegi til Reykja- víkur. Íbúar Reykjavíkur voru um tíu þúsund sumarið 1907. Þar var uppi fótur og fit hinn 29. júlí: menn voru þegar teknir að flagga og mátti víða sjá hvítbláinn við hún innan um Dannebrog. Konungur skyldi gista í húsi Lærða skólans, en gestum var víða komið niður: á Hótel Reykjavík og Hótel Íslandi. Móttökunefnd hafði aðsetur í Iðn- aðarmannahúsinu. Skipað hafði verið við lægi undan landi en svo stór skip sem voru í fylgd konungs voru fátíð hér og engin höfn enn í bænum. Skyldi konungur stíga á land að morgni 30. júlí kl. 10 og skyldi bátur hans leggja að gömlu steinbryggjunni. Þann dag voru allir í bænum í sparifötunum og komnir niður í Pósthússtræti þar sem nú er Tryggvagata að hylla konung. Er- lend fyrirmenni og innlend í ein- kennisbúningum, karlar í jakka- fötum og sumir á fornklæðum, konur á skautbúningum, upp- hlut og dönskum búningum, börn- in þvegin og snyrt og stóðu hvít- klæddar ungmeyjar í röð sitthvor- um megin við gönguleið konungs: pláss var tekið frá fyrir fimmtíu innlenda og erlenda ljósmyndara. Er skipafloti konungs seig inn sundin var skotið úr fallbyssum af frönsku herskipi er hér lág við festar. Hannes Hafstein hélt þegar til skips konungs og stundvíslega kl. 10 lagðist konungsbáturinn að steinbryggjunni, þeir konungur og Hannes stigu á land og Hann- es bauð kóng sinn velkominn með handabandi: „Velkominn til þessa hluta ríkis yðar, herra konungur!“ Hér á landi dvaldi konungur ásamt fylgdarliði til 15. ágúst. Hann fór um Suðurland ríðandi, sigldi síðan flota sínum vestur fyrir land, tók land á Ísafirði, fór síðan norður fyrir og kom við á Akureyri og loks austur um með lokaáfanga á Seyð- isfirði. Hvarvetna sem Friðrik átt- undi fór kom hann fram við háa og lága sem jafningja sína, gaf sig að múgamönnum rétt sem embættis- mönnum. Hann var forvitinn um hagi fólks, alúðlegur og alþýðleg- ur. Víst er að móttökur þær sem hann fékk hér á landi hafa hlýj- að honum um hjartarætur. Sam- tímaheimildir danskar eru fullar af hrifningu, geðshræringum, yfir viðtökum. Enda fór svo að konung- ur hreyfði í för sinni sjálfstæðis- málum þjóðarinnar, nánast í blóra við ráðherra sína. En hann gaf íslenskum almenn- ingi annað sjálfstæði ekki minna að virði: hann veitti þeim tækifæri í samtakamætti að skarta öllu sínu með þeim árangri að þeir fengu hrós fyrir og gátu verið stoltir af: bara konungsvegurinn austur var gríðarstórt afrek og synd að hann skuli ekki betur varðveittur og nýttur. Margt af viðbúnaði hér var með séríslenskum hætti: til fundar við konung riðu bændur í Eyjafirði hó- preið til Akureyrar og sátu einung- is hvíta hesta. Er margt í lýsingum gestanna með sérstökum sakleys- isbrag. Því heimsókn konungs var ekki síður landkynning sem beind- ist einkum gagnvart Dönum sjálf- um og hefur vafalítið átt sinn þátt í hinni djúpstæðu lotningu sem hefur um langan aldur ríkt í Dan- mörku fyrir Íslandi, sögu og nátt- úru. Því er konungsheimsóknin björt minning þeim sem vilja rifja hana upp nú hundrað árum síðar. Sýningin í Þjóðarbókhlöðu verð- ur opnuð í dag af forseta Íslands og verður opin til 1. september. Landsbókasafn nýtur góðs af því en Þjóðminjasafn Íslands, Ljós- myndasafn Reykjavíkur, Þjóð- skjalasafn Íslands, Seðlabanki Ís- lands og Vegagerðin hafa lánað ljósmyndir og muni. Einnig eru munir á sýningunni sem eru í einkaeign. Þau sem hafa komið að undirbúningi sýningarinnar eru Auður Styrkársdóttir, Helgi Braga, Jökull Sævarsson og Mark Cohagen. Hönnuður sýningar- spjalda er Ólafur J. Engilberts- son, en sýningarstjóri er Emilía Sigmarsdóttir. Sýningin er styrkt af forsætisráðuneytinu og Dansk- íslenska viðskiptaráðinu. Myndlistartvíæringa er ekki eingöngu að finna í Feneyjum. Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir myndlistarmaður, sem leggur stund á meistaranám við lista- háskólann Villa Arson í Frakk- landi, tekur nú þátt í tvíæringn- um Nouvelle Biennale í Nice í Frakklandi. Tvíæringnum var komið á laggirnar árið 1967 af listamönn- unum Henri Matisse og Pierre Bonnard. Guðlaug Dröfn komst í úrslit í keppni sem kennd er við málarann Matisse en þátt- takendur voru rúmlega fimm- tíu málarar sem koma frá eða vinna í suðausturhluta Frakk- lands. Tvíæringurinn stendur til 10. júní. Í nafni málarans Matisse Verk Svavars á uppboðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.