Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.09.2007, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 07.09.2007, Qupperneq 24
greinar@frettabladid.is Sem betur fer fjölgar þeim óðum, sem taka undir það, að besta kjarabót almennings væri myndarleg lækkun tekjuskatts á einstaklinga. Eðlilegt væri að lækka þann tekjuskatt, sem ríkið tekur til sín, úr 23% í 17%. Slík tekjuskattslækkun myndi fela í sér, að menn greiddu um 30% skatt í heild af tekjum sínum ofan skattleysismarka. Síðan ætti að fella niður lögboðið lágmark útsvars, svo að sveitarfélög gætu keppt í alvöru um að bjóða lágt útsvar. Nú eru kostir þeirra til þess litlir, þó að þar hafi Seltjarn- arnes vinninginn undir forystu Jónmundar Guðmarssonar bæjarstjóra. Sumir vilja hækka skattleysis- mörk. Það er óráð. Æskilegt er, að sem flestir greiði tekjuskatt, en ekki, að sumir séu skattfrjálsir og aðrir ekki, því að það freistar þeirra, sem sleppa við skattinn vegna lágra tekna, til að sam- þykkja hækkun hans. Skattleysis- mörk eru raunar miklu hærri á Íslandi en í flestum öðrum löndum. Þau eru til dæmis um 60 þúsund krónur á mánuði í tveimur grannríkjum okkar, Svíþjóð og Írlandi. Hér eru þau nú um 90 þúsund krónur á mánuði og hefðu aðeins þurft að vera 6 þúsund krónum hærri til þess að vera hin sömu (á sam- bærilegu verðlagi) og árið 1995. Aðrir benda á, að um tvö þúsund skattgreiðendur hafi ekki aðrar tekjur en fjármagnstekjur, en skattur af þeim er lægri en af atvinnutekjum. Þetta er rétt, en megnið er börn og unglingar, sem njóta vaxta af bankainnstæðum, en stunda ekki venjulega vinnu. Þeir fjármagnseigendur, sem reka fyrirtæki og taka sér arð út úr því, þurfa að reikna sér endurgjald, sem þeir greiða tekjuskatt af, þótt ef til vill sé þetta endurgjald stundum of lágt samkvæmt mati skattstjóra. Hinir eru sárafáir, líklega innan við eitt hundrað alls, sem hafa verulegar tekjur af sölu hluta- bréfa, húsaleigu eða vöxtum af innstæðum, en engar atvinnu- tekjur og þurfa því ekki að greiða tekjuskatt. Þótt smámál sé, er eðlilegt, að þeir reikni sér líka endurgjald (fyrir umsýslu með fjármagn sitt) og greiði tekju- skatt af því. Þá sleppa þeir ekki heldur við að greiða útsvar, enda njóta þeir fullrar þjónustu sveitarfélaga. Þriðja atriðið, sem þarf að skoða, er tekjutenging bóta. Ísland er frábrugðið öðrum Norðurlönd- um í því, að hér eru margvísleg framlög ríkisins til velferð- arþjónustu tekjutengd í meiri mæli. Til dæmis eru barnabætur til láglaunafólks rausnarlegri hér en annars staðar, en þær skerðast, eftir því sem tekjur hækka. (Þess vegna eru barn- abætur að meðaltali lægri hér en annars staðar á Norðurlöndum.) Þetta er eðlilegt. Hvers vegna á að greiða tekjuháu fólki barn- abætur? Hið sama er að segja um ellilífeyri frá Trygginga- stofnun ríkisins. Hann skerðist með auknum tekjum. Það er líka eðlilegt. Ríkið á ekki að greiða auðmönnum ellilífeyri. Þeir geta séð um sig sjálfir. Hitt er annað mál, að tekju- tengingin hefst of snemma og skerðingin er of hæg. Skynsam- legra væri að hefja skerðingu bóta við hærri tekjur og skerða hraðar, svo að tekjuhátt fólk fái hvorki barnabætur né ellilífeyri. Takmarkað fé er til ráðstöfunar í velferðarþjónustu. Mestu máli skiptir, að það sé notað til að aðstoða þá, sem þurfa aðstoð, en ekki til hinna, sem eru aflögufærir. Við Íslendingar ættum að gera nýjan þjóðarsáttmála, þar sem hinir tekjuhærri sætta sig við aukna tekjutengingu gegn því, að skattar á þá og aðra lækki. Þetta ætti að vera sameiginlegt baráttumál frjálslyndra jafnaðar- manna og frjálshyggjumanna. Vonandi fá þau Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir líka öflugan stuðning launþegasamtak- anna við þær skattalækkanir, sem þau boðuðu við myndun hinnar nýju stjórnar í vor. Tekjutenging skynsamleg Hinir eru sárafáir, líklega innan við eitt hundrað alls, sem hafa verulegar tekjur af sölu hlutabréfa, húsaleigu eða vöxtum af innstæðum, en eng- ar atvinnutekjur og þurfa því ekki að greiða tekjuskatt. Fyrir skömmu var ég á ferð í leigu-bíl gegnum dalinn fyrir norðan Lubéron-fjall í Suður-Frakklandi; ég var þá að koma úr nokkurra vikna dvöl í örlitlu þorpi uppi í fjallinu, á stað sem engir gemsar náðu til, eini símaklefinn var bilaður, og sjaldnast sáust nokkur blöð. Stefnan var tekin á Avignon, en þaðan gekk hraðlestin til Parísar. Þetta var snemma morguns, engin umferð á vegum, sólin skein og bílstjórinn kveikti á útvarpinu til að hlýða á fréttirnar klukkan hálf átta. Í bílnum glumdi nú rödd fréttakonu og sagði, að borgarstjórinn í Argenteuil, einu af úthverfum Parísar, hefði fundið snjallræði mikið til að losa sig við húsnæðisleysingja, sem hreiðruðu um sig á gangstéttum í hjarta borgarinnar, öðrum mönnum til lítils augna- yndis: að úða samastaði þeirra með illa þefjandi vökva, sem loddi margar vikur við hellur og malbik, svo þessi rumpulýður sæi sér þann kost vænstan að grípa fyrir nefið, taka til fótanna og láta ekki sjá sig meir. Ég hlýddi hljóður á tíðindin. Ekki var um að villast að nú var ég aftur kominn í samband við siðmenninguna. Það fylgdi sögunni að vökvinn héti „Malodor“, og í þessum miklu efnahagsframförum sem meðal annars má mæla í fjölgun útigangsmanna á strætum, torgum og víðar er í rauninni undarlegt að engum skuli hafa dottið þetta í hug fyrr: þar sem ráð af þessu tagi reynast vel gegn kakkalökkum liggur beint við að spreyja á húsnæðis- leysingja líka. En nokkur böggull fylgdi þó skammrifi: einhverjir borgar- starfsmenn neituðu að handfjatla þennan vökva, þótt framleiðendurnir særu og sárt við legðu að hann væri algerlega skaðlaus. Svo var helst að sjá að þeir væru á valdi einhverra úreltra siðferðis- sjónarmiða sem hagfræðingar segja jafnan að standi efnahagslífinu mjög fyrir þrifum. Borgar- stjórinn gerði sér þá lítið fyrir og fékk vökvann í hendur starfsmönnum í voldugri stórverslun, sem vildu ekki hafa þar uppi á dekki menn sem væru húsnæðislausir og þar af leiðandi auralausir líka. Og starfsmennirnir úðuðu. En nú vaknar spurningin: hvernig var hægt að svæla burtu húsnæðisleysingja án þess að viðskiptavinirnir yrðu líka fyrir nokkrum óþægindum? Kannske voru þessir menn ekki á nákvæmlega sömu stöðum í versluninni – nema maður vildi álykta sem svo að þeir sem væru orðnir sam- dauna peningalykt ættu ekki erfitt með að harka af sér fnykinn af „Malodor“. Snjallræðið Malodor T öfrar mannsraddarinnar eru undursamlegir. Aldrei er það skýrara en í söngnum hve dásamlegt hljóðfæri mannsröddin er. Þegar söngvari góðum gáfum búinn af náttúrunnar hendi lyftir sér upp á tónaregistrinu og samhæfir sinn þjálfaða styrk meitlaðri hugsun og tilfinningu hverfa allar takmarkanir og við fljúgum á vængjum söngsins, bundin í tónmálið – og textann. Pavarotti naut þeirrar gæfu að miðlar nútímans og forræði hinnar vestrænu tónlistar í heimsmenningunni ruddu honum braut að hjörtum í öllum hornum veraldar. Víst var hann nánast skopgervingur hins íturvaxna tenórs en um leið talandi dæmi um að útlit skiptir ekki máli ef leik- og sönggáfa er mönnum gefin í nægilega ríkum mæli og hún hlýtur þá þjálfun sem þarf. Nú segja menn hann besta söngvara sinnar aldar. Við búum við þá gæfu að afrit af söng allra helstu stórsöngvara heimsins eru okkur tiltækileg. Við getum borið þá saman, alla tenórana sem sungu inn á hljóðrit frá aldamótunum 1900, þá sem gerðu garðinn frægan á millistríðsárunum. Við getum jafnvel séð hundruð brota af öllum bestu söngvurum óperusviðsins frá mörgum tímabilum, borið menn saman í sama hlutverkinu, skyggnst víðar í samanburðinum en nokkur önnur kynslóð hefur getað gert. Og það er víst satt: þessi listamaður bjó yfir einstakri tækni, einstakri rödd. En þó að sú gáfa sé meðfædd, ásköpuð í upphafi, byggir þroski hennar ekki aðeins á því: þroskinn byggir á lærdómi, virðingu fyrir aldagamalli reynslu, skóla, sem flyst frá kynslóð til kynslóðar og er í grunninn alls óskyldur tísku og tiktúrum dægurmenningar. Tónlistarmenning er í grunninn frekar gamalt kerfi, rétt eins ritmenning, myndhugsun og litaþekking, skilningur á texta og meðferð máls af sviði. Þetta eru allt gömul fög og breytast í grunn ekki neitt, nema nemendur og kennarar séu svo státnir í sjálfsfullnægju sinni að þeir geti varpað því öllu fyrir róða. Til dæmis textanum sem um þessar mundir skiptir hvað minnstu máli í leikhúsinu hér á landi. Þú þarft ekki að heyrast, ekki að skilja hvað þú ert að segja, bara líta nógu vel út – meðan þú ert grannur og grænn. Pavarotti hefði ekki fengið vinnu þar eftir fimmtugt, nei, honum hefði verið hafnað samkvæmt þeim viðmiðum miklu fyrr. Þegar kanóna eins og hann hverfur af sviðinu, og honum tókst lengur en mörgum öðrum að standa í sviðsljósinu, vaknar spurning sem sækir æ oftar á mann: hvað stýrir þeirri stefnu í listsköpun sem forsmáir reynslu en upphefur reynsluleysi, fátkennt fálm byrjandans, framar öllu öðru? Er það látlaust eðli vörusamfélags sem heimtar allt nýtt svo að þess megi neyta? Ný andlit, nýrri skrokka. Upplogna reynslu hins reynslulitla? Má ég þá biðja um Hve hönd þín er köld. Gamaldags sönglag sem enn er ljóslifandi sönn lífsreynsla í meðförum raddar sem er þögnuð en mun hljóma lengi enn. Við andlát ítalsks tenórs
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.