Fréttablaðið - 16.06.2007, Side 66
Bragi Kristjónsson skrifar fallega
minningargrein um Elías Mar í
Mbl. 6. júní, og kemst skemmtilega
að orði sem oftar – með haglegri
myndhverfingu: „Eitt af falleg-
ustu ævintýrum lífsins eru kynn-
in og vináttan við Elías Mar skáld.
Hann var furðufuglinn, sem undi
alla tíð einn í bjargi sínu og stund-
aði þaðan rannsóknir sínar á sjón-
arspili mannlífsins. Hann lifði allt-
af dularfullu lífi – þannig vildi hann
hafa það. Skáldverk hans áttu gengi
að fagna, en margan bezta skáld-
skap sinn skrifaði hann bara í hugi
vina sinna.“
Í Fréttablaðinu 19. maí var sagt að
Þórunn Sigurðardóttir væri kvænt
Stefáni Baldurssyni. Karlar eru
kvæntir (dregið af kván: kona) og
konur giftar, dregið af gefa, enda
voru þær gefnar áður fyrr. Nú er
að vísu algengt að tala um gifta
karlmenn, enda má segja að karl
og kona gefist hvort öðru. En kona
getur tæpast verið kvænt, nema
þá í samkynhneigðum hjúskap,
kannski. Ekki veit ég hvernig Stef-
áni líkar að vera kván konu sinnar.
Í kvöldfréttum Sjónvarpsins 10.
júní var svo sagt frá hannyrðakonu
sem „kvæntist aldrei“.
„Þarna er verið að velja úr verulegu
magni af sýningum...“ sagði við-
mælandi í morgunútvarpi 1. júní.
Ekki vil ég tengja orðið magn við
sýningar, heldur fjölda. Megum við
kannski búast við að heyra talað um
verulegt magn af fólki á sýningu?
Hljómar það ekki fremur aulalega?
Þannig hljóðar fyrirsögn á for-
síðu Mbl. 6. júní og er hressileg
tilbreyting í annars litlitlu málfari
íslenskra dagblaða. Orðið bitsljór
en haft um hníf sem bítur illa, en
fellur vel að þeirri ásökun að stýri-
vextir Seðlabankans komi ekki að
miklu gagni. Svona tilþrif í orð-
færi sjást því miður sjaldan.
eru tvö orð ólíkrar merkingar,
en stundum ruglað saman, ef til
vill vegna vankunnáttu í stafsetn-
ingu. Þannig mátti sjá í Mbl. 7.
júní „á næsta leyti“, sem er auð-
vitað rangt. Leiti merkir hæð sem
ber við sjónarhring, og ekki verð-
ur séð lengra. Á næsta leiti merkir
því nálægt, á næstu grösum. Leyti
er aftur á móti haft um hluti, tillit,
sbr. að mestu leyti: að hinu leytinu,
eða um tíma, sbr. um sama leyti;
um jólaleytið.
Ég hélt að allir væru hættir þeirri
vitleysu að „forða slysum“, en það
sást í texta með frétt í Sjónvarp-
inu 6. maí og í fyrirsögn í Mbl. 8.
júní: „Ekki banna hreyfingu til að
forða slysi“. Hvert á að forða slys-
um? Frá hverju á að forða slys-
um? Sjá ekki allir hvað þetta er
vitlaust? Hins vegar er bæði gott
og nauðsynlegt að forðast slys.
Pétur Stefánsson sendir þessa frá-
rímuðu vorbraghendu:
Íslenskt vor er ylríkt, bjart
og undur snoturt.
Ekkert veit ég yndislegra
eða hér í veröld fegra.
Vilji menn senda mér braghendu
eða góðfúslegar ábendingar: npn@
vortex.is
Maríubréf Einars Más Jónsson-
ar kom út skömmu eftir páska og
hefur síðan verið lesið víða. Deili-
rit uppá þrjúhundruð og fimm-
tíu síður eru fátíð hér í fámenn-
inu. Þau komu reyndar nokkur út
í vor. Kippurinn er merkilegur og
bendir til að höfundar vilji reyna
á mátt bókarinnar til að sveigja
samtímaumræðu. Fyrstur var
til eftir langt skeið Andri Snær.
Hans bréf snerist um hugmynda-
fræðina íslensku, ófrjósemi henn-
ar og heimsku. Einar Már er mun
eldri en Andri og hefur ákaflega
víðan sjóndeildarhring: mennt-
un hans í miðaldafræðum, eðlis-
læg forvitni um ólíklegustu hluti,
nærvera hans í íslenskri menn-
ingu og sjálfskipuð fjarvera, en
Einar hefur um margra áratuga
skeið búið í París, sem gerir það
að verkum að hann horfir yfir
sviðið af stærri hól en flestir
aðrir. Svo bætir ekki úr skák að
höfundur bréfsins er fjörlegur
penni, hugmyndaríkur og frjór í
samsvörunum, andstæðum, hug-
renningameistari mikill. Bókin
er því afburðaskemmtileg og höf-
undur færist mikið í fang. Raun-
ar virðist mér hér faldar fáeinar
bækur í einni.
Hvað liggur honum á hjarta?
Hann grípur til þess ráðs að svið-
setja sjálfan sig að hluta í verk-
inu: miðja heimins er París og
hann er þar staddur í enn þrengri
brennipunkti: andlegt líferni lat-
ínuhverfisins er að sönnu fyrir-
ferðarmest efni í bréfinu og hin
áleitna spurning hvernig andleg-
ar skammvinnar tískubólur í hug-
myndasamkeppni franskra fræði-
manna gátu dreifst yfir allan hinn
menntaða heim, Ekki er ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur:
Sartre, Levi-Strauss, Althusser,
Barthes, Foucoult, Derrida og
Lacan eru dæmdir úr leik. Flestir
áhangenda þeirra eru að mati Ein-
ars sporgöngumenn öfgasinna úr
stúdentapólitík maóista og trotta.
Þetta er nokkuð snöfurmann-
leg afgreiðsla en víða sannfær-
andi þó ekki sé hún studd nægi-
legum tilvitnunum til að hún hafi
víðtækt gildi. Flesta þessa áhrifa-
miklu fræðimenn mannvísinda
lærðu menn hér á landi að þekkja
af þýðingum og nota jafnvel texta
þeirra í verðlaunuðum ritum í
þýðingum.
Einar sýnir fram á hvað það allt
var varasamt. Ein þessi langa
afgreiðsla er aðeins inngangur
að úttekt hans á nýlegri bólum,
frjálshyggjunni og röksemdum
hnattvæðingar í hugsunarhætti.
Gott ef það er ekki eitthvað þing
hér á landi nú um helgina þar sem
spekingar tala fyrir þessu tvennu
og mætti Einar vera þar að deila
við þá sem telja þjóðríkið liðið
lík.
Hvað gerir gömlum ofvita úr
Austurbæjarskóla, MR og Svarta-
skóla gerlegt að henda stórmenn-
um andlegrar hugsunar á haug-
ana sisona: jú, Einar er klassískt
menntaður og les sjálfur frum-
texta á mörgum tungum. Raunar
er einn lokahnykkurinn í ádeilu
hans vörn fyrir sígildri mennta-
stefnu þar sem hann hirtir ný-
mæli í skólun barna og því við-
horfi að íslenska sé annars flokks
mál. En maðurinn er með ein-
dæmum vel lesinn, greindur
og rökfastur á sitt mál. Mestu
skiptir þau að hann les samtíma
okkar í sögulegu ljósi, er skyggn
á hversu sjálfhverfur hugsunar-
háttur okkar tíma er á miklu
lengra tímaskeiði en við miðum
við.
Í huga manns brýst fram sökn-
uður að Einar skuli ekki hafa
tekið þátt í opinberri umræðu
meira og oftar en í einni bók og
fáeinum ritdómum. Rit hans er
hrópandi körp lýsing um sveita-
mennsku og fáfræði okkar sem
heima sitja. Líklega verður margt
í beittri gagnrýni hans þaggað af
þeirri kynslóð sem ólmust hljóp á
eftir tískubólunum uppúr 1970 og
lengi vel á eftir: falla nú margir
tittlingar til jarðar og spörfuglar
kveina.
Maríubréf úr Svartaskóla
Dregið úr réttum svörum n.k.
fimmtudag kl. 12. -99 kr. smsið
Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ
á númerið 1900!
Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón.
Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON.
LEYSTU
KROSS
GÁTUN
A!
ÞÚ GÆ
TIR UN
NIÐ
THE LA
ST KIN
G
OF SCO
TLAND
Á DVD
!
Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.gatur.net