Fréttablaðið - 26.07.2007, Side 19

Fréttablaðið - 26.07.2007, Side 19
MITSUBISHI L-200 ÓTRÚLEGA FJÖLHÆFUR JEPPI Á FRÁBÆRU VERÐI 2.990.000 kr. Veglegur aukahlutapakki innifalinn: Álfelgur • 32" dekk • Klæðning í palli • Dráttarbeisli H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 6 0 2 Virkur þ átttakandi Mikilvægir eiginleikar Komdu og reynsluaktu Einnig fáanlegur sjálfskiptur á aðeins 3.230.000 kr. verði meðallífshamingja og lífslíkur þegn- anna eru lágar auk þess sem þeir nota mikið af jarðefnaeldsneyti eins og olíu. Í Eistlandi og Lúxemborg eru flest „kolefnisfótspor“ á íbúa - aðal- ástæðan fyrir því að Lúxemborg mengar svo mikið er að í landinu er mikið af ferða- og flutningafyrir- tækjum sem nota um sextíu prósent af orku landsins, sem er tvöfalt meira en meðaltalið í öðrum löndum Evrópu. Höfundar skýrslunnar segja að ekk- ert land í Evrópu búi yfir eins mikið af endurnýjanlegum orkulindum og Ísland en að margar þjóðir, til að mynda Grikkir, ættu að reyna að nýta endurnýjanlegar orkulindir sínar betur því það skili sér í minnk- andi losun kolefnissambanda. Jafn- framt eigi ríkisstjórnir í Evrópu að setja sér kolefniskvóta til þriggja til fimm ára, til að draga úr loftslags- breytingum. Þeir telja einnig að ríkisstjórnir Evrópu ættu að reyna að draga úr efnhags- og félagslegum ójöfnuði, og vísa sem fordæmi meðal annars til Norðurlandanna, því ójöfnuður ýti undir ofneyslu í samfélögum sem að þeirra mati er helsta orsökin fyrir alltof mikilli mengun í Evrópu. Félagslegur jöfnuður er því helsta forsendan fyrir því að minnka mengun í Evrópu að mati höfund- anna því að lífshamingja og umhyggja þegnanna fyrir umhverf- inu séu besta vopnið í baráttunni gegn hlýnun jarðar. Tveir pókerspilarar, Phil Laak og Ali Eslami, rétt mörðu tölvuforritið Polaris í pókerkeppni í fyrradag. Keppendurnir spiluðu tvö þúsund leiki á tveimur dögum gegn forritinu á gervigreindar- ráðstefnu í Kanada. Þetta kemur fram á vef tímaritsins New Sci- entist. Keppnin fór þannig fram að hvor spilari um sig keppti einn á móti forritinu, hvor í sínu her- bergi, samtímis. Spilin voru gefin þannig að forritið fékk alltaf sömu hendi og keppandinn í hinu her- berginu. Ef Laak var til dæmis með fullt hús á hendi í sínum leik þá var forritið með nákvæmlega sömu spil á hendi í leik sínum gegn Eslami í hinu herberginu. Þetta var gert til að minnka þau áhrif sem heppni hefur á venjulega pókerleiki. Eftir þúsund leiki á mánudegin- um hafði tölvan naumlega yfir- höndina gegn mönnunum, en þeir náðu að merja sigur daginn eftir. Laak og Eslami sögðu keppnina hafa verið virkilega erfiða og þeim þætti mikið til hæfileika for- ritsins koma. Úrslitin þýða að manneskjur hafa enn yfirburði yfir tölvum í póker, en damm var leyst á dögun- um með forriti sem spilar alltaf fullkominn leik. Ef forritið spilar gegn sjálfu sér lýkur öllum leikj- um með jafntefli. Ekki er hægt að leysa póker á sama hátt því spilarinn hefur ekki allar upplýsingar um leikinn hverju sinni, eins og í dammi, og þarf því að reiða sig á líkur og blekkingar til að vinna. Mörðu tölvu í pókerkeppni

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.