Fréttablaðið - 26.07.2007, Síða 42

Fréttablaðið - 26.07.2007, Síða 42
 26. JÚLÍ 2007 FIMMTUDAGUR10 fréttablaðið ísmót Heildverslunin Aría er með umboð fyrir Schwarzkopf og Ind- ola hárliti og er eitt þeirra fyrir- tækja sem halda litakeppni innan ÍSMÓTS. Sigrún Ægisdóttir á Hársögu er einn af eigendum Aríu og telur fyrirtækið eiga góða möguleika í keppninni milli umboðsaðila. „Litirnir frá Indola og Schwarzkopf eru sérlega öruggir í notkun þannig að það er hægt að stóla mjög á þá,“ segir Sig- rún og bætir við: „Þeir eru bjartir, fallegir, djúpir og hreinir auk þess sem þeir tolla vel í, þannig að ég held að við eigum góða möguleika í keppninni.“ Sigrún sér fyrir sér að rauð- ir litir komi sterkar inn með haustinu en verið hefur en að auki fallegir ljósir litir í ýmsum litbrigðum. „Það er mikið um kalda, bleika tóna sem eru þá fölir og koma inn sem aukalitir með öðrum,“ segir Sigrún og bætir því við að litatækninni hafi fleygt fram. „Heillitun er mikið notuð í dag en svo er ýmiss konar lita- tækni notuð til að ná fram dýpt og hreyfingu í hárið. Með flottri lita- tækni er hægt að ná fram flottri útkomu með ýmsum skyggingum og litbrigðum.“ Sigrún segir að á stofunum sé litun orðið mjög mikilvægt atriði. „Þá skiptir gríðarlegu máli hvernig þetta er gert og með hvaða litum þannig að það má segja að þetta sé orðin listgrein.“- sig Litun er listgrein Heildverslunin Ison í Kópa- vogi er með umboð fyrir Z.One hárlitina frá New Attitude. Hjónin Jakob R. Garðarsson og Sólrún Óskarsdóttir eru eigendur heildverslunarinnar og ætla að taka þátt í lita- keppni umboðsaðila á ÍSMÓT 2007. Jakob segir allt vera í gangi í litum og í raun allt leyfilegt líka. „Kaldir litir hafa verið mest áber- andi undanfarið en við selj- um samt rosalega mikið af hlýjum, brúnum litum líka,“ segir Jakob. Spurður hverjir kost- ir litalínunnar séu, segir Jakob: „Línan hefur marga kosti og má nefna að litirn- ir innihalda andoxunarefn- ið Integrity 41, sem gerir það að verkum að litirnir haldast betur í hárinu auk þess sem meiri dýpt verð- ur í litunum.“ Jakob bætir því við að þetta efni sé líka í sjampóunum frá Z.One, sem styðji því einstaklega vel við hárlitinn. „Litirnir eru mjög þægilegir í blönd- un og ilma af apríkósum þannig að það er ekki mikil ammoníakstækja í litun- um. Þá fara þeir líka rosa- lega vel með hárið enda er efnasamsetningin þannig að það er ólífuolíuþykkni með vítamín- og steinefna- blöndu í litunum þannig að hárið getur oft verið í betra ástandi eftir litun heldur en fyrir ef góðir litir eru notaðir. Liturinn fyllir þá upp í glufur í hárinu og það má segja að hann fínpússi hárið,“ segir Jakob. Jakob segir að um sjötíu stofur á landinu noti litina frá Z.One og væntir góðr- ar þátttöku frá stofunum í keppninni. „Síðan verð- um við líka með í sýning- unni og kynnum þar allt til hárlengingar. Mesti vaxtar- broddurinn í faginu í dag tengist hárlengingum enda eru þar mestu nýjungarn- ar. Hárlengingar eru rosa- lega skemmtilegt fyrir- bæri og mjög vandað hár notað í þær,“ segir Jakob og bætir því við að margar konur geti vart án lenging- anna verið þegar þær hafi vanist þeim. - sig Kaldir litir vinsælir í ár Ásbjörg Högnadóttir, sölumaður og litaráðgjafi Ison, Jakob R. Garðars- son og Sólrún Óskarsdóttir, eigendur Ison, ætla að halda utan um litakeppni fyrir hönd heildverslunarinnar Ison á ÍSMÓT 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sigrún Ægisdóttir á Hársögu segir litina frá Schwarzkopf og Indola hafa marga kosti sem veita Aríu góða möguleika í litunarkeppn- inni á ÍSMÓT. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004 MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu. HANN ER GRIMMUR! MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER - VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár - Útvegum notaða skotbómulyftara - Úrval notaðra lyftara á lager Fjórhjóladrifinn Fjórhjólastýrður Lyftigeta: 3.400 KG Lyftihæð: 6.050 MM Gafflar: 1.200 MM Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar án aukins snúningshraða vélar. SKOTBÓMULYFTARI PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf. Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is Upplýsingar og skráning á www.si.is/ismot

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.