Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2007, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 26.07.2007, Qupperneq 70
Sænski landsliðsmaðurinn Freddie Ljungberg, nýjasti liðs- maður Íslendingaliðsins West Ham í ensku úrvalsdeildinni, fékk góðan samning hjá stjórnarformanninum Eggerti Magnússyni. Er hann það góður að hann ætlar að hætta öllum fyrirsætustörfum samhliða boltan- um, eins og hann hefur gert þau níu ár sem hann hefur verið hjá Arsen- al. Þessu er haldið fram í sænskum fjölmiðlum í gær. Ljungberg hefur lengi verið kyn- tákn í augum sænskra kvenna og fleiri kynsystra þeirra um allan heim, en Ljungberg hefur verið vinsæl fyrirsæta í tískuheiminum og meðal annars verið eitt helsta andlit tískuvörurisans Calvins Klein. Nú mun Ljungberg hins vegar vera búinn að fá nóg af fyrir- sætustörfunum í bili og ætlar að setja alla sína krafta í að gera West Ham að toppliði í ensku úrvals- deildinni. Að sögn umboðsmanns Ljung- bergs, Claes Elefalk, hefur leik- maðurinn litið framhjá áhuga ótal félaga öll þau níu ár sem hann var á mála hjá Arsenal. „Það þurfti eitt- hvað mjög mikið til að fá hann burt frá Arsenal,“ segir Elefalk. Framtíðaráætlanir Eggerts með West Ham, auk fjögurra ára samn- ingsins sem hann bauð Ljungberg, varð til þess að hann ákvað að yfir- gefa Arsenal. „Þetta er ótrúlegur samningur. Hann er sögulegur fyrir sænskan fótbolta,“ segir Elefalk. Heimildum sænskra og enskra fjölmiðla ber ekki saman um laun Ljungbergs og heyrast tölur frá 60 til allt að 100 þúsundum punda í viku- laun. Það eru um 7-12 milljónir íslenskar krónur á viku, sem gerir Ljungberg að einum launahæsta leikmanni ensku úrvalsdeildarinnar. Eggert er hins vegar í skýjunum með komu Ljungbergs til félagsins og af ummælum hans telur hann sænska landsliðsmanninn vera hverrar krónu virði. „Þetta hefur verið einn af stærstu dögum lífs míns,“ sagði Eggert eftir að hann kynnti Ljungberg sem leikmann West Ham. „Hann mun koma til með að lyfta þessu félagi á næsta stall. Hann hefur með sér allt sem þarf til að gera West Ham að sigursælu liði,“ segir Eggert, auk þess sem hann er ekki í vafa um að fjölga muni í kvenkyns aðdáendahópi félagsins. „Freddie mun koma til með að lokka nýja áhangendur til félags- ins. Hann er þekktur í öllum heim- inum og á eftir að gera West Ham að heimsfrægu vörumerki.“ Freddie Ljungberg ætlar að hætta að starfa sem fyrirsæta og einbeita sér algjörlega að fótboltanum með West Ham, enda hefur hann nú efni á því. Umboðsmaður Ljungbergs lýsir samningi hans við West Ham sem ótrúlegum. Eggert Magnússon er sannfærður um að kvenkyns aðdáendum liðsins muni fjölga á næstunni. Landsliðskonan Ásthild- ur Helgadóttir, leikmaður Malmö í Svíþjóð, mun gangast undir aðgerð á liðþófa þann 9. ágúst næstkomandi og mun því að öllum líkindum missa af leik Íslands og Slóveníu ytra í undankeppni Evrópumóts kvenna sem fram fer 26. ágúst. Ásthildur hefur verið sárþjáð í hnénu frá því um miðjan maí og segir aðgerð óumflýjanlega. „Ég get ekki spilað meira en 20- 25 mínútur í leik og því verður að láta laga þetta,“ segir Ásthildur, sem verður væntanlega um 4-6 vikur að ná sér. „Ég vil ekki alveg útiloka að geta tekið þátt í landsleiknum en auðvitað er það hundsvekkjandi að missa af þeim leik. En ef ég hefði átt að missa af einhverjum leik, þá er þessi líklega skásti kosturinn,“ segir Ásthildur og vísar til þess að Slóvenía er neðst í riðlinum og hefur ekki skorað mark til þessa. Fer í aðgerð á liðþófa Enn er verið að ganga frá smáatriðum í kaupum sænska handboltaliðsins Malmö á miðjumanninum Valdimar Fannari Þórssyni hjá Fram og verður væntanlega ekki gengið frá félagsskiptunum fyrr en eftir helgi. Á meðan viðræður félag- anna standa yfir er Valdimar í æfingabúðum með sænska liðinu þar sem hann segir álagið heldur meira en hann hefur áður kynnst. „Þetta er hörkupúl og það er æft þrisvar dag, samtals í rúma fimm tíma. En mjög gaman,“ segir Valdimar. „Liðið er gott og leikmenn eru mun teknískari en heima. Ég er sannfærður um að ég verði betri handboltamaður hérna úti,“ bætti hann við. Æfir þrisvar á dag í Svíþjóð Spilum vonandi saman í Landsbankadeildinni ÍS L E N S K A S IA .I S O R K 3 81 51 0 7 /0 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.