Fréttablaðið - 07.09.2007, Side 25

Fréttablaðið - 07.09.2007, Side 25
Frakkar eru frægir fyrir sína matarmenningu. Því vekur það forvitni hvað Roman Me Guy býður upp á á fyrsta franska veitingastaðnum á Íslandi, Le Rendez Vous á Klapparstíg 38. Roman Me Guy er úr fjögurra manna fjölskyldu sem flutti hingað til lands fyrir fáum mánuðum til að koma frönskum veitingastað á fót algerlega upp á eigin spýtur. Að loknum endurbótum á húsnæðinu var staðurinn opnaður fyrir fjórum vikum og að sögn eigendanna hefur honum verið vel tekið. „Fólk kemur aftur og aftur og tekur vini sína með. Það er greinilega ánægt,“ segja þeir. En hvaðan kom þeim hugmyndin að því að flytja hingað norður í svalann til að metta mannskapinn? „Ég var búinn að koma áður hingað og hreifst af landinu,“ segir Roman bros- andi. Allir réttirnir á matseðlinum eru ekta franskir að sögn Romans en þó úr íslensku hráefni, nema foie gras sem er úr franskri andalifur. „Við viljum aðeins allra besta hráefni sem völ er á og leggjum á okkur leit að því út um byggðir lands- ins. Við eigum í smá vandamáli með ostana. En kannski komumst við að samkomulagi við einhvern ostagerðarmann um að vinna með okkur að gerð franskra osta,“ segir hann. Spurður hvort fjölskyldan hafi rekið veitingastað í Frakklandi svarar hann: „Nei, en við höfum verið allt okkar líf í veitingahúsum og matargerð og erum af mikilli matarætt ef svo má að orði komast.“ Leggjum á okkur leit að besta hráefninu í matinn Laugavegi 51 • s: 552 2201

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.