Fréttablaðið - 31.05.2007, Side 72
Pamela Anderson hefur neyðst til
að segja börnum sínum frá kyn-
lífsmyndbandinu fræga sem hún
gerði á sínum tíma með þáverandi
eiginmanni sínum, rokkaranum
Tommy Lee.
Pamela segir að hún hafi náð
að halda myndbandinu leyndu
frá börnum sínum allt frá því að
það var gert árið 1998, en þar sem
börnin vildu ólm fá að sjá kvik-
myndina Borat, þar sem mynd-
bandið með Pamelu kemur nokk-
uð við sögu, hafi hún ekki átt ann-
arra kosta völ en að gera hreint
fyrir sínum dyrum. Pamela á tvo
stráka, hinn tíu ára gamla Brand-
on og níu ára gamla Dylan.
„Allir vinir þeirra höfðu séð
Borat og ég gat ekki bannað þeim
að sjá hana. Ég sagði við þá að
þeir þyrftu að vita ýmislegt áður
en þeir sæju hana,“ segir Pamela.
„Ég sagði þeim að á myndbandinu
væru allir naktir og að faðmast og
kyssast. Síðan hefði einhver stolið
myndbandinu,“ sagði Pamela og
bætti því við að viðbrögð stráka
sinna hefðu komið sér á óvart.
„Þeir settu upp smá svip þegar
við vorum að horfa á Borat en ann-
ars kipptu þeir sér lítið upp við
það sem fyrir augum bar.“
Pamela segir börnunum
frá kynlífsmyndbandinu
Britney Spears sletti vel úr klaufunum síðastliðið
sunnudagskvöld. Eftir eingöngu klukkutíma dvöl
á Sky Bar Mondrian hótelsins í Los Angeles
fannst poppstjarnan nánast rænulaus inni á
karlaklósettinu, þar sem hún kastaði við-
stöðulaust upp. Britney hafði bókað her-
bergi á hótelinu, en leið of illa til þess að
nýta sér það. Halda þurfti á söngkonunni
út af hótelinu. Dvöl Spears á meðferðar-
heimilinu Promises fyrr á árinu virðist
því ekki hafa borið mikinn árangur.
Á þriðjudag skrifaði söngkonan bréf
til aðdáenda sinna á opinberri heima-
síðu sinni. Þar segist hún vilja reyna
að útskýra hvað hún hafi þurft að tak-
ast á við upp á síðkastið. Britney seg-
ist hafa náð botninum þegar hún lagð-
ist inn á Promises, en að hún haldi ekki
að áfengi eða þunglyndi hafi verið um
hugarástand hennar að kenna, held-
ur hafi hún týnt áttum eftir skiln-
aðinn. „Ég viðurkenni það, ég var
svo týnd,“ skrifar Britney til að-
dáenda sinna. „Ég vil bara fá það
sama út úr lífinu og þið… að vera
hamingjusöm,“ skrifar hún.
Britney Spears rænu-
laus á karlaklósetti
Latibær er á miklu flugi og ekki sér
fyrir endann á velgengni þessa fyrir-
tækis. Heilbrigðismálayfirvöld í
þremur löndum eru áhugasöm um að
taka þátt í að fá krakka heimsins til að
hreyfa sig.
„Við erum að vinna mjög náið með Caroline
Flint, heilbrigðisráðherra Bretlands, og von-
andi byrjum við með þetta átak sem allra
fyrst,“ segir Magnús Scheving, forstjóri Lazy
Town. Nú styttist í að glæsilegu orkuátaki verði
hleypt af stokkunum í Bretlandi. Svipað átak
sló í gegn á Íslandi fyrir þremur árum og fékk
meðal annars norrænu heilsuverðlaunin 2004.
„Ég reikna síðan með að eiga fundi með bæði
heilbrigðisráðherrum Þýska-
lands og Kanada,“ bætir
Magnús við.
Mikið hefur verið spáð
og spekúlerað um hvort
sjálfur Jamie Oliver
myndi ganga til liðs
við Latabæ en Magnús
svaraði þeim vanga-
veltum eins og sannur
pólitíkus: „Því er ekki
að leyna að við höfum
verið í viðræðum við
þann hóp en þetta eru svona meira þreifingar.
Oliver er meira í eldri hópnum en við í þeim
yngri. En við höfum verið að athuga hvernig
við gætum sameinað þá,“ segir Magnús og ljóst
er að ef af yrði myndi það vekja enn meiri at-
hygli á Latabæ í Bretlandi.
Latibær hefur hins vegar náð verulegri fót-
festu á Bretlandsmarkaði og Magnús upplýsir
að velta fyrirtækisins í smásölu sé í kringum
hundrað milljónir dollara eða sex milljarða
íslenskra króna. Þá hyggur þátturinn á mikla
innrás til Ástralíu en þættirnir verða sýndir
á ABC-sjónvarpsstöðinni sem er ein sú virt-
asta í heimi.
Latibær á ferð og flugi