Fréttablaðið - 03.11.2007, Page 31
Guðmundur Hafsteinsson tónskáld kippir kaffi-
könnutenglinum úr innstungunni á kvöldin og
stingur bílnum í samband í staðinn.
Guðmundur og fjölskylda hans aka um á eftirtektar-
verðum bíl. Hann er agnarsmár með rauðu aftursæti
og tvílitu stýri. Hér er á ferðinni fyrsti indverski raf-
magnsbíllinn á landinu, Reva City Car sem vann öku-
tækjakeppnina Kappaksturinn mikli 2007 í septem-
ber. „Við fengum bílinn 1. október og því er reynslan
takmörkuð en hún er skemmtileg,“ segir Guðmundur.
„Það tekur tíma að venjast bílnum, hann er svo lítill
og ekki sami kraftur í honum og bensínbíl. Hann er
glettilega seigur samt og kemst í 60-70 kílómetra
hraða, sem hentar vel innanbæjar enda á ekki að
keyra svona farartæki hratt.“
Guðmundur keypti bílinn í gegnum Perlukafar-
ann. „Ég hef haft áhuga á því að eignast rafmagnsbíl
frá því ég var í menntaskóla fyrir 35 árum,“ upplýsir
hann. „Þeir hafa bara ekki verið á markaði hér fyrir
almenning að því er ég best veit.“ Hann segir um 900
Reva-bíla í umferð á Englandi og hafa gefist vel. „Í
London eru svo háir skattar á mengandi umferð að
fólk álítur hagkvæmt að eiga svona bíl. Ég tel þá líka
upplagða fyrir okkur Íslendinga.
Við eigum svo mikla raforku sem er vannýtt á
nóttunni,“ segir Guðmundur, sem setur bílinn í sam-
band í venjulega innstungu. „Við tökum kaffivélina
bara úr sambandi, keyrum svo af Seltjarnarnesinu
til Hafnarfjarðar á kaffiorkunni og aftur til baka!
Komumst 40-50 kílómetra núna á hleðslunni en eftir
því sem geymirinn er hlaðinn oftar á geta hans til að
halda rafmagni að aukast og miðað við 30.000 kíló-
metra akstur á ári á orkan ekki að kosta nema 18.000
krónur. Það er alveg sérstaklega góð tilfinning að
aka um án þess að puðra út miklum óþverra.“
Ekur á kaffiorkunni
VIÐ FJÁRMÖGNUM
ÞAÐ SEM UPP Á VANTAR!
Ertu að spá í bílakaup?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
2
3
5
Nýttu þér upplýsingar og reiknivélar á
www.gf.is eða hafðu samband við ráðgjafa
okkar í síma 440 4400.
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið