Fréttablaðið - 07.09.2007, Síða 2
Bjarnleifur, er glatt á hjalla í
Glaðheimum?
„Í dag mun allur heimur-
inn hlusta á rödd hans á hverri ein-
ustu útvarps- og sjónvarpsstöð,“
sagði ítalski tenórinn Placido
Domingo um félaga sinn Luciano
Pavarotti, sem lést í fyrrinótt. „Og
það mun halda áfram,“ bætti
Domingo við. „Hann mun aldrei
hætta.“
Pavarotti var 71 árs þegar hann
lést á heimili sínu í Modena á Ítalíu
af völdum krabbameins í brisi,
sem hann hafði glímt við frá því á
síðasta ári. Hann var lagður aftur
inn á sjúkrahús í síðasta mánuði en
nú síðustu dagana dvaldi hann
heima hjá sér í faðmi fjöl-
skyldunnar.
„Þetta er mjög dapurlegur
dagur, og ekki bara fyrir óperu-
heiminn,“ sagði spænski tenórinn
Jose Carreras, sá þriðji af „tenór-
unum þremur“ – ásamt Pavarotti
og Domingo, sem slógu svo ræki-
lega í gegn á síðasta áratug. Rödd
Pavarottis þótti nánast einstæð í
óperusögunni og hann gerði meira
en flestir til að afla óperutónlist
vinsælda víða um heim.
„Hann var auðvitað einn stór-
brotnasti tenór sögunnar, einn af
mikilvægustu söngvurum óper-
usögunnar,“ sagði Carreras og
bætti því við að Pavarotti hefði
reynst sér góður vinur og hjálpað
sér í gegnum erfið veikindi á
sínum tíma.
Pavarotti verður jarðsunginn á
morgun í dómkirkjunni í Modena.
Einstæð rödd er þögnuð
Sex konur og einn karl
sóttu um embætti prests í
Dómkirkjuprestakalli. Umsækj-
endur eru sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir, sr. Ása Björk
Ólafsdóttir, sr. Guðbjörg Jóhann-
esdóttir, sr. Guðrún Karlsdóttir,
dr. theol. Rúnar M. Þorsteinsson,
cand. theol. Sigríður Hrönn
Sigurðardóttir, sr. Þórhildur
Ólafs.
Ólafur Jóhannsson, formaður
Prestafélags Íslands, segir konur
skipa rúmlega 27 prósent
prestastéttar á Íslandi.
„Að hluta til endurspegla
þessar umsóknir ákveðið viðhorf
margra presta um að þar sem
tveir prestar þjóni saman þá sé
annar karl og hinn kona,“ segir
Ólafur.
Sex konur og
einn karl sóttu
um embætti
Uppstoppað eyði-
merkurljón sem flutt var til Íslands
í fyrrasumar á að færa úr vörslu
Umhverfisstofnunar og koma í
hendur lögreglu. Þetta segir
umhverfisráðuneytið, sem fékk
kæru frá eiganda ljónsins vegna
ákvörðunar Umhverfisstofnunar
um að leggja hald á það.
Eyðimerkurljón eru á lista yfir
dýr í útrýmingarhættu. Þessu ljóni
fylgdi útrunnið suður-afrískt leyfi
fyrir útflutningi til Bandaríkjanna.
Í úrskurðinum segir að Umhverfis-
stofnun hafi farið út yfir valdsvið
sitt með því að taka ljónið. Lög-
reglan eigi að fá ljónið og rannsaka
málið. Eigandinn, sem mun vera
uppstoppari og safna sjaldgæfum
dýrum, fær því ljónið að minnsta
kosti ekki í bráð og líkast til aldrei.
Umrætt eyðimerkurljón er
reyndar í augnablikinu í sýningar-
kassa í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þar hefur það verið frá því þremur
dögum fyrir alþingiskosningar í
vor. Þá afhjúpaði þáverandi
umhverfisráðherra, Jónína
Bjartmarz, sýningarkassann með
ljóninu og fleiri dýrum og afurðum
af dýrum í útrýmingarhættu.
Tilgangurinn er að vekja athygli á
alþjóðlegum samningi um bann við
verslun með dýr og plöntur í
útrýmingarhættu og með afurðir
úr þeim.
„Það er óvenjuslæmt að
hafa ekki starfsfólk á göngum í
550 barna skóla við upphaf
skólaárs,“ segir Kristín Jóhanns-
dóttir, aðstoðarskólastjóri
Hagaskóla.
Enn vantar tvo skólaliða og
einn starfsmann í mötuneyti í
skólann. „Stjórnendur verða
auðvitað að bregðast við þegar
ástandið er svona og við höfum
gengið í þessi verk sjálf.“ Kristín
segir ástandið helst bitna á því
starfsfólki sem fyrir er og
nemendum.
„Nemendur fá ekki eins mikla
gæslu á göngunum og ætti að
vera,“ segir Kristín og bendir á
að komi upp atvik á göngunum sé
öryggi nemenda ekki tryggt
þegar ekkert starfsfólk sé til
staðar.
Aðstoðarskóla-
stjórinn vinnur
í mötuneytinu
Íslendingar nota
hlutfallslega langminnst af
jarðefnaeldsneyti af þeim
ríkjum sem falla undir Kyoto-
bókunina samkvæmt nýrri
skýrslu Loftslagsstofnunar
Sameinuðu þjóðanna um hvernig
draga megi úr útstreymi
gróðurhúsalofttegunda hjá
viðkomandi ríkjum. Greint er frá
þessu á heimasíðu Samtaka
atvinnulífsins.
Hlutur Íslands er einungis
27,5% af heildarorkunotkun
þjóðarinnar þar sem að hér er
einungis notuð endurnýjanleg
orka til raforkuframleiðslu og til
upphitunar.
Írland er með hæsta hlutfall
notkunar jarðefnaeldsneytis eða
98 prósent. Meðaltalið hjá ESB
eru tæp 80 prósent.
Ísland notar
langminnst
Þrjú fyrirtæki hafa
þegar skoðað aðstæður á Íslandi
fyrir uppsetningu netþjónabúa og
bendir margt til að fyrirtæki með
Íslendinga í fararbroddi muni
ríða á vaðið, að því er kom fram í
ræðu Össurar Skarphéðinssonar
iðnaðarráðherra á ráðstefnu um
netþjónabú í gær.
Fyrirtækin íhuga uppsetningu
stórbúa sem þurfa hvert um sig
raforku sem nemur 50 til 100
megavöttum innan næstu ára.
Raforkuþörf fyrir slíka starfsemi
gæti á næstu þremur til fimm
árum numið 200 til 250 mega-
vöttum samkvæmt áætlunum
iðnaðarráðuneytisins. -
Þrjú fyrirtæki
hafa sýnt áhuga
Húsin við Lækjar-
götu 2 og Austurstræti 22 sem
brunnu í apríl verða endurreist í
sinni upprunalegu mynd; horft
verður til þess hvernig húsin litu
út á blómaskeiði sínu við endur-
byggingu þeirra. Einni hæð verður
hugsanlega bætt við húsið á Lækjar-
götu 2 og húsið sem stóð við
Lækjargötu 4, sem nú er á Árbæjar-
safni, verður kannski flutt aftur á
sinn upprunalega stað eftir að
húsið við Hafnarstræti 20 hefur
verðið rifið.
Tillaga frá arkitektastofunum
Argosi, Gullinsniði og Studio
Granda sem meðal annars felur
þetta í sér var valin úr sextán til-
lögum sem bárust í hugmyndasam-
keppni sem Reykjavíkurborg efndi
til eftir brunann. Dómnefnd sem
valdi tillöguna kynnti hana í gær.
Tillagan ber heitið Ó borg, mín
borg og er sögulegt samhengi og
varðveisla sögulegra minja sagt
vera forgangsatriði í henni. Hlutar
tveggja annarra tillaga sem var
skilað inn verða auk þess keyptar
og verður líka unnið með þær við
gerð nýs deiliskipulags fyrir Kvos-
ina.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
meðlimur í dómnefndinni og for-
maður Skipulagsráðs Reykjavíkur-
borgar, segir að borgaryfirvöld
vilji að tillagan verði undirstaðan í
nýja deiliskipulaginu, „Við féllum
algerlega fyrir þessari tillögu. Hún
markar nýtt upphaf fyrir þennan
elsta bæjarhluta borgarinnar,“
segir Hanna Birna.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri segist sannfærður um
að tillagan verði öllum Reyk-
víkingum til sóma, en sama dag og
húsin brunnu í apríl sagði hann að
þau yrðu endurbyggð. Hanna Birna
segist gera ráð fyrir því að vinnu
við nýja deiliskipulagið verði lokið
fyrir áramót og Vilhjálmur borgar-
stjóri segist reikna með að fram-
kvæmdir á svæðinu geti hafist
fljótlega á næsta ári.
Margrét Harðardóttir, einn af
arkitektunum sem teiknuðu verð-
launatillöguna, segist vona að hægt
verði að ná sátt um tillöguna því
það sé miðbænum fyrir bestu. „Við
þurfum að byggja miðbæ Reykja-
víkur upp á almennilegan hátt og
þessi tillaga miðar að því.“
Hægt er að kynna sér tillöguna
betur á heimasíðu Reykjavík-
urborgar www.rvk.is
Talin marka nýtt
upphaf í Kvosinni
Húsin sem brunnu við Lækjargötu og Austurstræti verða endurbyggð og bætt.
Valin hefur verið tillaga frá arkitektum um uppbyggingu í Kvosinni sem farið
verður eftir við gerð deiliskipulags. Vinnu við deiliskipulagið á að ljúka fyrir jól.