Fréttablaðið - 26.07.2007, Síða 10

Fréttablaðið - 26.07.2007, Síða 10
Bæjarráð Grundarfjarðar samþykkti á fundi sínum á þriðjudag áskorun til ríkisstjórnar Íslands og þingmanna um að taka þegar í stað ákvarðanir sem stuðli að raunhæfum aðgerðum vegna skerðingar á þorskveiðiheimild- um í bænum. Bæjarráðið skorar á ríkisstjórnina að huga alvarlega að flutningi opinberra starfa til Grundarfjarðar og framlagi til staðbundinna verkefna. Í áskoruninni segir að afar mikilvægt sé að þegar í stað komi fram tilllögur um aðgerðir svo sveitarfélagið viti hvar það stendur og geti eftir atvikum hafist handa um staðbundnar mótvægisaðgerðir. Vilja raunhæfar aðgerðir strax „Það er stefnt á að bæklingurinn verði kominn í alla bílaleigubíla fyrir verslunar- mannahelgi,“ segir Einar Guðmundsson, forvarnafulltrúi Sjóvár. Fyrirtækið hefur í samstarfi við lögregluna unnið að útgáfu fræðslubæklings sem ætlaður er erlendum ökumönnum. Í Fréttablaðinu á mánudag var sagt frá því að hækkaðar sektir hefðu ekki skilað sér meðal erlendra ökumanna. Til að bregðast við þessu var ákveðið að koma út upplýsingabæklingi og nú hefur fengist fjármagn til að prenta hann. Útlendingum kennt að keyra Kínversk stjórnvöld vara fólk við því að kyssast mikið á almannafæri, því slíkt athæfi gæti náðst á öryggismyndavélar og vakið grun um afbrot. Fréttastofan Xinhua segir að „innilegar athafnir gætu í byrjun flokkast undir „mannrán“ eða „rán“ í tölvunum, sem eru forritaðar til að nema brot á öruggri fjarlægð milli fólks.“ Lögreglumenn á vakt, sem fylgjast með vélunum, ættu þó að meta í hverju tilviki hvort hætta sé á ferðum. Á næstunni verða sett upp viðvörunarskilti fyrir ástfangin pör um að myndavélar séu að fylgjast með. Fólk varað við að kyssast Hagnaður hluthafa í Kaupþingi banka nam 45,8 millj- örðum króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum árs og jókst um 43,8 prósent milli ára. Sé hlut- deild minnihluta tekin með í reikninginn telst hagnaðurinn 46,8 milljarðar króna. Tekjur Kaupþings námu 51,8 milljörðum króna á fyrri árshelmingi. Hagnaður hluthafa á öðrum árs- fjórðungi nam 25,5 milljörðum króna, og jókst um 95,5 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Uppgjörið var talsvert yfir vænt- ingum, en meðaltalsspá greining- araðila hljóðaði upp á tæplega 20,9 milljarða hagnað. Hreiðar Már Sigurðsson, for- stjóri Kaupþings, sagði uppgjörið einkennast af mikilli aukningu þóknanatekna og góðum vexti í hreinum vaxtatekjum. Þá sagðist Hreiðar ánægður með mikinn viðsnúning í rekstri Kaupþings Singer og Friedlander á Bret- landi, auk þess hve vel rekstur allra helstu afkomueininga bank- ans gengi. „Uppgjörið einkennist af miklum vexti á öllum vígstöðv- um. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá hversu vel hefur gengið að safna innlánum í bankanum, þar við höfum náð í kringum fimm hundruð milljarða.“ Hreiðar játti því að góð frammi- staða Kaupþings hér á Íslandi skýrði að miklu leyti þetta góða uppgjör. „Afkoman hér heima var töluvert betri en við áttum von á. Markaðurinn hefur verið alveg ótrúlega sterkur, og mikil við- skipti sem er náttúrulega gott fyrir banka eins og okkar.“ Aðspurður sagði Hreiðar að ekkert hefði verið ákveðið um hvort fara ætti fram á leyfi frá norska fjármálaeftirlitinu til að auka hlut Kaupþings í norska tryggingafélaginu Storebrand. Kaupþing á nú tuttugu prósenta hlut í félaginu, sem metinn er á 52,5 milljarða króna, en áður hefur verið gefið út að stefnt sé að því að eignast fjórðungshlut. Fjármálaeftirlitið heimilaði Kaupþingi á sínum tíma að fara með tuttugu prósenta hlut að hámarki. Fram kom í máli Hreiðars á uppgjörsfundinum að Kaupþing ætti nú um einn milljarð evra, eða sem samsvarar 82 milljörðum króna, sem mætti nýta til fjár- festinga, Með útgáfu nýs hluta- fjár mætti síðan þrefalda þá upp- hæð. Hann tók þó fram að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um frekari fjárfestingar bank- ans. Geta fjárfest fyrir 246 milljarða Kaupþing skilaði 25,5 milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi. Fjárfestingargeta bankans nemur allt að þremur milljörðum evra. Hagnaður hluthafa á fyrri helmingi ársins nemur 45,8 milljörðum króna. Kona sór í gær emb- ættiseið forseta Indlands í fyrsta skipti í sögunni. Í setningarræðu sinni sagði Pratibha Patil að for- gangsmál hennar yrðu að taka á misrétti gegn konum á Indlandi. Þrátt fyrir að þetta sé almennt álitið mikilvægt skref fyrir kven- réttindabaráttuna á Indlandi hefur einnig borið á gagnrýni í garð Patil frá konum sem segja hana ekki þess umkomna að vera leiðtogi þeirra. „Hún var valin vegna holl- ustu sinnar,“ sagði Madhu Kish- war, ritstjóri Manushi, tímarits um femínisma og mannréttindi, og vísar þar til alkunnrar tryggð- ar Patil við hina valdamiklu Nehru-Gandi-fjölskyldu. Patil var handvalin í embættið af Soniu Gandhi, leiðtoga ráðandi flokksins á Indlandi, Þingflokksins, og vann öruggan sigur á andstæðingi sínum þar sem hún naut stuðnings flokksins og pólitískra samherja hans. Þrátt fyrir að konur hafi setið í valdamiklum embættum á Ind- landi, á borð vid Gandhi og tengda- móður hennar, Indiru Gandhi sem var kjörin forsætisráðherra 1966, er misrétti gagnvart konum útbreitt á Indlandi. Dætur eru oft álitnar byrðar á fjölskyldum sínum þar sem sam- kvæmt hefð borga fjölskyldur þeirra með þeim háan heiman- mund. Algengt er að menntun þeirra sé ábótavant og margar fái ekki læknisþjónustu þegar þær veikjast. Ætlar sér að efla rétt kvenna umboðið ALLIR Á VÖLLINN! UNDANÚRSLIT Í EM KVENNA U-19 ÞÝSKALAND - FRAKKLAND ENGLAND - NOREGUR KR-völlur, fim. 26. júlí - kl. 19.00 Laugardalsvöllur, fim. 26. júlí - kl. 16.00

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.