Fréttablaðið - 16.06.2007, Page 64
Við þjóðveg 1, í um tuttugu mín-
útna fjarlægð frá Akureyri er að
finna lítið, krúttlegt, ofurrómant-
ískt sveitaævintýri – veitingahúsið
Halastjörnu. Það stendur á afar
rómantískum stað, á æskuslóðum
Jónasar Hallgrímssonar, í Öxna-
dal undir Hraundröngum. Innviðir
veitingahússins minna einmitt
einna helst á fyrirmannaheimili
frá fyrri hluta síðustu aldar þar
sem gestir sitja á antíkhúsgögnum
og gæða sér á krásum með rósótt-
um borðbúnaði og jafnvel er hægt
að fá einkaherbergi til snæðings.
Þeir hugföngnustu geta svo fest
kaup á sumum húsgagnanna en
veitingahúsið hefur verið í sam-
starfi við antíkverslunina Frúna í
Hamborg um sölu á innanstokks-
munum. Eldhúsið er ekki síður
rómað en umhverfið en ýmsir
frægir gestakokkar hafa dvalið
á staðnum og eldað úr íslensku
sjávarfangi og ferskmeti úr mat-
jurtagarðinum. Fyrirtaks dægra-
dvöl fyrir nostalgíutaugarnar og
skáldlegan innblástur.
Alltaf skulu Þingeyingar taka
upp á einhverju skemmtilegu.
Við erum ekki öll svo heppin að
þekkja bændur á bæ og öðrum.
Dreymir þó kannski mörg um að
fá að smakka ylvolga mjólk, beint
úr kúnum, og í villtustu draumum
sumra er það að fá að handmjólka
kú heilög stund. Í Mývatnssveit er
hægt að reyna slíkt í Vogafjósi en
í fjósinu er rekin kaffistofa sem
er opnuð eldsnemma á morgnana
og er opin til að verða miðnættis.
Þar eru kýrnar mjólkaðar tvisvar
á dag og hægt er að fylgjast með
mjöltum í kaffistofunni og bragða
á. Einnig standa þar til boða
heimagerðar kræsingar, unnar úr
fjósamjólkinni og öðrum sveita-
afurðum, svo sem ostar, kæfur,
konfekt og hverabakað brauð.
Gömlu góðu kaupfélögin, þar sem
allt fæst, eru sjaldséðir fuglar.
Finnir þú eitt slíkt skaltu prísa
þig sælan og þakka guði enda
kraftaverk. Í kaupfélaginu sem
við leitum að á að vera hægt að
kaupa metravöru, gúmmístígvél,
gamlar ljótar styttur, frosið kinda-
hakk í bland við lopasokka, bús-
áhöld og vinsældamatvöru. Kaup-
félag Skagfirðinga er eitt af fáum
sem enn búa svo vel að bjóða upp
á þennan vörukokkteil, að metra-
vöru meðtalinni, og Kaupfélag
Steingrímsfjarðar, með höfuð-
stöðvar á Hólmavík á Ströndum,
kemur einnig sterkt inn á list-
ann. Það er stórlega vanmetin
skemmtun að eyða vænum hálf-
tíma í fjársjóðsleit í skipulögðu
kaosi þar sem ótrúlegustu vöru-
tegundir dúkka upp.
Það er ekki á hverjum degi sem
forsetafrú heillast af farfugla-
heimili en þegar Dorrit heim-
sótti eitt slíkt að Berunesi átti hún
vart orð til að lýsa hrifningu sinni.
Enda staðurinn einstakur. Gist er
í gamla bænum, virðulegu alda-
gömlu húsi, og sómafólkið og hjón-
in sem byggja staðinn hafa búið
þar síðan þau voru ung hjón og
húsfreyjan ólst þar upp. Þau sinna
gestum af stakri natni enda hús-
freyjan húsmóðir lífsins af gamla
skólanum og sér um að elda dýr-
indis heimilismat og baka hnall-
þórur ofan í gesti. Hvað svefnað-
stöðu gesta varðar hefur gamli
tíminn fengið að halda sér og eru
dæmi um að gestir sofi í meira en
100 ára gömlum rúmum og mildir
pastellitir klæða veggi og muni.
Þegar við bætist austfirsk nátt-
úra og góð hvíld er fátt sem getur
klikkað.
Uppskrift að einum framandleg-
asta kokkteil Austurlands er gist-
ing í undrabænum Seyðisfirði. Þar
er nefnilega að finna tvær sögu-
frægar byggingar sem nú hýsa
Hótel Ölduna og er hótelið í eigu
stórstjörnu Íslendinga, Sigurjóns
Sighvatssonar. Hönnun hótelsins
er engu lík en þar mætast gamli
tíminn og herbergi og svítur búin
nútímaþægindum sem eru þó sér-
staklega spes að því leyti að til
dæmis að hægt er að fá herbergi
sem innihalda indverskar lok-
rekkjur. Í öðru húsinu er verslun
og veitingastaður en þegar kvölda
tekur er borðsalurinn dekkaður
upp með hvítu damaski og kristal.
Hveragerði er undarlegur og stór-
huga bær. Nær ár hvert virðast
bæjarbúar blása til einhverra stór-
tækra áforma. Tívolíið var helsta
stolt þeirra um nokkurra ára skeið,
Hótel Örk kom, sá og sigraði á
vatnsrennibrautarmarkaðnum og
flottheitin á 9. áratugnum, jólaland
Exótíska Ísland
Það þarf ekki að fljúga til Kosta Ríka eða Indlands til að eiga exótískt
sumarfrí. Litla landið okkar leynir á sér og víða leynast og leynast
ekki framandlegir veitingastaðir, gistihús og afþreyingarmöguleikar.
Júlía Margrét Alexandersdóttir skoðaði framandi og forvitnilega mögu-
leika fyrir ferðalangana sem ætla að halda sig á fósturjörðinni. Lítil
misopinber leyndarmál.