Fréttablaðið - 26.07.2007, Page 21
Flestir hugsa meira um
magann en umhverfið þeg-
ar grillað er. Útigrill geta
valdið loftmengun í garðin-
um, sérstaklega ef grillað
er á kolagrilli.
„Ég hugsa að fæstir hugsi um
umhverfisþáttinn þegar þeir
grilla,“ segir Þorsteinn Jóhanns-
son, sérfræðingur hjá Umhverfis-
stofnun. Hann segir að þótt meng-
un af völdum útigrilla hafi aldrei
verið mæld hér á landi sé hún
eflaust umtalsverð. „Öll mengun
hefur áhrif og þótt hún sé ekki
yfir neinum hættumörkum er full
ástæða til að huga að þessum
málum,“ segir Þorsteinn sem
hvetur fólk til þess að nota gas-
grill fremur en kolagrill.
„Kolagrill valda margfalt meiri
mengun en gasgrill. Gasbruni er
mjög hreinn og við slíkan bruna
myndast nær eingöngu koldíoxíð
sem er gróðurhúsalofttegund en
skaðlaus fólki. Þegar grillað er á
kolagrilli myndast kolmónoxíð og
brennisteinsmónoxíð sem eru
eitraðar lofttegundir,“ segir Þor-
steinn og bendir á að við kola-
bruna myndist einnig mikið sót
eða svifryk sem getur verið
hættulegt að anda að sér.
Þegar grillað er á kolum varir
bruninn mun lengur sem verður
til þess að þeir sem grilla á kola-
grilli sóa meiri orku og nota meira
jarðefnaeldsneyti en þeir sem
grilla á gasi.
Þorsteinn segir að af því jarð-
efnaeldsneyti sem í boði er sé
gasið einna skást og því skynsam-
legra að fjárfesta í gasgrilli þótt
það sér örlítið dýrara. Svo er bara
að bíða og sjá hvort þess verði
krafist í framtíðinni að menn kol-
efnisjafni sig eftir hverja grill-
máltíð.
Gasgrill eru umhverfisvænni
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Tryggvabraut 1–3, Akureyri • Sími 460 3630
Afgreiðslutími
Mánudaga–föstudaga 8–18,
laugardaga 10–16
og sunnudaga 12–16
(ath. lokað sunnudaga á Akureyri)