Fréttablaðið - 31.05.2007, Page 50
31. MAÍ 2007 FIMMTUDAGUR14 fréttablaðið sjómannslíf
Ekki virðist vera grundvöllur
fyrir vinnslu á skötusel á Ís-
landi en fiskurinn er seldur að
mestu óunninn úr landi.
Nánast allur skötuselur er seldur
því sem næst óunninn úr landi.
Guðmundur Óli Hilmisson sjávar-
útvegsfræðingur hefur kannað
hvort grundvöllur sé fyrir frek-
ari vinnslu hér heima og kveðst
hafa komist að þeirri niðurstöðu
að svo sé ekki, að öllu óbreyttu.
Hann gerir því ekki ráð fyrir
að vinnsla aukist á honum hér á
landi.
„Við veiðum fimmtíu prósent
af heildaraflanum á þriggja mán-
aða tímabili, frá september fram
í desember. Á þeim tíma er eftir-
spurn á markaðnum erlendis eftir
skötusel þannig að við fáum mjög
hátt verð fyrir skötuselinn óunn-
inn á þessum tíma. Svo er lægra
verð á öðrum tímum og þá getur
borgað sig að vinna hann hérna
heima en þá er bara svo lítið og
óstöðugt framboð,“ segir Guð-
mundur Óli.
Markaður fyrir skötusel breyt-
ist ört og má því segja að hann
sé síkvikur. „Það er ekki hægt að
segja að best sé að flaka hann og
selja til einhvers ákveðins lands
því ef maður ætlar alltaf að fá
hæsta verðið þarf maður að vera
á tánum í hverri einustu viku því
verðið breytist fyrirvaralaust,“
segir hann. „Það getur verið best
að selja hann flakaðan til Frakk-
lands í þessari viku og flakað-
an til Belgíu í næstu viku. Þess
vegna tala ég um að hann sé sí-
kvikur.“
Skötuselur getur orðið stór
skepna en stærsti skötuselur sem
veiðst hefur hér við land var 155
sentimetra langur. Það var áhöfn-
in á Glófaxa sem veiddi hann.
Skötuselur á það til að éta sjófugla
og norsk saga segir að skötusel-
urinn hafi tekið lamb sem verið
var að flytja milli lands og eyja,
„þannig að þetta er töluverður
vargur“, segir Guðmundur Óli.
- ghs
Skötuselur seldur nánast
óunninn úr landi
Markaðurinn fyrir skötusel er síkvikur og því þyrfti að vera stöðugt á tánum til að
fá alltaf hæsta verðið. Að öllu óbreyttu er því best fyrir Íslendinga að selja hann
óunninn.
Guðmundur Óli Hilmisson sjávarútvegs-
fræðingur hefur kannað hvort grund-
völlur sé fyrir frekari vinnslu á skötusel
á Íslandi og komist að þeirri niðurstöðu
að svo sé ekki.
„Sjómannadagurinn er mikil
hátíð sem allir eyjarbúar taka
þátt í,“ segir Bjarni Gylfason,
formaður björgunarsveitar-
innar Sæþórs í Grímsey, en
björgunarsveitin sér um dag-
skrá sjómannadagsins í eynni.
„Við mætum niður á bryggju
um hádegisbilið og grillum
pylsur og fáum okkur gos með.
Á eftir skjótum við línubyssu
yfir höfnina og leyfum krökk-
unum að fara yfir með stól
en það skemmtilegasta er ef
þau blotna aðeins í fæturna,“
segir Bjarni og bætir við að
burtfluttir Grímseyingar geri
sér gjarnan ferð út í eyju ef
veðrið er gott. „Við fáum allt-
af einhverja gesti og sérstak-
lega krakka sem hafa flutt í
land. Ef veðrið er gott er um
að gera fyrir sem flesta að
kíkja til okkar því það verður
af nógu að taka. Við förum rúnt
á slysavatnsbátnum, förum
í belgjaslag og keppum í fót-
bolta. Ef veðrið er gott förum
við kannski út í Básavík þar
sem er sandströnd og grillum
og leikum okkur, sem er alltaf
mjög skemmtilegt. Svo verður
veitingastaðurinn opinn um
kvöldið.“ indiana@frettabladid.is
Hátíð fyrir alla eyjarbúa
Bjarni Gylfason,
formaður björg-
unarsveitinnar í
Grímsey, hlakk-
ar til sjómanna-
dagsins.
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
Vörn gegn brunaslysum frá Danfoss
Termix One tengigrind til hitunar á neysluvatni
Stillanlegt hitastig neysluvatns
Stórminnkar slysahættu af völdum heita neysluvatnsins
Jafn þrýstingur á heitu og köldu neysluvatni, lengir líftíma blöndunartækja
Léttari þrif, enginn kísill á flísum og hreinlætistækjum
Vönduð vara, lítill viðhaldskostnaður
Áralöng reynsla stjórnbúnaðar við íslenskar hitaveituaðstæður
Auðveld í uppsetningu
Snyrtileg hlíf fylgir
•
•
•
•
•
•
•
• www.stillumhitann.is