Fréttablaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 70
Þáttaröðin Matur og lífsstíll, í um-
sjón Valgerðar Matthíasdóttur,
hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld.
Þar sækir Vala þekkta Íslendinga
heim og fær þá til að elda uppá-
haldsréttina sína fyrir áhorfend-
ur. Þættirnir verða á dagskrá
á fimmtudagskvöldum í sumar
klukkan 20.05 og munu uppskrift-
ir úr þeim birtast á síðum Frétta-
blaðsins. Það er tónlistarmaðurinn
ástsæli Bubbi Morthens sem ríður
á vaðið.
„Það sem Bubbi sýnir okkur í
fyrsta þættinum er annars vegar
kartöfluréttur, ofboðslega góður,
fljótlegur og hollur, og svo spelt-
brauð sem tekur bara nokkrar mín-
útur að búa til og er alveg ótrúlega
gott,“ sagði Vala, sem segir Bubba
sýna á sér nýja hlið. „Mér sýnist
hann ansi liðtækur í eldhúsinu.
Svo hefur hann náttúrlega miklar
skoðanir á þessu eins og öðru, það
er það sem er svo skemmtilegt við
hann,“ sagði hún og hló við.
Þurrefnum blandað saman í
skál. AB-mjólk og heitu vatni
blandað varlega saman við. Sól-
blómafræjum og smá salti, ef vill,
bætt í og öllu blandað varlega
saman. Hrærið sem minnst í deig-
inu svo brauðið verði létt í sér.
Setjið deigið í smurt brauðform
og bakið í 25-30 mínútur við 200
gráður. Það má einnig baka í bollu-
formi. Bubbi notar aðrar krydd-
tegundir í brauðið til að breyta
til. Hann mælir svo með íslensku
smjöri og sjávarsalti á heitar boll-
urnar.
Bollur Bubba í Mat og lífsstíl
Í sumarsól …
… er einhvern veginn miklu
skemmtilegra að borða ávexti en á
niðdimmum vetri. Fersk ber hrúg-
ast nú inn í búðirnar og það er um
að gera að nýta sér það. Prófið líka
brómber og hindber auk jarðarberja
og bláberja.
Íslenskt lambakjöt hreinn viðbjóður
Anna Bergljót Thoraren-
sen hefur lítinn tíma til
eldamennsku þessa dag-
ana. Þegar tími gefst til er
þjóðarréttur fjölskyldunnar
þó í uppáhaldi.
„Þetta er þjóðarréttur okkar
í Bakkahjalla 10, fjölskyldu-
maturinn,“ sagði Anna Berg-
ljót, sem iðulega er kölluð Anna
Begga, um uppskriftina sem hún
deilir með lesendum Fréttablaðs-
ins í dag. „Ég man eftir mér mjög
lítilli að borða þennan mat. Við
erum öll jafnhrifin af þessu, fjöl-
skyldan,“ sagði hún.
Anna Begga hefur gaman af
að elda, en tími til að stunda
það áhugamál er þó af skornum
skammti þessa dagana. „Taco-
kjúklingasúpa er til dæmis í
uppáhaldi hjá mér, og mér finnst
fiskréttir mjög skemmtilegir
líka,“ sagði Anna Begga. „Flest
allt sem mér finnst gott þarf
að malla lengi,“ bætti hún við.
Þjóðarrétturinn er sömu tegund-
ar. „Maður þarf að gefa honum
eins langan tíma og maður getur,
hann verður alltaf betri og betri,“
sagði Anna Begga, „og svo er
hann eiginlega enn betri upphit-
aður.“
Hún er einn liðsmaður leik-
hópsins Lottu, sem sýnir Dýrin
í Hálsaskógi í Elliðaárdalnum á
miðvikudögum í sumar. Hún fer
meðal annars með hlutverk Hér-
astubbs bakara í verkinu góð-
kunna og fannst því ekki annað
hægt en að láta piparkökuupp-
skriftina fljóta með. Sjálf bakar
Anna Begga ekki mikið frá degi
til dags. „En ég hef prófað Hálsa-
skógaruppskriftina. Hún bragð-
ast ekki vel. Þetta er eiginlega
ekkert eins og kökur á bragðið,
en það var samt gaman að prófa,“
sagði hún og hló við. Upplýsing-
ar um sýningartíma og fleira má
nálgast á 123.is/dyrinihalsaskogi.
Spagettíið er látið bullsjóða
í opnum potti. Það er bann-
að að brjóta það, því það er svo
skemmtilegt að borða það heilt.
Hakkið er brúnað á pönnu og gul-
rótum, lauk og hvítlauk bætt í.
Látið steikjast aðeins. Niðursoðn-
um tómötum, tómatpúrru og kjöt-
krafti bætt í. Að lokum er réttur-
inn kryddaður.
Látið malla eins lengi og kostur
er. Það má bæta vatni á pönnuna
ef sósan verður of þykk.
Uppskrift: Speltbrauð
5 dl lífrænt grófmalað
spelt
1 dl sólblómafræ, sesam-
fræ eða kókosmjöl
3 tsk. vínsteinslyftiduft
½-1 tsk. sjávarsalt
1½ dl AB-mjólk eða soja-
mjólk
1½ dl sjóðandi heitt vatn
Uppskrift: Þjóðarrétturinn
400 g spagettí
400 g nautahakk
3-5 gulrætur, skornar í bita
2 laukar, saxaðir
5 hvítlauksrif, söxuð
1 stór dós niðursoðnir tóm-
atar
1 lítil dós tómatpúrra
1 stór teningur kjötkraftur
kryddað með óreganó,
timjan, salti og pipar.
Hátíð hafsins gengur í garð um
helgina og við Reykjavíkurhöfn
verður mikið um að vera. Í tilefni
af hátíðinni verða tíu veitingastað-
ir í miðborginni með sérstaka mat-
seðla helgaða fiskiveislu. Þeir eru
Við Tjörnina, Hornið, Apótekið,
Einar Ben, Salt, Þrír frakkar,
Fjalakötturinn, Tveir fiskar, Vín
og skel og DOMO. Allir matseðlar
eru undir 5.000 krónum.
Fiskiveislan mæltist vel fyrir
í fyrra, þegar hún var haldin í
fyrsta sinn. Á matseðlum veit-
ingahúsanna má finna rétti á
borð við hunangsgljáðan ís-
lenskan demantssmokkfisk,
engifermarineraðan hlýra og
pestóhjúpaðan steinbít með
humarsósu, svo örfáir réttir
séu nefndir.
Utan fiskiveislunnar munu
veitingastaðir við höfnina
bjóða gestum og gangandi
sérstök tilboð. Þar á meðal
eru Icelandic fish and chips,
Sushismiðjan, Sjávarbarinn
og Sægreifinn, sem býður
rómaða humarsúpu sína á há-
tíðartilboði.
Hátíðarveisla fyrir
fiskunnendur
Fyrir þá sem eru á leið til
Skandinavíu eða eru búsettir á
þeim slóðum er ekki úr vegi að
sækja Stokkhólm heim á næstu
dögum. Frá 1. til 6. júní stend-
ur þar yfir viðamikil matarveisla
sem um hálf milljón gesta sækir
heim á ári hverju. Matarveisl-
an kallast Smaka på Stockholm,
eða Bragðaðu á Stokkhólmi, og
fer fram í almenningsgarðinum
Kungsträdgården.
Um þrjátíu krár og veitinga-
staðir í borginni bjóða þar upp
á yfir tvö hundruð mismunandi
rétti, kokkar etja kappi og vín og
bjór flæðir um garðinn. Viðburð-
urinn hefur átt sér stað á hverju
ári síðastliðin fimmtán ár og er sá
stærsti sinnar tegundar í Svíþjóð
og þótt víðar væri leitað.
Smakk-
veisla Svía