Fréttablaðið - 07.09.2007, Side 27
Stefán Jakobsson, söngvari hljómsveitarinnar
Douglas Wilson, hefur gert mörg misjafnlega góð
kaup í gegnum tíðina.
„Ein bestu kaup sem ég hef gert gerði ég á Hróars-
keldu 1999,“ segir Stefán og hlær. „Þar keypti ég mér
svona öl-stól sem eru held ég ein skynsamlegustu
kaup sem ég hef gert á ævinni. Stóllinn var með bjór-
haldara og hægt að breyta honum í bakpoka þannig
að maður gat sest hvar sem var. Hann er enn í fullu
fjöri þrátt fyir að hafa bara kostað fimmtíu kall
danskar og ég hef notað hann mikið, til dæmis í úti-
legum, partíum og sólbaði.“
Ein verstu kaup sem Stefán telur sig hafa gert voru
einnig gerð á sömu Hróarskeldu. „Ég keypti mér
svona fiskihatt, hatt sem er eins og fiskur, það var
heimskulegt. Hann kostaði örugglega alveg þúsund
kall íslenskar og hætti alveg að vera fyndinn eftir
korter. Ég tímdi samt ekki að henda honum og drösl-
aðist með hann alla hátíðina. Hann tók meira pláss
heldur en stóllinn til dæmis og var náttúrlega ekki
með neinum handföngum en það var heldur ekki töff
að vera með hann.“
Langbestu kaup sem Stefán hefur gert voru samt
að hans mati þegar hann keypti gítarinn sinn.
„Gítarinn er náttúrlega það skynsamlegasta sem ég
hef keypt og hefur borgað sig því ég hef unnið við að
spila,“ segir Stefán og bætir við að hann hafi hins
vegar ekki gert jafn góð kaup þegar hann keypti sér
hamstur. „Það var heimskulegt. Hamstrar sofa á
daginn og vaka á nóttunni og það er ekki hægt að
kenna þeim neitt.“
Stefán segir að sem betur fer hafi hann þó lært og
sé nú farinn að gera fleiri góð kaup en slæm.
„Stundum sá ég eitthvað sem mér fannst fyndið en
áttaði mig ekki á því að það var kannski bara fyndið í
svona mínútu og sat því uppi með eitthvert drasl sem
var aldrei notað. Þar sem maður hendir ekki ónotuð-
um hlutum beið ég því kannski og vonaði að þessir
heimskulegu hlutir öðluðust einhvern tilgang en sá
dagur kom aldrei. Núna er ég aftur á móti orðinn
svolítið góður í að gera góð kaup enda kominn með
fjölskyldu og þarf að hugsa um fleiri en sjálfan mig.
Ef ég sé eitthvað fyndið en gagnslaust núna hugsa ég
bara „þetta er fyndið,“ en sleppi því að kaupa það.“
Notar ekki fiskihattinn
Í formi til framtí›ar
Skráning er hafin í flessi vinsælu átta vikna
a›halds-og lífsstílsnámskei› fyrir konur.
www.hreyfigreining.is
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki