Fréttablaðið - 31.05.2007, Page 46

Fréttablaðið - 31.05.2007, Page 46
fréttablaðið farið á fjöll 31. MAÍ 2007 FIMMTUDAGUR10 Súgfirðingar hafa ærna ástæðu til að fagna sjó- mannadegi þetta árið, enda gestkvæmt í bænum eftir að Bobby Fisherman flutti þangað. Á Suðureyri blómstar nú ferða- mannaþjónusta sem aldrei fyrr en heiðurinn af því á Elías Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Hvíldarkletts og „faðir“ Bobbys Fisherman. Elías, sem er innfæddur Súg- firðingur, hóf uppbygginguna fyrir nokkrum árum og þetta vorið er uppskorið af erfiðinu. Frá fyrsta maí síðastliðnum hafa tvær flugvélar lent í viku með tæplega níutíu sjóstangveiðimenn innanborðs sem dvelja svo í um sjö daga í senn á Suðureyri, milli þess sem þeir halda á haf út. „Þetta hefur gengið mjög vel fram til þessa. Góð veiði og flottir fiskar. Uppistaðan er þorskur en við erum líka að fá steinbít, ýsu og lúðu. Stærsta lúðan sem veiddist í síðustu viku var yfir tveir metrar,“ segir Elías ánægð- ur í samtali við blaðamann og bætir við að allt hafi þetta geng- ið vonum framar. Hann segist enn fremur ekki vera hræddur við samkeppni frá öðrum sjávar- þorpum þar sem af nægu sé að taka. „Það er til nóg af sjóstangveiði- mönnum í heiminum – við gætum öll haft atvinnu af þessu ef við vildum og þannig eru næg tæki- færi fyrir fleiri staði,“ segir þessi snjalli Súgfirðingur, en gaman er að geta þess að hann hlaut nýver- ið verðlaun frá Útflutningsráði fyrir bestu markaðsáætlunina. Lilja Rafney Magnúsdóttir er formaður sjómannadagsráðs á Suðureyri. Hún segist búast við því að þýsku veiðimennirnir vilji taka þátt í dagskránni enda nóg um að vera bæði laugardag og sunnudag. „Annars verður Elías hjá Hvíldarkletti að finna út úr því hvort hann vilji ekki útskýra fyrir þeim hvað sé í gangi,“ segir Lilja Rafney og hlær. „Okkur líst bara ágætlega á þessa ferða- menn enda setja þeir svip á bæinn. Reyndar kippum við okkur ekki upp við þetta hvorki til né frá enda erum við því alvön að hér séu útlendingar,“ segir Lilja. „Suðureyri hefur verið al- þjóðlegt þorp í áraraðir og hing- að eru allir velkomnir sem vilja vera með okkur. Hin síðari ár hefur það aukist að Pólverjar og Taílendingar hafi flust hingað, upp úr 1950 komu Færeyingar í hrönnum, svo Ástralir, Ný-Sjá- lendingar, Bretar, Grænlending- ar … bara nefndu það! Við tökum öllum opnum örmum.“ mhg@frettabladid.is Alþjóðlegur sjómannadagur á Suðureyri Elías ásamt kampakátum veiðimanni með nýfenginn kola.Elías Guðmundsson við smábátaflota Hvíldarkletts, en þeir ganga undir nafninu Bobby frá eitt upp í tuttugu og tvo. Lilja Rafney hefur löngum verið virkur þáttakandi í hátíðarhöldum sjómannadagsins á Suðureyri. Hér tekur hún á í reiptogi. Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður Sjómannadagsráðs Suðureyrar, ásamt móður sinni Þóru Þórðardóttur á siglingu um Súgandafjörð. DAGSKRÁ SJÓMANNNA- DAGSINS Á SUÐUREYRI LAUGARDAGUR 13.00 Allur smábátafloti Suðureyrar siglir út Súg- andafjörð í skoðunarferð. 16.00 Kappróður á Lóni – kvenna- og karlalið. 20.00 Sjávarréttaveisla og skemmtiatriði: Kvennakór Vestfjarða syngur nokk- ur lög, pólskur trúbador stígur á svið og að lokum fer fram stórdansleikur í íþróttahúsinu á Suðureyri þar sem hljómsveitin AHA leikur fyrir dansi. SUNNUDAGUR 13.45 Skrúðganga frá Bjarnaborg í sjómanna- dagsmessu þar sem sjó- maður verður heiðraður. 15.00 Skemmtidagskrá á hafnarsvæðinu: Karahlaup, reiptog, kappbeiting, kara- róður og lokahlaup ásamt áhættuatriðinu – hjólað í sjóinn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.