Fréttablaðið - 31.05.2007, Blaðsíða 78
Getur eitthvert lið veitt FH keppni?
Teitur Þórðarson situr
örugglega í heitasta þjálfarastóln-
um í Landsbankadeild karla því lið
hans KR er eitt á botni deildarinn-
ar með aðeins eitt stig eftir fjórar
fyrstu umferðirnar.
KR-liðið hefur auk þess verið
gagnrýnt fyrir marklausan og
leiðinlegan bolta og ekki einu sinn
endurkoma Rúnars Kristinssonar
hefur náð að lífga við máttalausa
sóknartilburði liðsins.
KR-liðið hefur því aðeins náð í
8,3% stiga í boði í þessum fyrstu
fjórum umferðum og ef sagan er
skoðuð eru miklar líkur á því að
Teitur Þórðarson klári ekki tíma-
bilið því þetta er versta byrjun
vesturbæjarliðsins í 30 ár.
Í þremur af fjórum verstu byrj-
unum KR í tíu liða deild hefur
þjálfarinn fokið á tímabilinu og í
þeirri fjórðu féll liðið niður í B- deild. Sex þjálfarar hafa ekki
klárað tímabil með KR í tíu liða
deild og allir voru með mun betri
árangur á þeim tímapunkti þegar
þeir voru látnir fara eða sögðu
upp.
Enginn þjálfari KR í tíu liða
efstu deild hefur verið látinn fara
eftir aðeins fjóra leiki en næst því
komst Lúkas Kostic sem var rek-
inn eftir fimm leiki fyrir tíu árum.
KR-liðið var þá í 6. sæti deildar-
innar með sex stig en hafði gert
jafntefli við þrjú af neðstu liðun-
um. Ákvörðun KR-stjórnarinn-
ar kallaði fram verkfallsaðgerð-
ir hjá KR-ingum, sem voru mjög
óánægðir með að Lúkas hefði
verið látinn fara.
Pétur Pétursson sagði síðan upp
störfum eftir sjö leiki árið 2001
en þessir tveir eru þeir einu sem
hafa hætt með KR-liðið í fyrri um-
ferð. Hinir fjórir hafa allir fengið
að klára fyrri umferðina.
Enginn þjálfari hjá KR hefur
verið rekinn eftir fjóra leiki
SMS
LEIKUR
SENDU SMS JA 28F
Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ BÍÓMIÐA!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR,
DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR
OG MARGT FLEIRA!
Frumsýnd 30. maí
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
V
in
n
in
g
ar
ve
rð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
BLÓÐUGT FRAMHALD AF 28 DAYS LATER
Færeyingurinn Simun
Eiler Samuelsen er ein af stjörnum
Íslandsmótsins það sem af er.
Þessi skemmtilegi knattspyrnu-
maður hefur gert varnarmönnum
andstæðinganna lífið leitt í upp-
hafi sumars og sýnt snilldartil-
þrif á köflum. Hann hefur þegar
skorað þrjú mörk í deildinni, jafn
mörg og á síðasta tímabili.
„Ég var ánægður með leikinn
og mína frammistöðu. Ég get ekki
neitað því og það gleður mig að fá
þessa útnefningu,“ sagði Færey-
ingurinn lítillátur en hann var ný-
kominn til móts við félaga sína í
færeyska landsliðinu sem tekur
á móti heimsmeisturum Ítala
á laugardag. „Það þýðir ekkert
að dvelja við þetta heldur halda
áfram að spila vel. Það er frábært
að spila með Keflavíkurliðinu því
við viljum halda boltanum á jörð-
inni og spila góðan fótbolta. Okkur
tekst það líka ágætlega þannig að
við skemmtum okkur á vellinum.“
Simun neitar því ekki að hug-
urinn stefni út fyrir Ísland rétt
eins og hjá öðrum leikmönnum.
Draumaáfangastaðurinn hans er
sá sami og hjá flestum íslenskum
leikmönnum – England.
„Ég get ekki gert annað en haldið
áfram að gera mitt besta og ef ég
spila vel er aldrei að vita nema ein-
hverjar dyr opnist. Maður fer ekk- ert bara til Englands og velur sér lið,“ sagði Simun og hló dátt. „Ég
gæti alveg hugsað mér að spila í
neðri deildunum í Englandi enda
spilaður flottur fótbolti þar líka.
Þetta snýst líka um heppni.“
Simun býr ásamt færeyskri
unnustu í Keflavík en hún flutti til
hans fyrir skömmu. Móðir hans er
einnig flutt í Bítlabæinn og ætlar
að prófa að búa þar í eitt ár. For-
eldrar hennar búa nefnilega í
Njarðvík og stórfjölskyldan er
því sameinuð í Reykjanesbænum.
Ætli hluti af góðri spilamennsku
Simuns sé sá að honum líður betur
þar sem hans nánustu eru komnir
til Íslands?
„Ég veit það ekki en að sjálf-
sögðu líður manni betur með ætt-
ingjana hjá sér. Það hefur eflaust
einhver áhrif. Mér líður annars
mjög vel í Keflavík. Ég bjó í 1.400
manna bæ í Færeyjum þannig að
þetta er stór munur fyrir mig.
Veðrið er svipað en aðeins meiri
þoka í Færeyjum,“ sagði Simun
léttur enda bjartsýnn á sumarið.
„Við ætluðum að ná níu stigum
í hraðmótinu en það náðist ekki
alveg. Við erum súrir að hafa ekki
fengið neitt stig gegn FH. Við
getum betur og ætlum að gera
betur. Keflavík hefur fulla burði
til þess að blanda sér í toppbar-
áttuna af alvöru,“ sagði Simun
Samuelsen.
Færeyingurinn Simun Eiler Samuelsen er leikmaður 4. umferðar Landsbankadeildar karla að mati Frétta-
blaðsins. Simun fór á kostum gegn HK suður með sjó og er búinn að skora þrjú mörk í deildinni.
Yngvi Gunnlaugsson
er tekinn við af Ágústi Björgvins-
syni sem þjálfari Íslands- og
bikarmeistara Hauka í Iceland
Express deild kvenna. Yngvi
skrifaði undir tveggja ára samn-
ing í gær og þá gekk líka Telma
Björk Fjalarsdóttir til liðs við
Haukanna frá Breiðabliki.
Yngvi hefur unnið fjölmarga
titla með yngri flokkum Hauka
undanfarin sex ár. Hann þjálfaði
lið Breiðabliks síðasta vetur en
var aðstoðarþjálfari Haukaliðsins
frá 2003 til 2006. Yngvi gerði 9.
og 10. flokk kvenna hjá Haukum
að tvöföldum Íslandsmeisturum
í vetur og hefur sem skilað fimm
Íslandsmeistaratitlum til félags-
ins undanfarna þrjá vetur.
Telma Björk, sem er 23 ára
miðherji, var með 11, stig og 10,9
fráköst að meðaltali með Breiða-
bliki í vetur.
Yngvi þjálfar og
Telma spilar