Fréttablaðið - 31.05.2007, Qupperneq 6
www.lyfja.is - Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
3
75
59
0
5/
07
Acidophilus Bifidus + FOS
Mjólkursýrugerlar, góðir fyrir meltinguna.
Champignon DETOX + FOS og Spirulina
Hreinsaðu líkamann að innan
- minnkar óæskilega lykt.
Milk Thistle DETOX
Hreinsaðu líkamann að innan.
Psyllium Husk Fibre
Rúmmálsaukandi, gott fyrir
meltinguna.
30% afsláttur
af Vega vítamínum
Finnst þér að unglingar eigi að
vinna í sumarfríinu?
Notar þú strætó einu sinni í
viku eða oftar?
Tuttugu og sex ára karl-
maður, Hlynur Freyr Kristjánsson,
hefur verið dæmdur í tveggja og
hálfs árs fangelsi fyrir kynferðis-
brot gegn tveimur stúlkum, fimm
og níu ára, vörslu barnakláms,
fíkniefnabrot og umferðarlaga-
brot. Hlynur var sýknaður af
tveimur ákærum um kynferðisbrot
gegn tveimur börnum til viðbótar.
Ákæran var í átta liðum, þar af
fimm fyrir kynferðisbrot. Það
alvarlegasta átti sér stað í janúar í
Vogahverfinu. Þá lokkaði hann
fimm ára stúlku inn í kofa á leik-
velli undir því yfirskyni að hann
ætlaði að gefa henni sleða sem þar
væri geymdur og lét hana snerta
getnaðarlim sinn og hafa við sig
munnmök.
Hlynur neitaði sök í þeim lið en
viðurkenndi að hafa verið á leik-
vellinum og hitt stúlkuna. Stúlkan
var hins vegar mjög nákvæm og
greinargóð í vitnisburði sínum, og
þótti dómnum „óraunhæft að gera
ráð fyrir því að svo ungt barn
[lýsti] ítrekað atburðum eins og
hún gerði án þess að þeir hafi raun-
verulega átt sér stað.“ Var maður-
inn því sakfelldur fyrir þann lið.
Hlynur var einnig ákærður fyrir
að hafa sýnt annarri fimm ára stúlku
getnaðarlim sinn á leikvelli í desem-
ber, en var sýknaður af því. Hlynur
kvaðst á þeim tíma ekki hafa stund-
að þá óreglu sem hann hóf um ára-
mót, auk þess sem engin stúlknanna
þriggja sem á leikvellinum voru
umræddan dag þekkti Hlyn við sak-
bendingu. Ákæruvaldið byggði
sönnunarfærsluna á því að atburð-
urinn líktist svo mjög brotinu gegn
fimm ára stúlkunni í janúar. Það
þótti ekki nægja til sakfellingar og
þótti ósannað að maðurinn hefði
verið á svæðinu þennan dag.
Þá var hann ákærður fyrir að
hafa sama dag og hann braut gegn
fimm ára stúlkunni kallað tvær
stúlkur, níu og tólf ára, að bíl sínum,
sýnt þeim klámfengnar myndir og
spurt þá eldri hvort hún vildi sjá
lim hans. Hann játaði að hafa sýnt
báðum klámmynd, en neitaði því
síðastnefnda. Hann var dæmdur
fyrir brotið gegn þeirri níu ára, en
sýknaður af hinu, annars vegar
vegna þess að ljóst þótti að myndin
sem hann sýndi eldri stúlkunni
hefði verið af konum íklæddum
bikiníi, sem dómnum þótti ekki
klámfengið, og hins vegar vegna
óskýrs framburðar stúlkunnar.
Þá var hann dæmdur fyrir vörslu
yfir 1.100 barnaklámmynda, og
fyrir akstur án ökuréttinda og
undir áhrifum lyfja.
Hann var jafnframt dæmdur til
að greiða fimm ára stúlkunni 800
þúsund krónur í bætur, og þeirri
níu ára hundrað þúsund. Dómurinn
var kveðinn upp í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Málið dæmdu
Guðjón St. Marteinsson, Ásgeir
Magnússon og Sigríður Ólafsdóttir.
Neyddi fimm ára
stúlku til munnmaka
Maður dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur
stúlkum í Vogunum, vörslu barnakláms og fleiri brot. Lokkaði fimm ára stúlku
inn í kofa á leikvelli með loforði um sleða. Sýknaður af ákærum um barnaníð.
Um 180 manns við Kárahnjúka, í
Norðfirði og á Landspítalanum verða prófaðir vegna
hættu á berklasmiti, í kjölfar þess að portúgölsk
stúlka greindist með sjúkdóminn á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað.
Stefán Þórisson, læknir á Egilsstöðum, telur ekki
mikla hættu á því að sjúklingurinn hafi smitað
samstarfsfólk sitt eða hjúkrunarstarfsmenn. Hins
vegar sé allur varinn allur góður.
„Ef einhver veikist af berklum hjá manni fer fram
mat á því hvort smithættan sé mikil eða lítil. Þá er
gert ákveðið húðpróf á fólki í kringum þann veika.
Síðan er lesið af því eftir tvo til þrjá daga. Það segir
okkur hver staðan er á því fólki í dag. Svo þarf að
endurtaka prófið eftir tvo mánuði til að vita hvort
einhver hafi smitast af þessum sjúklingi,“ segir
Stefán. Endanlegrar niðurstöðu er því ekki að vænta
fyrr en þá.
Búið er að taka sýni af starfsfólki sjúkrahússins í
Neskaupstað og heilbrigðisstarfsmenn við Kára-
hnjúka munu prófa starfsfólk þar á næstu dögum.
Um 180 manns í berklapróf
Portúgalski
sendiherrann João António da
Silveira de Lima Pimentel kemur
til landsins í dag, að sögn Helgu
Láru Guðmundsdóttur, ræðis-
manns Portúgals á Íslandi.
Sendiherrann mun rannsaka hvað
sé hæft í umfjöllun portúgalskra
fjölmiðla um aðbúnað verkamanna
við Kárahnjúka.
Þar hefur því meðal annars verið
haldið fram að Portúgalar fái lægri
laun en Ítalir, að farið sé með þá
eins og þræla og aðstæður séu allar
hinar verstu.
Impregilo neitar þessu og segir
eitt yfir alla ganga við Kárahnjúka.
Sendiherrann
kemur í dag
Fulltrúar Íslenskrar
erfðagreiningar afhentu í gær
Námsmatsstofnun gögn og mæli-
tæki til greiningar á einhverfu.
Gögnin eru meðal annars
nákvæmir spurningalistar til
skimunar og greiningar á ein-
hverfurófi og þykja þeir veita
einna haldbestu svör sem fáanleg
eru um ástand barna. Íslenska
útgáfan er afrakstur rannsókna
Íslenskrar erfðagreiningar en
fyrirtækið þýddi og staðfærði
gögnin í samstarfi við Greiningar-
stöð ríkisins og Barna- og ungl-
ingadeild Landspítalans. Fagfólk
sem vinnur að málefnum einhverf-
ra getur nálgast greiningartækin
hjá Námsmatsstofnun.
Miklir biðlistar hafa myndast
hjá Greiningarstöð ríkisins. Frétta-
blaðið hefur greint frá því að nú
bíði 270 börn greiningar en biðin
er orðin um tvö ár meðal leikskóla-
barna og þrjú ár meðal grunn-
skólabarna. Skimunartækið sem
er meðal þeirra sem notuð eru er
talið einfalda forgangsröðun barna
fyrir greiningu. „Biðlistarnir eiga
þó ekki eftir að styttast nú í bráð.
Langtímasjónarmið okkar er þó að
með því að fleiri læri þær aðferðir
sem viðhafðar hafa verið á Grein-
ingarstöðinni dreifist álagið og
með því styttist biðin,“ segir Evald
Sæmundsen, sálfræðingur hjá
Greiningarstöð ríkisins. Hann
segir að skimunartækin geri svo
kleift að finna börn sem þurfi á
aðstoð fyrr en áður.
Námsmatsstofnun hefur umsjón
með uppfærslum og þjálfun við
notkun mælitækjanna.
Ný gögn auðvelda greiningar