Fréttablaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 82
FH-ingar eru á góðri leið
með því að leggja grunninn að Ís-
landsmeistaratitlinum í fyrri um-
ferð alveg eins og undanfarin tvö
ár. Eftir 2-0 sigur á Fram í Laugar-
dalnum á þriðjudagskvöldið er
ljóst að Hafnarfjarðarliðið er
búið að ná sögulegum árangri.
FH hefur nefnilega fullt hús eftir
hraðmótið og er komið með fjög-
urra stiga forskot á næsta lið sem
er Valur.
Þetta er aðeins í áttunda sinn
í 31 árs sögu tíu liða efstu deild-
ar sem að lið vinnur fjóra fyrstu
leiki sína og eru FH-ingar bæði
fyrsta liðið til þess að gera það tvö
ár og nú þrjú ár í röð. Af fyrri sjö
liðum sem hafa ná slíkri drauma-
byrjun hafa fjögur unnið Íslands-
meistaratitilinn um haustið og tvö
lent í 2. sæti. Eina liðið til að missa
fótana eftir slíka byrjun var lið
Keflavíkur sem vann sex fyrstu
leiki sína sumarið 1997 en endaði
síðan mótið í 6. sæti.
Árangur FH-liðsins er ekki síst
athyglisverður fyrir þær sakir að
liðið hefur aðeins spilað 3 af þess-
um 12 leikjum á heimavelli sínum
í Kaplakrika. Öll árin hefur liðið
þurft að byrja mótið á tveimur úti-
leikjum.
Það var ekki alveg sama staða í
upphafi sumarsins 2004 þegar FH-
ingar unnu sinn fyrsta Íslands-
meistaratitil. FH vann þá KR 1-0 í
fyrsta leik en lék síðan næstu þrjá
leiki án þess að ná að vinna, tapaði
0-1 fyrir Fylki og gerði jafntefli
við Keflavík og Víking.
Daði Lárusson og Freyr Bjarna-
son eru einu leikmenn FH sem
hafa spilað allar 1080 mínúturn-
ar í hraðmótinu þessi þrjú tímabil.
Freyr er enn fremur eini leikmað-
urinn sem hefur verið meðal efstu
manna í einkunnagjöf Fréttablaðs-
ins öll þrjú árin.
Nýju mennirnir eru öll árin að
falla mjög vel inn í leik liðsins
sem sést á því að í öll skiptin er
nýr leikmaður liðsins efstur í ein-
kunnagjöf Fréttablaðsins.
Sumarið 2005 voru það félag-
arnir Tryggvi Guðmundsson og
Auðun Helgason sem báðir voru að
koma heim úr atvinnumennsku, í
fyrra var Sigurvin Ólafsson meðal
þeirra fjögurra bestu eftir að hafa
komið frá KR og í ár er það Matthí-
as Guðmundsson sem hefur spilað
best að mati íþróttafréttamanna
Fréttablaðsins en hann kom til FH
frá Val fyrir þetta tímabil.
Tryggvi Guðmundsson hefur
byrjað öll tímabilin vel og er alls
með 12 mörk í þessum 12 leikjum.
Hann var einn markahæstur
sumrin 2005 og 2006 en situr nú í
efsta sætinu með Matthíasi Guð-
mundssyni sem hefur skorað í
fjórum fyrstu deildarleikjum
sínum í FH-búningnum.
Þegar tölfræði FH-liðsins er
borin saman í fyrstu fjórum um-
ferðunum þessi þrjú tímabil virðist
sem sóknarþungi liðsins sé meiri í
ár en undanfarin sumur. FH-liðið
hefur þannig náð mun fleiri skot-
um á mark í ár, er að fá fleiri horn
og ganga oftar í rangstöðugildrur
andstæðinganna.
Andstæðingar FH hafa líka
verið að ná færri skotum á mark
með hverju árinu og hafa sem
dæmi aðeins náð 13 skotum á FH-
markið í fyrstu fjórum leikjum
þessa tímabils. Í töflum með grein-
inni má sjá samanburð á byrjun-
um FH-inga þessi þrjú tímabil.
FH-ingar hafa fengið öll tólf stigin í boði í hraðmótinu undanfarin þrjú tímabil og eru komnir með gott
forskot á toppi Landsbankadeildar karla alveg eins og í fyrra. Tryggvi Guðmundsson og Freyr Bjarnason
hafa verið efstir á blaði öll þessi þrjú ár og nýju mennirnir koma alltaf mjög sterkir til leiks.
Norsku meistararn-
ir í Rosenborg hafa áhuga að fá
Stefán Gíslason, leikmann Lyn, í
sínar raðir. Félagið hefur þegar
haft samband við Lyn og feng-
ið leyfi til að ræða við Stefán og
umboðsmann hans, Arnór Guð-
johnsen. „Það er rétt, Rosenborg
hefur áhuga sem og fleiri lið víða
úr Evrópu,“ sagði Arnór. „Stefán
hefur staðið sig gríðarlega vel og
munum við meta stöðuna vel og
vandlega í framhaldinu.“
„Þetta er allt enn á frumstigi,“
sagði Stefán við Fréttablaðið í
gær. „Rosenborg er stórt félag og
það eitt og sér er viðurkenning að
það sýni mér áhuga.“
Stefán segir að það kæmi sér
ekki á óvart ef félagið reyndi að fá
sig áður en tímabilinu lyki. Samn-
ingur Stefáns við Lyn rennur út í
haust og vilji félagið fá eitthvað
fyrir hann þarf það að selja Stef-
án fyrir þann tíma. Félagaskipta-
glugginn í Noregi opnar í júlí.
Sjálfur hefur Stefán þó áður sagt
að hann vilji prófa sig í öðru landi
eftir að tímabilinu ljúki í Noregi.
Það gæti þrátt fyrir það ekki
reynst slæmur leikur að fara til
Rosenborg. „Liðið tekur þátt í
undankeppni Meistaradeildar-
innar í haust sem yrði stór plús
fyrir mig. Það yrði vissulega góð
auglýsing fyrir mig að spila með
Rosenborg.“
Lyn er sem stendur í áttunda sæti
deildarinnar og hefur fengið flest
mörk allra liða í deildinni á sig,
fimmtán talsins. Um síðustu helgi
vann liðið 4-3 sigur á Tromsö.
„Við getum ekki alltaf unnið
þegar við fáum þrjú mörk á okkur
í einum leik. Þetta hefur verið
okkar stærsta vandamál til þessa,“
sagði Stefán.
Rosenborg hefur áhuga á Stefáni
Ellefu íslenskir knatt-
spyrnumenn komu við sögu í átt-
undu umferð norsku úrvalsdeild-
arinnar sem lauk um liðna helgi.
Það er mesta þátttaka Íslendinga
á tímabilinu og er vafalaust með
því mesta sem hefur gerst hing-
að til.
Tólfti maðurinn, Birkir Bjarna-
son hjá Viking, sat á bekknum hjá
sínu liði en alls leika fjórtán Ís-
lendingar í norsku úrvalsdeild-
inni. Hinir tveir, Viktor Bjarki
Arnarsson hjá Lilleström og
Höskuldur Eiríksson, Viking, eru
meiddir.
Kristján Örn Sigurðsson fékk
hæstu meðaleinkunn fjögurra
stóru fjölmiðlanna í Noregi og
Garðar Jóhannsson kom næst-
ur. Báðir skoruðu þeir í sínum
leikjum en Garðar var að þreyta
frumraun sína í deildinni.
Ellefu Íslend-
ingar spiluðu
Ekkert handknattleiks-
lið verður sent frá ÍBV í meist-
araflokki kvenna á næsta tíma-
bili.
Eftirfarandi yfirlýsing frá ÍBV
birtist á heimasíðu félagsins í
gær. „Handknattleiksráð ÍBV
hefur tekið þá ákvörðun að senda
ekki lið til keppni á Íslandsmót-
inu 2007-2008 í meistaraflokki
kvenna. Ákvörðunin er tekin
eftir að allir möguleikar á þátt-
töku höfðu verið kannaðir. Stað-
reyndin er því miður sú að enginn
leikmaður á meistaraflokksaldri
verður í Vestmannaeyjum næsta
vetur.“
Ekkert kvenna-
lið frá ÍBV
Á heimasíðu KSÍ má sjá
frétt um að síðasti dagur félaga-
skipta fyrir samningsleikmenn
erlendis sé í dag. Þetta á þó að-
eins við leikmenn sem skráðir eru
sem atvinnumenn en með því að
haka við áhugamaður í stað at-
vinnumanns á félagaskiptaeyðu-
blaðinu má áfram fá félagaskipti
fyrir erlenda leikmenn til Íslands.
Magnús Gylfason, þjálfari Vík-
ings, er einn þeirra sem vonast
til að bæta við sig erlendum leik-
manni en stór og sterkur fram-
herji frá Serbíu mun hugsanlega
ganga í raðir félagsins. Magnús
sagði við Fréttablaðið í gær að
enn væri verið að taka ákvörðun
um það hvort samið yrði við leik-
manninn sem æfði með Víkingum
í vikutíma. „Mér leist vel á hann,“
sagði Magnús.
Hægt að semja
með smugu