Fréttablaðið - 07.09.2007, Page 13
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra
kynnti í fyrradag fundaröð sem
íslensk stjórnvöld efna til í vetur
í samvinnu við alla háskóla
landsins. Fundirnir munu snúast
um stöðu Íslands á alþjóðavett-
vangi, erindi og ávinning.
Rektorar háskólanna átta voru
viðstaddir kynninguna sem haldin
var í utanríkisráðuneytinu.
Fundaröðin hefst í dag í
Háskóla Íslands og henni lýkur á
vordögum 2008 með alþjóðlegri
ráðstefnu. Á fundum vetrarins
verða fjölmörg svið alþjóðamála
á dagskrá.
Ísland á al-
þjóðavettvangi
Rafrænir lyfseðlar voru
teknir í notkun á Selfossi um
síðustu mánaðamót. Er það
fyrsti áfangi í að innleiða slíkt
lyfseðlakerfi hér á landi,
samkvæmt upplýsingum frá
Lyfjastofnun. Áætlað er að
notkun rafrænna lyfseðla verði
komin í gagnið um land allt í
byrjun næsta árs.
Fyrir tveimur árum var
ákveðið að taka í notkun kerfi
fyrir ofangreinda þjónustu. Með
þessu fyrirkomulagi hafa
læknar aðgang að miðlægri gátt
þar sem lyfseðlar eru vistaðir og
hægt verður síðan að sækja þá í
hvaða lyfjabúð sem er.
Rafrænir lyf-
seðlar í notkun
Vodafone hefur gert samning við
kínverska fjarskiptafyrirtækið Huawei um
kaup á tæknibúnaði vegna uppbyggingar Vod-
afone á langdrægu GSM-farsímakerfi. Árni
Pétur Jónsson, forstjóri Teymis, móðurfélags
Vodafone, og Sun Zheng Yang, fulltrúi Hua-
wei, skrifuðu undir samninginn í utanrík-
isráðuneytinu í gær.
Uppsetning kerfisins hefst í október og er
áætlað að henni ljúki næsta sumar. Reykjanes
verður fyrst í röðinni og verður kerfið sam-
stundis virkt þar. Í heild verða fjörutíu sendar
settir upp meðfram strandlengjunni, hringinn
í kringum landið, auk þess sem nokkrir send-
ar verða settir upp á hálendinu.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis, segir
nýjungina verða mikla búbót fyrir GSM-not-
endur, ekki síst fyrir íbúa lítilla sjávarplássa,
trillukarla og aðra sjófarendur og ferðamenn
á fáförnum slóðum á hálendinu. Drægni send-
anna sé um fjórum til fimm sinnum meiri en
venjulegra GSM-senda, allt upp í hundrað
kílómetrar.
Hingað til hefur einungis NMT-kerfi Sím-
ans dugað á þeim slóðum sem GSM-farsíma-
kerfið náði ekki til. NMT-kerfið verður lagt
niður innan tveggja ára. Síminn mun þá taka
upp svokallað CDMA 450 kerfi. Sérstakan
síma þarf til að nota það. Þess gerist ekki þörf
með hið nýja farsímakerfi Vodafone. „Við
tókum ákvörðun um að prjóna við núverandi
kerfi. Við trúum því að fólk vilji nota eitt
símtæki alls staðar.“
Uppsetning kerfisins hefst í haust
Hæstiréttur staðfesti í
gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
karlmanni sem er ákærður fyrir
ellefu auðgunarbrot, tvö fíkni-
efnalagabrot og eitt umferðar-
lagabrot. Brotin voru framin í
desember, janúar, maí og júní
undanfarið ár.
Maðurinn hefur setið í gæslu-
varðhaldi frá 26. júní og er
aðalmeðferð fyrirhuguð 20.
september. Hann kærði gæslu-
varðhaldsúrskurðinn en hæsti-
réttur staðfesti úrskurðinn, meðal
annars með vísan til skýrslu
lögreglustjóra sem taldi sýnt að
maðurinn myndi halda áfram
afbrotum yrði hann látinn laus.
Síbrotamaður
áfram í haldi