Fréttablaðið - 31.05.2007, Síða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég borða alltaf skál af Cheerios
með einni Cornflakes-flögu út
í. Þegar ég fæ leið á því, þá fæ
ég mér bara Cornflakes og einn
Cheerios-hring út í það.“
„Við á Finsen landshöfðingja
förum með hinu hefðbundna ís-
lenska lagi,” segir siglingameist-
arinn Ísleifur Friðriksson.
Mikill hiti og kapp er nú að fær-
ast í fyrirhugaða róðrakeppni sem
að venju er haldin á sjómannadag-
inn, að þessu sinni þann 3. júní, og
má búast við meiri keppni en oft-
ast áður. Fréttablaðið hefur þegar
greint frá því að hin sigursæla
sveit færeyska saumaklúbbs-
ins Stokkarnir ætlar ekki að gefa
hlut sinn. Og JPV útgáfan ætlar
að mæta til leiks með vaska róðra-
sveit. Og nú hefur Siglunes, Sigl-
ingaklúbburinn í Nauthólsvík,
ákveðið að mynda lið og er ætl-
unin að veita Stokkunum maklega
keppni.
„Já, við ákváðum að taka til ára
okkar,” segir Ísleifur en þess bera
að geta að Ísleifur hefur einmitt
þjálfað þau lið, ef undanskildum
Stokkunum, enda þaulvanur sigl-
ingamaður. Hann neitar því þó al-
farið að hafa kennt þeim skakkt
áralag til að auka möguleika sína.
Ísleifur segir mikla vakningu í
kringum þessa fínu íþrótt og nú
verði róðurinn hugsanlega vit-
rænni því Sjómannadagsráð hafi
ákveðið að hafa einn keppnisbát á
sjó yfir sumarið til að lið geti æft
á slíkum.
„Þær eru nokkrar tegundir
af áralagi. Færeyingar hafa allt
annað áralag en Íslendingar. Hafn-
leysurnar hérna þýddu að menn
þurftu að leggjast meira á árarn-
ar. Þetta er meiri handavinna í
Færeyjum.”
Sjómennirnir og frystihúsafólki
hefur látið undir höfuð leggjast að
taka þátt undanfarin ár en vakning
er hins vegar á ólíklegustu stöðum
öðrum. Lið Finsens skipa þau Jón-
ína dela Rosa sem er formaður, í
austurrúmi sitja þeir Óttar Hrafn-
kelsson og Kjartan Iversen, á mið-
þóftinni Kolbrún Vaka Helgadótt-
ir og Jóhanna Klara Stefánsdóttir
og í andófi eru Ísleifur Friðriks-
son og Freysteinn Oddsson.
Íslenska áralaginu teflt gegn því færeyska
„Þetta telst eitt af mínum allra
fyrstu embættisverkum. Og það
geri ég með mjög glöðu geði,”
segir Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra.
Í gær keypti Guðlaugur fyrsta
álfinn í hinni árlegu álfasölu SÁÁ
sem nú fer fram í 18. sinn.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
ráðherra var nokkurt óðagot niðri
í ráðuneyti því ráðherra hugðist
snarast út í næsta hraðbanka til
að ná í reiðufé til að greiða fyrir
álfinn góða. En hann átti þá von á
sölufólki álfsins innan tíðar.
„Nei, ég hef þá nefnilega grun-
aða um að vera ekki með posa,”
segir Guðlaugur Þór aðspurður
hvort hann teldi SÁÁ-fólk ekki
vera með posa líkt og ljóðskáld
sem liggja orðið á því lúalagi,
þegar menn breiða yfir áhugaleysi
sitt á ljóðabókum til sölu með því
að segjast ekki eiga fé handbært
heldur bara kort, að veifa framan
í þá posa.
„Nei, bíddu, þetta reddaðist. Ég
sló ritarann. Fyrir álfi,” segir ráð-
herra léttur í bragði. Og gat nú ró-
legur sinnt blaðamanni.
„Þetta er afskaplega gott fram-
tak. SÁÁ er eitt þessara öflugu fé-
lagasamtaka sem eru að vinna gott
starf í þágu heilbrigðisþjónustu á
Íslandi. Nei, þetta er ekki í fyrsta
skipti sem ég kaupi álfinn. Ég held
ég hafi alltaf gert það og meira að
segja hef ég skrifað greinar í þeim
tilgangi að hvetja fólk til að kaupa
álfinn. Það er mér sérstök ánægja
að fá að kaupa þann fyrsta núna
og vil hvetja alla til að kaupa hann
einnig. Enda er þeim fjármunum
vel varið.”
Ráðherra sló ritarann fyrir álfi
Bubbi Morthens fer af stað með
nýjan sjónvarpsþátt eftir áramót
sem gengur undir vinnuheitinu
Bandið hans Bubba. Ætlar hann
að ferðast vítt og breitt um landið
í leit að tónlistarmönnum sem
syngja á íslensku. Sigurvegarinn
fær í sinn hlut þrjár milljónir
króna, plötusamning og umboðs-
mann.
„Ég er búinn að vera í mörg ár
dálítið hissa á því hvað það er lítið
sungið á íslensku,“ segir Bubbi.
„Í Idolinu sá ég að þegar krakk-
arnir sungu á íslensku fannst mér
sálin í þeim koma fram. Það er
bara þannig hvort sem menn vilja
viðurkenna það eða ekki að þegar
þú syngur á eigin tungumáli þá
ert þú rótfastur. Þá fékk ég þessa
hugmynd hvers vegna engum hafi
dottið í hug að reyna að rífa upp
tungumálið í dægurtónlistinni og
um leið að búa til skemmtiþátt
sem byggir á ekki ósvipaðri hug-
mynd og Idolinu,“ segir hann.
Þrír dómarar verða í þættin-
um en Bubbi verður ekki einn af
þeim. Sjálfur er hann búinn að
velja hljómsveitina sem spilar í
þættinum og er hún skipuð hans
uppáhaldstónlistarmönnum. Ætlar
Bubbi að ferðast um landið og leita
uppi hæfileikaríkt fólk sem fær
tækifæri til að syngja með hljóm-
sveitinni á íslensku, annað hvort
frumsamin lög eða lög eftir aðra.
Bubbi telur að þörf sé á hugar-
farsbreytingum í íslensku tónlist-
arlífi og vonast til að þátturinn
leggi sitt af mörkum. „Sú tónlist
sem lifir hvað lengst er sú tónlist
sem er sungin á íslensku. Það er
tónlistin sem selur og er lifandi,“
segir hann. „Ástandið er jafnvel
verra nú en fyrir tíma pönksins. Ís-
lenskt tungumál virðist ekki vera
gjaldgengt lengur hjá ungu fólki.
Ég hef sungið alla mína hunds- og
kattartíð á íslensku og mér hefur
vegnað betur en nokkrum öðrum
íslenskum tónlistarmanni. Ég er
ekki að setja mig í hásæti sem ein-
hver sem er bestur eða mestur
heldur hef ég einfaldlega selt
flestar plötur og hef kannski orðið
sæmilega fjáður. Þetta segir það
að það er hægt að lifa af tónlist-
inni og maður þarf ekki að syngja
á ensku til að ná langt.“
Upptökur á sjónvarpsþættin-
um hefjast í haust og verður hann
sýndur á Stöð 2. Gó› rá› og gagnlegar
uppl‡singar um heita vatni›
www.stillumhitann.is
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is