Fréttablaðið - 31.05.2007, Page 10
Lúðvík Bergvinsson
var í gær kjörinn formaður
þingflokks
Samfylkingar-
innar.
Hann tekur
við embættinu
af Össuri
Skarphéðins-
syni.
Steinunn
Valdís Óskars-
dóttir var
kjörin varafor-
maður þingflokksins og Árni
Páll Árnason ritari hans.
Lúðvík þing-
flokksformaður
Hugo Chavez, forseti
Venesúela, lætur mótmæli þúsunda
landsmanna sinna sem vind um
eyru þjóta og segist hafa verið í
fullum rétti að loka einkarekinni
sjónvarpsstöð um síðustu helgi. Nú
hótar hann því að loka annarri sjón-
varpsstöð, sem hann segir hafa
hvatt fólk til að ráða sig af dögum.
„Ég mæli með því að þeir taki
róandi lyf, hægi aðeins á sér, því ef
þeir gera það ekki þá ætla ég að
hægja á þeim,“ sagði Chavez í ræðu
á þriðjudaginn. Þar átti hann við
Globavision, sem er einkarekin
sjónvarpsstöð rétt eins og Radio
Caracas Television, sem hætti
útsendingum um síðustu helgi eftir
að Chavez neitaði að framlengja
útsendingarleyfi hennar.
Hann útskýrði reyndar ekki
nánar hvað hann ætti við, en sagði
bæði dagblöð og sjónvarpsstöðvar
hvetja til óeirða og ofbeldis. Hann
bað stuðningsmenn sína um að
„vera á verði“ og hvatti opinbera
embættismenn til þess að fylgjast
náið með fjölmiðlum.
Allt þetta sagði Chavez í ræðu á
þriðjudagskvöldið, meðan þúsundir
manna mættu til útifunda víðs vegar
um land, ýmist til að lýsa andstöðu
sinni við aðgerðir forsetans eða til
að lýsa stuðningi sínum við hann.
Andstæðingar hans kröfðust frelsis
en stuðningsmennirnir mótmæltu
tilraunum stjórnarandstöðunnar til
að koma af stað óeirðum. Tugir
slíkra funda hafa verið haldnir í
Venesúela á síðustu dögum.
Alþjóðleg samtök um fjölmiðla-
frelsi, Evrópusambandið, öldunga-
deild þingsins í Chile og mannrétt-
indasamtökin Human Rights Watch
hafa lýst áhyggjum sínum af lokun
sjónvarpsstöðvarinnar RCTV.
„Þetta er einræði“ hrópuðu and-
stæðingar forsetans á mótmæla-
fundum á þriðjudaginn, en stuðn-
ingsmenn hans sögðust ekki sakna
sjónvarpsstöðvarinnar.
„RCTV var rusl. Dagskráin var
hræðileg, tóm lágkúra. Ekki einu
sinni stjórnarandstaðan horfði á
hana,“ sagði Elena Pereira, ensku-
prófessor í ríkisháskóla í
Venesúela. „Þeir vilja bara ástæðu
til að steypa stjórninni.“ Mótmæla-
fundirnir á þriðjudaginn fóru frið-
samlega fram, en á mánudaginn
kom til átaka mótmælenda og lög-
reglu í Caracas, höfuðborg lands-
ins. Lögreglan beitti táragasi og
sagði nítján lögreglumenn slasaða,
en engar tölur voru nefndar um
fjölda slasaðra mótmælenda.
Chavez hótar nú að
loka annarri stöð
Fjölmennir útifundir bæði andstæðinga og stuðningsmanna forsetans víða í
Venesúela síðustu daga. Chavez segir einkarekna fjölmiðla hvetja til ofbeldis.
Dagur án tóbaks - 31. maí!
Viltu aðstoð við að hætta að reykja
eða nota annað tóbak?
Reyksíminn býður upp á faglega aðstoð!
Láttu drauminn rætast
og losnaðu úr klóm tóbaksins!
Það er rétt að þetta er að mjög miklu leyti spurning um hugarfar. Mikilvægt er
að þú gerir þér grein fyrir því. Þú verður að byggja upp það hugarfar með sjálfum
/ sjálfri þér að þér muni takast þetta. Stappaðu í þig stálinu og segðu við sjálf-
an þig: Ég veit að ég get þetta! Mér mun takast þetta! Þú skalt líka þiggja allan
þann stuðning sem þér býðst.
Í tilefni dagsins höfum við opið frá kl. 10 - 22.
Ertu tilbúinn að hefja nýtt líf án tóbaks?
Bendum einnig á heimasíðu okkar www.8006030.is
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
Hæstiréttur hafnaði í
gær kröfu lögmanna olíufélag-
anna Kers, Skeljungs og Olís, um
að Sigrún Guðmundsdóttir myndi
víkja sæti sem dómari í máli félag-
anna gegn Samkeppniseftirlitinu
og íslenska ríkinu.
Fyrirtöku í málinu var jafn-
framt frestað til 14. júní en það
var á dagskrá héraðsdóms í gær.
Lögmenn olíufélaganna gerðu
kröfu um að Sigrún myndi víkja
þar sem þeir töldu hana ekki geta
dæmt í málinu með hlutlausum
hætti, vegna dómsorða sem hún
stóð að í máli Sigurðar Hreinsson-
ar gegn Keri. Í sératkvæði hennar
kom fram að það væri „óumdeilt
að samráð olíufélaganna hefði
valdið tjóni“ og „hækkað verð á
eldsneyti“. Sigrún féllst ekki á
kröfu lögmannanna, sem kærðu
þá niðurstöðu til Hæstaréttar.
Í máli Sigurðar var Ker dæmt
til greiðslu fimmtán þúsund króna
bóta vegna samráðsins.
Olíufélögin krefjast þess að
sektir sem samkeppnisyfirvöld
lögðu á félögin vegna samráðsins,
samtals 1,5 milljarðar, verði
dæmdar ógildar.
Í október 2004 voru olíufélögin
sektuð um rúmlega 2,6 milljarða
króna fyrir brot gegn samkeppn-
islögum. Áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála lækkaði sektirnar
niður í 1,5 milljarða en mestu
munaði um 650 milljóna króna
lækkun sektar Skeljungs.
Kröfu olíufélaganna hafnað
Kona var flutt á slysadeild
eftir að eldur kviknaði í íbúð á
Seltjarnarnesi í gærmorgun.
Eldurinn kviknaði í feiti í potti á
eldavél. Þegar slökkviliðið bar að
garði hafði fyrrverandi slökkvi-
liðsmaður, sem var staddur á
vettvangi, náð að slökkva mesta
bálið með brunaslöngu.
Greiðlega gekk að slökkva
eldinn en reykræsta þurfti
íbúðina, sem er mikið skemmd.
Tvennt var í íbúðinni þegar
eldurinn kom upp og var kona á
sextugs aldri flutt á slysadeild. Að
sögn læknis er líðan hennar
stöðug og ekki mikil einkenni um
reykeitrun.
Flutt á sjúkra-
hús eftir bruna