Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2007, Qupperneq 45

Fréttablaðið - 26.07.2007, Qupperneq 45
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2007 13ísmót fréttablaðið Á ÍSMÓT 2007 verða veittar viðurkenningar fyrir stofu ársins í öllum þeim greinum sem keppt er í á hátíðinni. Brynjar Ragnarsson, markaðsstjóri Sam- taka iðnaðarins, segir vegleg verðlaun í boði fyrir stofur ársins en stærstu verðlaunin eru titillinn Stofa ársins 2007. „Það er sama keppnisregla fyrir allar stofurnar og er tekið tillit til fimm þátta sem varða rekstur stofanna: ímynd og umgjörð stofunnar, markaðs- setning, samskipti og viðmót við viðskiptavini, ný- sköpun og framtíðarsýn,“ segir Brynjar og bætir því við að í dómnefndinni sé þrautreynt fagfólk úr viðskiptalífinu. Keppnin er haldin að erlendri fyrirmynd sem gengur fyrir allar þessar mismunandi greinar. „Það er ekkert launungarmál að sú hátíð sem við höfum sem fyrirmynd er Global Salon Award í Hollywood. Sú hátíð er þó eingöngu haldin fyrir hárgreiðslu- stofur og mun hársnyrtistofa ársins verða tilnefnd til verðlauna á hátíðinni í Hollywood auk þess sem hún fær aðstoð við að útfylla umsóknina í þá keppni.“ Brynjar segir hin fagfélögin vera að kanna hvort hægt sé að senda stofur ársins í einhverjar slíkar keppnir á erlendri grundu en helsta viðurkenning- in felist þó í því að vera stofa ársins í hverju fagi fyrir sig. - sig Stofur ársins að erlendri fyrirmynd Brynjar Ragnarsson, markaðsstjóri Samtaka Iðnaðarins, var fangaður af Tískuteymi- SI á sýningunni Konan í október síðastliðnum. Á myndinni eru Helga Jónsdóttir gull- smiður, Edda Nína Heide úrsmiður, Margrét Sverrisdóttir stjórnmálakona, Heiðdís Rúna Steinsdóttir snyrtifræðingur, Sigrún Kristín Ægisdóttir hársnyrtimeistari, Edda Hrönn Atladóttir í Leðuriðjunni Atson og Selma Ragnarsdóttir klæðskeri. Kormákur Geirharðsson var hluti af tískuteymi hjá Sam- tökum iðnaðarins árið 2003 og var hæstánægður með út- komu teymisins. „Þátttaka mín varð út af því að ég var að verða fertugur og leit- aði til klæðskera til að láta sauma á mig jakkaföt,“ segir Kormákur og bætir við: „Móðir mín hafði gefið bræðr- um mínum íslenska þjóðbún- inginn í fertugsafmælisgjöf en ég vildi frekar fá hnébux- ur. Síðan var þessi skradd- ari sem ég talaði við í þessu teymi þannig að þetta passaði afskaplega vel.“ Kormákur fékk fötin ódýrari en ella fyrir þátttökuna gegn því að sitja fyrir á myndum. „Það leiðist mér aldrei,“ segir hann og hlær. Spurður hvort það hafi verið skemmtilegt að taka þátt í teymisvinnunni segir Kormákur: „Það var alveg þess virði að taka þátt í þessu og ég hef notað fötin við há- tíðleg tækifæri síðan og er búinn að fá mér nokkur í við- bót í sama stíl.“ - sig Nýtist við hátíðleg tækifæri Kormákur Geirharðsson hefur notað fötin úr teymisvinnunni við hátíðleg tækifæri en upphaflega voru þau saumuð fyrir fertugsaf- mælið hans. Umsjón með vöru- og þjónustusýningu ÍSMÓTS 2007: AP-sýningar, sími 511 1230, netfang ismot@appr.is AP SÝNINGAR Sími 511 1230 Netfang ismot@appr.is fagmennsku í tísku, íslenskt handverk og hönnun, gæði og glæsileika - og allt um heilsu, hollustu, dekur og vellíðan - fyrir fólk á öllum aldri Enginn aðgangseyrir Búist er við þúsundum gesta alla helgina Fyrirtæki, félög og stofnanir kynna m.a. Sýning sem skapa mun ný viðmið Heitasta sölusýning haustsins Í tengslum við ÍSMÓT 2007: helgina 1. og 2. september í nýju Laugardalshöllinni Nánari upplýsingar á www.si.is/ismot
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.