Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 46
BLS. 10 | sirkus | 7. SEPTEMBER 2007
ÆTTFRÆÐI HEFUR LÖNGUM VERIÐ NOKKURS KONAR ÞJÓÐARÍÞRÓTT ÍSLENDINGA.
SIRKUS KANNAÐI ÆTTIR NOKKURRA ÞEKKTRA EINSTAKLINGA.
MÆÐGUR Þórunn Högnadóttir ásamt Málfríði Höddu Halldórsdóttur,
móður sinni, sem starfar hjá Íslandspósti. MYND/VALLI
LÍST VEL Á STARFSVAL DÓTTURINNAR Sigrún Elsa Smáradóttir ásamt mömmu sinni og
pabba, Ragnheiði og Smára. MYND/GVA
AÐ AUSTAN OG NORÐAN Fjölmiðlamaðurinn Heimir Karlsson á ættir að
rekja til Austfjarða, Siglufjarðar og Dalvíkur. MYND/HÖRÐUR
FRÉTTAFÝSIN FJÖLSKYLDA María Sigrún fréttakona ásamt foreldrum sínum, Hilmari
og Svanhildi. MYND/ANTON
MEÐ FORELDRUM SÍNUM Margrét Kristín ásamt Jóhönnu og Sigurði.
MYND/VALLI
Foreldrar: Svanhildur Sigurðardóttir, 61 árs, innkaupastjóri
eldsneytis hjá Icelandair, og Hilmar Þór Björnsson, 62 ára,
arkitekt.
Hvaðan: Svanhildur er Skagfirðingur, fædd og uppalin í
Varmahlíð. Móðurætt hennar er frá Úlfsstöðum í Skagafirði en
föðurættin frá Bjarteyjarsandi á Hvalfjarðar-
strönd. Hilmar er Breiðfirðingur í báðar ættir,
ættaður úr suður- og vestureyjum Breiðafjarðar
en þó mest úr Svefneyjum og er því af svokallaðri
Svefneyjarætt.
Aðspurð hvernig foreldrum Maríu Sigrúnar lítist
á starfsval dótturinnar segjast þeim báðum lítast
vel á. „Á einhverju stigi ætlaði hún sér að verða fornleifafræð-
ingur en mér líst vel á fréttmennskuna. Ég er stolt af henni,“
segir Svanhildur. „Hún ætlaði að verða fornleifafræðingur þegar
hún var ca. 6 ára en 15 ára tók hún sólópróf í svifflugi og ætlaði
sér að verða flugmaður. Starfsvalið kemur mér ekki á óvart, við
erum öll mjög fréttafýsin á mínu heimili og ég held hún hafi
fengið áhuga á því sem er að gerast í heiminum með móður-
mjólkinni,“ segir Hilmar.
Foreldrar: Karl Finnbogason, 78 ára,
járnsmiður og Ragnhildur Jónsdóttir,
77 ára, dagvörður í sundlaug.
Hvaðan: Ætt Ragnhildar er austan af
landi. „Ég er frá Vopnafirði og
Reyðarfirði en er sjálf alin upp í
Neskaupstað,“ segir
Ragnhildur en Karl er
Siglfirðingur, ættaður
frá Dalvík og úr
Svarfaðardal.
Aðspurð hvað þau
héldu að Heimir yrði
þegar hann yrði stór segir Ragnhild-
ur að fjölmiðlarnir eigi vel við hann.
„Ég hefði samt líka getað ímyndað
mér hann sem kennara, hann er
svolítill foringi í sér, eða var það
allavega þegar hann var krakki.“ Karl
segist hafa óttast að Heimir yrði
aldrei stór, hann hafi verið soddan
stubbur fram að fermingu. „Svo
tognaði úr honum,“ segir hann
hlæjandi og bætir við að honum lítist
svo sem ágætlega á starfið. „Hann er
ákveðinn og fylginn sér, getur verið
svolítið frekur og ég held að hann
hafi valið sér ágætis starf.”
Foreldrar: Ragnheiður Brynjúlfsdóttir, 55 ára, bókari og
námsmær í viðskiptafræði, og Smári Grímsson, 56 ára, rafvirki.
Hvaðan: Ragnheiður á ættir að rekja til Vest-
mannaeyja en föðurætt hennar er þaðan.
„Mamma er hins vegar frá Gjögri í Strandasýslu,“
segir Ragnheiður og bætir við að föðurætt Smára
sé úr Grímstungu í Vatnsdal en móðurættin komi
úr Eyjafirðinum.
Aðspurð segist Ragnheiði lítast vel á starfsval
dótturinnar. „Ég man ekki eftir að hún hafi talað um að ætla að
verða eitthvað sérstakt enda opin fyrir mörgu en pólitíkin kom
ekki á óvart. Mér líst vel á starfið hennar og veit að hún stendur
sig vel.“
Foreldrar: Málfríður Hadda
Halldórsdóttir, 61 árs, vinnur hjá
Íslandspósti, og Högni Björn Jónsson
bifvélavirki sem er látinn.
Hvaðan: Ætt Málfríðar Höddu kemur
öll úr Vestur-Skaftafellssýslu.
Móðurætt Högna er úr Vestmanna-
eyjum en föðurætt hans úr Reykjavík.
Aðspurð segir
Málfríður Hadda að
henni lítist vel á
starfið hennar
Þórunnar. „Það kom
snemma í ljós hvað
hún myndi gera í
framtíðinni enda var hún ekki nema
10-12 ára þegar hún ákvað að verða
förðunarfræðingur og var komin til
Parísar í nám 17 ára. Mér líst vel á
hana í sjónvarpinu og finnst hún
ósköp eðlileg. Það kom mér ekkert á
óvart að hún myndi enda í svona
sjónvarpsþætti því hún hefur alltaf
verið að breyta og taka til og var bara
pínulítil þegar hún var byrjuð að laga
til hjá öðru fólki.“
indiana@frettabladid.is
Foreldrar: Jóhanna G. Möller, 69 ára,
söngkona og Sigurður Pálsson,
sjötugur, fyrrum kennari og sóknar-
prestur.
Hvaðan: Sigurður er úr Reykjavík.
„Foreldrar mínir voru bæði sjómanns-
börn, faðir minn var prentari hér í
Reykjavík og móðir
mín húsmóðir í
Grafarvogi,“ segir
Sigurður. Faðir
Jóhönnu, Gunnar
Möller, var hæsta-
réttarlögmaður en
faðir hans var Jakob Möller, þingmað-
ur, ráðherra og sendiherra. „Fjölskyld-
an er ættuð frá Húsavík en fjölskylda
móður minnar, Ágústu Johnsen, er frá
Vestmannaeyjum,“ segir Jóhanna.
Margrét Kristín, eða Fabúla eins og
hún er oft kölluð, lauk kennaraprófi en
starfar í dag sem söngkona.
Aðspurð segist pabbi hennar sáttur
við bæði hlutverkin enda hafi hann
vitað að um fjölhæfa konu væri að
ræða. „Ég hugsaði að hún gæti orðið
rithöfundur þar sem hún var alltaf
skrifandi sögur, eða myndhöggvari,
hún var mikil listaspíra,“ segir
Jóhanna, mamma hennar.
AF HVAÐA ÆTTUM ER
FRÆGA FÓLKIÐ?
HEIMIR
KARLSSON
FJÖLMIÐLAMAÐUR
MARÍA SIGRÚN
HILMARSDÓTTIR
FRÉTTAMAÐUR RÚV
ÞÓRUNN
HÖGNADÓTTIR
FÖRÐUNARFRÆÐINGUR
OG FJÖLMIÐLAKONA
MARGRÉT KRISTÍN
SIGURÐARDÓTTIR
SÖNGKONA
SIGRÚN ELSA
SMÁRADÓTTIR
BORGARFULLTRÚI