Fréttablaðið - 31.05.2007, Qupperneq 88
Ámorgun verður bannað að reykja á öllum veitingastöð-
um landsins, jafnt á Hótel Holti
sem á Rökkurbarnum. Bretar eru
farnir að merkja áfengisflöskur
með miðum frá hinu opinbera.
Þar kemur fram hversu stórra
skammta af viðkomandi áfengis-
tegund ríkið telur ásættanlegt að
neyta á dag. Þessar merkingar
koma örugglega hingað fljótlega.
Með sama áframhaldi verður lík-
lega farið að merkja ungbörn
þegar þau koma af fæðingardeild-
inni: Varúð, lífið er ekki endalaust:
Passaðu þig.
hvað er öryggisfíknin annað
en útvíkkuð dauðahræðsla? Við
eigum ekki mikið eftir – í jarð-
fræðilegu tilliti – og engin trygg-
ing fyrir eftirlífi. Við erum í djúp-
um, hvernig sem á það er litið.
En það má reyna. Halda í vonina.
Og því þá ekki að banna reyking-
ar á veitingastöðum eins og hvað
annað? Fólk reykir þá bara meira
heima hjá sér yfir krökkunum.
eru náttúrlega
ein vitlausasta tímasóun sem
um getur og ágætt að reynt sé
að stemma stigu við ruglinu. Að
reykja er að sjúga að sér baneitr-
uðum reyk fyrir lítils háttar vímu-
ástand sem kemur hvort sem er
bara með fyrstu sígarettu dags-
ins. Allar hinar sígarettur dags-
ins eru misheppnaðar tilraunir
til að fá sömu vímuna aftur. Vond
lykt, mæði og dofnandi lyktar- og
bragðskyn í kaupbæti. Semsé al-
gjört rugl.
kost hafa þó sígarettur og sá
er að maður hefur þá allavega eitt-
hvað að gera á meðan maður reykir.
Í samkvæmum, á meðan vandræða-
gangur ríkir enn því enginn hefur
náð nægri ölvun, er gáfulegast að
taka upp rettu og finna hópinn sem
stendur úti og reykir. Þar er miklu
léttara yfir mannskapnum og allir
samtaka í sinni vitlausu tímasó-
un. Svo er ekki það sama að standa
aulalegur við borð á skemmtistað
með glas og mæla út tækifærin
og að standa aulalegur við borð
með glas og sígarettu á milli putt-
anna. Sígarettan þrælvirkar nefni-
lega sem eins konar andleg brynja
á galeiðunni, sólgleraugu á sálina,
eitthvað til að gera á meðan tím-
inn líður.
er ég kominn á hálan ís því
það er bannað með lögum að segja
eitthvað jákvætt um andstyggðina.
Ég tek þó sénsinn og bæti við að
þrátt fyrir bannið verður eftir sem
áður vandræðalausasta stemning-
in þar sem fólk norpar í hnapp og
drepur sig í smáskömmtum – til-
finningalega sameinað eins og
aðrir félagslega útskúfaðir hópar.
Sólgleraugu
fyrir sálina
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Í Evrópu eru mörg
ólík lönd sem öll
hafa sín sérkenni
Með Vodafone Passport sameinast þau
í eitt mínútuverð. Það sama og á Íslandi.
Vodafone Passport er ný byltingarkennd þjónusta sem
gerir viðskiptavinum Vodafone kleift að hringja á sama
mínútuverði í 18 löndum í Evrópu og heima. Greitt er 139 kr.
upphafsgjald og eftir það gildir sama verðskrá og á Íslandi.
Með Vodafone Passport geta viðskiptavinir Vodafone
sparað til dæmis 48% í Danmörku, 59% á Spáni og 76% í
Bretlandi miðað við fimm mínútna símtal.
Skráðu þig strax á www.vodafone.is, komdu við í verslun
okkar, eða hringdu í 1414. Þú getur líka skráð þig með því
að senda SMS skilaboðin Passport í 1900. Það er enginn
stofnkostnaður og ekkert mánaðargjald.
Gríptu augnablikið og lifðu núna.