Fréttablaðið - 07.09.2007, Síða 22
[Hlutabréf]
Þrátt fyrir versnandi verðbólgu-
horfur telur Seðlabanki Íslands
ekki tilefni til að hvika frá áætlun
um að lækkunarferli stýrivaxta
hefjist á fyrri hluta næsta árs.
Bankinn kynnti í gærmorgun
ákvörðun sína um óbreytta 13,3 pró-
senta stýrivexti.
„Nokkur gengisórói hefur verið
að undanförnu og verðbólguhorfur
til skamms tíma heldur lakari nú en
við síðustu vaxtaákvörðun,“ segir
Davíð Oddsson seðlabankastjóri en
segir um leið horfur til lengri tíma
lítið hafa breyst. Óvissa um þróun
krónunnar muni ekki síst ráðast af
framvindu á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum. Þá er það mat Seðla-
bankans að styrking krónunnar fyrr
á árinu hafi ekki skilað sér að fullu í
lægra vöruverði og það gefi tilefni
til að ætla að verðlagsáhrif
veikingar krónunnar að undanförnu
verði hóflegri en ella.
Samkvæmt spá Seðlabankans
nást verðbólgumarkmið um mitt
næsta ár. Versni horfur eða batni
segir Davíð bankann hins vegar
munu bregðast við.
Davíð segir Seðlabankann ekki
telja ástæðu til að bregðast við
fregnum af því að Straumur fjár-
festingarbanki skrái hlutabréf sín í
evrum. „Málið er ekki af þeirri
stærðargráðu,“ segir hann. Sömu-
leiðis segir Davíð Seðlabankann
ekki finna fyrir þrýstingi frá
atvinnulífinu, líkt og Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra
kveðst hafa fundið, um að hér beri
að taka upp evru sem gjaldmiðil.
Hann segir hins vegar að persónu-
lega finnist honum „fáránlegar“
hugmyndir sem erlendir fræði-
menn hafa hér reifað um vænleika
þess að taka hér einhliða upp evru
og vísað hafa til reynslu fátækra
ríkja af dollaravæðingu. „Hins
vegar er sjálfsagt og eðlilegt að
samfelld umræða sé í gangi um
þessi mál,“ segir hann.
Stefnu haldið þótt
horfur hafi versnað
Stýrivextir eru óbreyttir, 13,3 prósent. Seðlabankastjóri
segir einhliða upptöku evru „fáránlega“ hugmynd.
Peningaskápurinn ...
Tímamót urðu í sögu Kauphallar
Íslands í gær þegar ársvelta með
hlutabréf í einu félagi, það er í
Glitni, fór yfir 500 milljarða króna í
fyrsta skipti. Til samanburðar námu
viðskipti með bréf Glitnis 460 millj-
örðum króna í fyrra, sem var mesta
ársvelta allra félaga.
Þetta er til marks um þá miklu
veltuaukningu sem orðið hefur á
hlutabréfamarkaði á síðustu árum.
Árið 2002 nam heildarvelta með öll
hlutabréf í Kauphöll til dæmis um
321 milljarði króna en í ágúst síð-
astliðnum fór ársveltan yfir met-
veltu síðasta árs sem var um 2.200
milljarðar króna. „Þessar veltutölur,
sem við höfum verið að sjá fyrir
markaðinn í heild, eru einfaldlega í
línu við það sem við sjáum víða ann-
ars staðar. Þær eru eitt merkið um
það að markaðurinn er orðinn skil-
virkur og djúpur,“ segir Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Kauphallarinnar.
Hann bendir á að markaðsvirði
Glitnis sé um 427 milljarðar og því
hafi hvert hlutabréf í bankanum
skipt um hendur að minnsta kosti
einu sinni á árinu. „Viðmið okkar
hefur verið að veltan á markaðnum
fyrir árið samsvari markaðsvirði
hvers félags að meðaltali.“
Miklar breytingar hafa verið á
eignarhaldi stærstu hluthafa í Glitni
á árinu sem skýra að stórum hluta
þessa mikla veltu. Milestone færði
til hlutabréf á milli félaga í febrúar,
sem myndaði mikla veltu, og seldi
svo þrettán prósenta hlut í bankan-
um fyrir 54 milljarða króna í apríl.
Nú í vikunni keypti Glitnir tæp
fjörutíu prósent hlutafjár í TM og
fengu seljendur hluta kaupverðs
greitt með bréfum í bankanum.
Veltuhraði hlutabréfa, sem er
hlutfall milli veltu og hlutafjár
félaga, gefur til kynna seljanleika
bréfa og þar með hversu verðmynd-
un þeirra er góð. Hlutfallið er yfir
einn hjá Glitni sem og hjá Straumi
þar sem allt hlutafé bankans hefur
skipt um hendur einu sinni á árinu.
Glitnir fer fyrstur
yfir 500 milljarða
Velta með hlutabréf í bankanum er orðin meiri en heildarvelta í Kauphöll árið
2002. Kauphöllin miðar við að ársvelta félags samsvari markaðsvirði þess.
Stjórn verðbréfafyrirtækisins
Nordvest leggur fyrir hluthafa-
fund tillögu um að félaginu verði
slitið og að það afsali sér starfs-
leyfi sem verðbréfafyrirtæki.
Fundurinn fer fram 13. septem-
ber næstkomandi.
„Félagið hefur verið í sölu en
engir kaupendur fundist. Eini
möguleikinn á að félagið starfi
áfram er að kaupendur finnist
innan viku,“ segir Skúli Sveins-
son, framkvæmdastjóri Nord-
vest. Félagið hefur starfað síðan
árið 2001. Að sögn Skúla hefur
hallarekstur verið viðvarandi og
hefur Nordvest tapað um þrjátíu
milljónum króna það sem af er
ári.
Skúli segir lagaumhverfi hér
erfitt smærri fyrirtækjum. „Sömu
reglur gilda um stór og smá fyrir-
tæki, og það er ofboðslega kostn-
aðarsamt að fylgja öllum reglum.
Þetta er auðvitað gríðarlega óhag-
kvæmt.“ Um leið bendir Skúli á að
viðskipti félagsins hafi aukist um
þrjátíu prósent að meðaltali milli
síðustu sex ársfjórðunga og tekjur
tvöfaldast milli ára.
Hjá Nordvest starfa fimm
manns sem missa vinnuna nái til-
laga stjórnar fram að ganga. Hlut-
hafar eru um tvö hundruð.
Leggja á Nordvest niður
Auglýsing vegna aukningar stofnfjár
Ákveðið hefur verið að auka stofnfé um kr. 2.971.234.536 með útboði þar sem
stofnfjáreigendum verður boðið að skrá sig fyrir nýju stofnfé sbr. samþykktir
sparisjóðsins þar að lútandi. Heildarnafnverð nýs stofnfjár í útboðinu er
kr. 1.565.854.263 og er verð hvers stofnfjárhlutar kr. 1,89751665. Útboðið sem
nú fer í hönd er forsenda þess að hægt sé að ná skiptihlutföllum sem gert er ráð
fyrir í fyrirhuguðum samruna við Sparisjóð Kópavogs, en samrunaáætlun var
undirrituð af stjórnum sjóðanna 27. júní síðastliðinn.
Í dag hafa allir stofnfjárhlutir í BYR - sparisjóði verið skráðir rafrænt hjá
Verðbréfaskráningu Íslands. Svo mun einnig verða um nýtt stofnfé sem gefið
verður út í tengslum við aukningu þessa.
Útboðslýsingu vegna stofnfjáraukningarinnar er að finna á heimasíðu
BYRS - sparisjóðs www.byr.is. Jafnframt má nálgast lýsinguna í útibúum
BYRS - sparisjóðs. Þjónustuver veitir upplýsingar um útboðið í síma 575 4000.
Áskriftartímabil stendur yfir frá og með 3. september, til og með
17. september næstkomandi. Eindagi áskrifta er 24. september 2007.
Reykjavík, 31. ágúst 2007