Fréttablaðið - 31.05.2007, Page 38

Fréttablaðið - 31.05.2007, Page 38
 31. MAÍ 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið sjómannslíf SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Háþrýstidælur Vinnuþjarkar ætlaðir til daglegra nota HD 10/25-4 S Vinnuþrýstingur 30-250 bör 500-1000 ltr/klst Stillanlegur úði Sápuskammtari Túrbóstútur + 50% HD 6/16-4 M HD 6/16-4 MX Vinnuþrýstingur 30-160 bör 230-600 ltr/klst 15 m slönguhjól Stillanlegur úði Sápuskammtari Túrbóstútur + 50% Fjölskyldu- og sjómannahátíðin Sjóarinn síkáti mun standa yfir alla helgina í Grindavík með stanslausri dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Óskar Sævarsson, ferða- og markaðsmálafulltrúi Grindavíkur og forstöðumaður Saltfiskseturs Íslands, segir dag- skrána aldrei hafa verið eins glæsilega og nú. „Aðaldagur hátíðarinnar er á sunnudaginn en þá verðum við með gífurlegt úrval af leiktækjum og ýmsum uppákomum fyrir börnin, auk þess sem eldri sjómenn verða heiðraðir og veitt verðlaun fyrir þessar hefðbundnu keppnir sem fylgja sjómanna- deginum,“ segir Óskar en tekur fram að keppnirnar fari þó fram á laugardaginn. „Hátíðin hefst í raun og veru í kvöld þegar Óska- lög sjómanna verða flutt í þriðja sinn. Það er ofsalega vinsæll viðburður sem byrjaði í litlu veitingahúsi hér í bænum en verður nú í Festi og ég held að það sé þegar orðið uppselt,“ segir Óskar og bætir því við að reyndar sé þessi viðburður einkaframtak og því utan við hefðbundna dagskrá sem hefst formlega 1. júní. Óskar segir blúshátíð fléttast inn í hátíðina þetta árið en þar mun landslið blúsara mæta á svæðið. „Síðan verður hið geysivinsæla bryggjuball á föstu- dagskvöldið. Það hefst klukkan hálf níu og er fyrir alla fjölskylduna. Við áætluðum að það hefðu verið um 1.500 manns á ballinu í fyrra og það verða örugg- lega ekki færri núna,“ segir Óskar og heldur áfram: „Laugardagskvöldið verður svo endað með stæl því þá fáum við Magna og Kalla Bjarna í Festi en að auki verða góðar hljómsveitir á fimm stöðum í bænum. Rúta mun keyra á milli allra staðanna og einn miði gildir á þá alla þetta kvöld.“ Þar sem fagnað er sextíu ára afmæli sjómanna- dagshátíðarinnar í Grindavík í ár er dagskráin veg- legri en áður hefur verið og gríðarlega mikil stemn- ing, að sögn Óskars, auk þess sem hún er enn fjöl- skylduvænni. „Það vantar reyndar inn í dagskrána að hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson verð- ur opið almenningi til sýnis á föstudaginn. Annars er náttúrlega rosalega mikið af viðburðum alla helgina og erfitt að draga út aðalatriðin í því. Ég bendi á að við verðum með stórt og mikið tún fyrir húsbíla núna enda hafa yfirleitt verið fjölmargir slíkir á svæð- inu,“ segir Óskar, sem reiknar með allt að tíu þúsund gestum í Grindavík um helgina. sigridurh@frettabladid.is Sjómannahátíð í sextíu ár Á sjómannadaginn er keppt í ýmsum óhefðbundum keppnis- greinum, eins og þessari sem gengur út á að koma andstæð- ingnum í höfnina. MYND/ODDGEIR KARLSSON Dagskrá Sjóarans síkáta er sérlega fjölskylduvæn í ár og börnin ættu að geta skemmt sér vel við hina ýmsu viðburði alla helgina. Það er jafnan gríðarleg stemning á bryggjunni þegar sjó- mennirnir reyna með sér í hinum ýmsu þrautum. Hér er það jafnvægið og hraðinn sem gilda. Óskar Sævarsson, ferða- og markaðsmálafulltrúi Grindavíkur og forstöðu- maður Saltfiskseturs, telur að hátt í tíu þúsund manns muni sækja sjómannahátíðina í Grindavík um helgina.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.