Fréttablaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 68
Paul Newman tilkynnti fyrr
í þessum mánuði að hann
væri hættur að leika. Þar
með er einum merkasta
kafla í sögu Hollywood
lokið.
Newman hafði gefið það út fyrir
um ári síðan að hann hygðist hætta
afskiptum af kvikmyndaleik þegar
hann næði 82 ára aldri. Hinn 25.
maí rann sú stund upp. Newman
hafði tekið sína ákvörðun. Sagð-
ist ekki lengur geta sinnt sínu
starfi eftir bestu getu. „Ég er orð-
inn gleyminn og það er ekki gott í
þessu starfi,“ sagði leikarinn.
Þegar ungir leikarar í Hollywood
eru beðnir um að segja hver sé
þeirra helsti áhrifavaldur nefna
flestir Paul Newman. Og það eitt
og sér kemur fáum á óvart. Fáir
leikarar hafa notið jafn mikillar
velgengni á ferli sínum. Níu Ósk-
arsverðlaunatilnefningar segja
sína sögu þótt Newman hafi aðeins
einu sinni farið heim með styttuna
góðu, fyrir The Color Of Money.
Paul Newman fæddist í Cleve-
land árið 1925. Foreldrar hans ráku
íþróttavöruverslun í smábænum
Shaker Heights og Newman stóð á
bak við búðarborðið á sínum yngri
árum. „Ég fór ekki að leika vegna
einhverrar innri ástríðu. Ég fór að
leika til að sleppa við íþróttavöru-
verslunina,“ sagði Newman eitt
sinn. Hann gekk síðan í herinn og
þjónaði landi sínu í seinni heims-
styrjöldinni og reyndi að brjótast
til frama sem orrustuflugmaður en
var hafnað sökum litblindu sinnar.
Eftir að ferillinn innan hersins
brotlenti sótti Newman um í leik-
listardeild Yale-háskólans og lærði
fræði sín hjá Lee Strasberg í New
York. Þegar námi lauk vildi New-
man ekki dveljast of lengi í Stóra
eplinu og eftir nokkrar sýningar
á Broadway lá leið hans til Holly-
wood. „Hérna er enginn friður til
að læra,“ lét Newman hafa eftir
sér um New York.
Leikarinn vakti strax mikla at-
hygli fyrir þokkafullt útlit og hefði
eflaust getað rakað inn háum upp-
hæðum fyrir hlutverk hjartaknús-
ara sem voru á hverju strái á sjötta
áratugnum. En Newman neitaði
öllum slíkum handritum og reyndi
frekar að komast í góðar kvik-
myndir sem þó skiluðu ekki jafn
miklu í kassann. Þegar á hólminn
var komið reyndist Newman enda
einn örfárra leikara sem lifðu af
miklar kynslóðabreytingar í byrj-
un sjöunda áratugsins.
Þótt Newman hafi verið mörgum
kvikmyndaleikurum fyrirmynd
hvað leikinn varðar er það ekki
síst líf leikarans utan sviðsljóssins
sem hefur aflað honum virðingar
meðal samstarfsfélaga sinna. New-
man hefur verið kvæntur leikkon-
unni Joanne Woodward í hartnær
hálfa öld, sem þykir einstakur líf-
tími hjónabands í Hollywood. Þau
kynntust í gegnum sameiginlegan
kunningja og unnu náið á Broad-
way um miðjan sjötta áratuginn.
Newman var þá reyndar kvæntur
Jackie Witte en fór fram á skilnað
eftir að hann kynntist Woodward.
Þau giftu sig síðan árið 1958 í Las
Vegas. Þegar Newman var spurð-
ur af hverju hann hefði aldrei látið
heillast af glamúrlífinu og stóð-
lífi kvikmyndaborgarinnar svar-
aði leikarinn: „Af hverju að fá sér
hamborgara þegar þú átt nauta-
steik heima hjá þér?“
Newman og Woodward búa
fjarri skarkala Hollywood á sveita-
býli sínu í Connecticut og hafa að
mestu leyti einbeitt sér að góð-
gerðarmálum hin síðari ár. New-
man stofnaði meðal annars mat-
vælafyrirtækið Newman‘s Own
sem flestir Íslendingar ættu að
þekkja en allur ágóði af sölu þeirr-
ar vöru rennur til styrktar lang-
veikum börnum. Hafði fyrirtæk-
ið gefið yfir tvö hundruð millj-
ónir dollara í maí árið 2007. Auk
þess reka Newman og Woodward
sumarbúðir fyrir langveik börn og
meðferðarheimili fyrir eiturlyfja-
sjúklinga en sonur Newmans af
fyrra hjónabandi, Scott, lést sökum
ofneyslu árið 1978.
Þrátt fyrir að Newman hafi að
mestu leyti einbeitt sér að leik í
kvikmyndum liggur ástríða hans
annars staðar. Newman er for-
fallinn fíkill í hvers kyns aksturs-
íþróttir og hefur keppt með ágæt-
is árangri í kappakstri. Þegar aðrir
leikarar vilja fá kokka, líkams-
ræktarþjálfara eða hárgreiðslu-
fólk á tökustað hefur Newman
krafist þess að geta stigið á bensín-
gjöfina á milli taka.
Newman hefur verið mjög
pólitískt virkur, unnið mikið með
Demókrataflokknum og barðist
hatrammlega gegn stefnu Nixons
forseta. Enda fór það svo að nafn
Newmans var á óvinalista Nixons
þegar hann var gerður upptækur
eftir að Watergate-hneykslið komst
í hámæli.
Þegar kvikmyndatímaritið
Empire bað lesendur sína fyrir
nokkrum árum um að velja fjóra
guði í kvikmyndageiranum sem
enn væru meðal okkar voru Jack
Nicholson, Al Pacino, Marlon
Brando og Paul Newman valdir.
Brando er farinn yfir móðuna miklu
og nú hefur annar guð ákveðið að
leggja leiklistina á hilluna.
Kvikmyndin 28 weeks later var
frumsýnd í Háskólabíói, Regnbog-
anum og Borgarbíói Akureyri í
gær en hún er sjálfstætt framhald
hryllingsmyndarinnar 28 Days
Later. Með aðalhlutverkið fara
þau Robert Carlyle og Catherine
McCormack en leikstjóri er hinn
spænski Juan Carlos Fresnadillo.
28 Weeks Later tekur upp þráð-
inn sex mánuðum eftir að vírusinn
skæði hafði nánast lagt England í
rúst. Íbúarnir taka gleði sína á ný
en vísindamenn virðast hafa van-
metið styrk vírussins og hann fer
að láta á sér kræla á ný í London
en með enn öflugri hætti. Íbúarnir
þurfa því aftur að kljást við upp-
vakninga.
Heimsendir í nánd
Heimildarkvikmynd Þorsteins
Jónssonar um Ástþór Skúlason
verður sýnd í Háskólabíói á morg-
un klukkan sex. Myndin hefur
vakið mikla athygli og var meðal
annars sýnd á heimildarmyndahá-
tíðinni Skjaldborg sem fram fór
um helgina.
Myndin lýsir lífsbaráttu Ást-
þórs sem hefur alltaf dreymt um
að verða bóndi. Á málinu er þó
einn hængur því Ástþór er lamað-
ur fyrir neðan mitti og fer ferða
sinna í hjólastól. Skynsemin segði
flestum að flytjast á mölina, fá sér
íbúð í blokk og vinnu fyrir fram-
an tölvuskjá. Sveitin heldur hins
vegar sterkt í hann og Ástþór
leggur ekki árar í bát. Þótt valið
þýði óyfirstíganlegar hindranir
ætlar hann að gera það sem nauð-
synlegt er til að geta búið á sinni
jörð og rækja þau störf sem þar er
að sinna.
Sannur sigurvegari
Marilyn Monroe verður alltaf mesta stjarnan
4