Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2008, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 11.01.2008, Qupperneq 16
16 11. janúar 2008 FÖSTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Kosningar fóru fram í Ge- orgíu hinn 5. janúar síðast- liðinn. Litið var á þær sem prófstein fyrir lýðræðið í landinu, sem á sér ekki langa sögu þar frekar en í öðrum fyrrverandi sovét- lýðveldum. Mörður Árnason var þar við kosninga eftirlit á vegum Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Sá hann margt sem vakti von í lýðræðisbrjósti en annað síður. „Þetta var mikil vinna og skemmti- leg reynsla,“ segir Mörður þegar hann rifjar upp ferðina. „Við vorum þarna um 300 manns í eftirlitsferð sem stóð í viku og ég var mest á ferðinni með fínum náunga frá Bandaríkjunum sem minnti mig einna helst á Clint Eastwood, þetta var þannig týpa. En það er skemmst frá því að segja ég veit ég ekki um neinn eftirlits- manna sem var ánægður með fram- gang kosning- anna og meira að segja voru sumir mjög fúlir en þegar yfir heildina er litið þá fóru þær nokkurn veginn fram eftir settum reglum og það var niður- staða forystumanna ÖSE að þetta var raunveruleg kosning og ég tek undir það.“ Traktorinn frá forsetanum En ummerki ólýðræðislegra vinnubragða urðu þó víða á vegi Marðar. „Þegar við „Eastwood“ fórum í eina eftirlitsferð til sveita þá blasti við okkur glænýr traktor beint fyrir framan einn kjörstað- inn. Inni í honum héngu svo plaköt frá fylgismönnum Mikhails Saakashvilis forseta. Við fórum inn og spurðumst fyrir um þetta en fátt varð um svör. Svo þegar við komum út aftur þá var hann farinn. En það var þó ekki langt í endurfundi því við sáum hann svo beint fyrir framan næsta kjörstað sem við komum á í nálægu þorpi. Þegar við fórum svo að grennslast fyrir um málið komumst við að því að forsetinn hefði gefið öllum sveitarfélögum á landsbyggðinni traktor viku fyrir kosningar. Vissulega kom þetta spánskt fyrir sjónir en svo þegar ég fór að rifja upp atburði frá kosn- ingunum í vor hér á Íslandi þá sá ég náttúrulega fljótlega að svona tilburðir fyrirfinnast víðar en í Georgíu. Það er þó kannski ekki eins augljóst hér á Fróni eins og þarna við Svarta- hafið.“ Konur koma lýðræði á legg En önnur ummerki voru slík að þau hafði Mörður hvergi séð þó sé hann enginn nýgræðingur í pólitík. „Við áttum svo sem von á því að Saakashvili forseti fengi mikinn meiri- hluti í héraðinu sem við vorum í, en það er einmitt gaman að geta þess að þar hafði ekki minni maður en sjálfur Stalín slitið barnsskónum. En þó runnu á okkur tvær grímur á einum kjörstaðnum þar sem for- setinn hlaut 800 atkvæði af 879. Þar af var enginn kjörseðill auður eða ógildur og það má teljast algjört kraftaverk í landi með svona skamma lýðræðishefð. Við greindum frá þessu í skýrslu en höfðum ekki umboð til að aðhaf- ast frekar í málinu.“ En þó að landsmenn hafi mis- stigið sig nokkuð á hinum nýlagða vegi lýðræðisins sá Mörður einnig ýmislegt sem gladdi hans lýðræð- ishjarta. „Það má eiginlega segja að ég hafi orðið lýðræðissinni upp á nýtt, því þó ég nefni þessa hluti sem afvega fóru var einnig mjög gaman að fylgjast með fólki sem við erfiðar aðstæður var af fullri alvöru að reyna að halda kosningar sem lýsa lýðræðisleg- um vilja. Ég var kannski hrifnast- ur af því hvað það var mikið af konum í þessu starfi og ég fékk það á tilfinninguna að þar sem þær voru í forystu gengju hlut- irnir betur fyrir sig. Svo ber að minnast þess að forsetinn fékk yfir níutíu prósenta kosningu síð- ast en nú hlaut hann 53 prósent, sem þýðir að myndast hefur alvöru stjórnarandstaða í land- inu.“ jse@frettabladid.is Liðkað fyrir með nýjum traktor MIKHAIL SAAKASHVILI FORSETI GEORGÍU Hér er forsetinn í kosningaham og stuðn- ingsmenn hans gefa til kynna hvar eigi að merkja við á kjörseðli en Saakashvili var þar fimmti í röðinni. „Ég verð nú að játa það að ég missti nú ekki svefn vegna átaka þeirra Hillary Clinton og Baracks Obama,“ segir Tómas R. Einarsson, tónlistar- maður og þýðandi, þegar hann er spurður um prófkjörsslaginn sem nú stendur yfir í Bandaríkjunum. „Ég er heldur ekki sérlega fróður um frambjóðendurna en ég trúi því og treysti að næsti forseti verði mun betri en sá sem heimurinn hefur þurft að þola í átta ár. Hann hefur til dæmis komið málum þannig fyrir að ég hef ekki haft neina löngun til að fara til Bandaríkjanna allan þennan tíma og þykir mér þó New York vera með skemmtilegri borgum. En framganga yfirvalda og andrúmsloftið sem fylgt hefur þessu fári gerir það að verkum að sú hug- mynd hefur ekki einu sinni flögrað að mér að fara þangað. En þó get ég sagt það að mér líst vel á þau tvö, Hillary Clinton og Bar- ack Obama, og líst mér vel á það ef annað hvort þeirra yrði forseti enda er mjög misjöfn reynsla af hvítum og miðaldra karlkyns forsetum. Það er þó erfitt að spá um hvort þeirra vinnur prófkjörið, það virtist á tíma- bili vera komið á eitthvert Obama- æði en Hillary sló nú aðeins á það.“ SJÓNARHÓLL PRÓFKJÖR Í BANDARÍKJUNUM Hillary sló á Obama-æðið TÓMAS R. EINARSSON Tónlistarmaður MÖRÐUR ÁRNASON Það var eftirminnilegt fyrir Mörð að fylgjast með því hvernig lýðræðið er að komast á legg í fæðingarhéraði eins mesta einræðisherra sögunnar. En þar sem Stalín fæddist varð Mörður lýðræðissinni upp á nýtt. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN JÓSEF STALÍN ■ Kúbverjinn Benito Martínez Abogán var 126 ára gamall þegar hann lést árið 2006. Hann var mikill kunn- áttumaður um jurtir sem hann tíndi og notaði þær við hvers konar kvillum. Hann borðaði aðallega ávexti og grænmeti sem hann tíndi einnig sjálfur. Hann neitaði sér þó ekki um romm og vindil á tyllidögum líkt og tíðkast á Kúbu. Hann þótti sérlega minnugur allt til síðasta dags en einnig var oftast kátt í kringum hann þar sem hann hafði sérstaka kímnigáfu. Hann kvæntist ekki og átti engin börn. LANGLÍFI: KÚBVERJI Á 127. ÁRI „Það er allt fínt að frétta af mér, eins og öllum sem eiga ekki verðbréf,“ segir Bryndís Lofts- dóttir, vörustjóri íslenskra bóka hjá Pennanum, og vísar til frétta af hruni á hlutabréfamörkuðum undanfarna daga. „Ég fjárfesti í steinsteypu og sef rólega í henni.“ Jólabókaflóðið er nú nýafstaðið en bók- salar fá þó lítinn tíma til að kasta mæðinni eftir annríkið. „Það er nóg að gera því strax 3. janúar tekur önnur törn við, það er sala á bókum til framhaldsskóla. Þá hefst bókaútsalan okkar 16. janúar og við erum í óðaönn að undirbúa hana, þannig að ég er varla farin að pústa enn þá.“ Bryndís segir að vissulega þurfi bóksalar seiglu og úthald á þessum árstíma en upp úr miðjum febrúar fari að hægjast um. „Þá fáum við tíma til að þurrka úr hillum og þess háttar.“ Bryndís strengdi engin áramótaheit og gerir það yfirleitt ekki. „Áramótin eru klárlega ekki rétti tíminn fyrir mig til að skipuleggja einhver stórræði.“ Það er þó nóg fram undan á árinu. Bryndís er með barni og á von á sér í apríl. „Fram undan eru skemmtilegir tímar í fæð- ingarorlofi með fjölskyldunni,“ segir Bryndís, sem ætlar þó ekki að standa á hliðarlínunni í næsta jólabókaflóði. „Ég verð mætt aftur strax 1. nóvember. Öll börnin mín hafa fæðst á tíma þar sem fæðingarorlofið er „utan vertíðar“. Það er auðvitað allt með ráðum gert svo ég missi ekki úr jól.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? BRYNDÍS LOFTSDÓTTIR, VÖRUSTJÓRI HJÁ PENNANUM Fjölgar í fjölskyldunni í apríl Fólksins eða flokksins? „Skyldi Jóhanna vera kona fólksins eða eiginkona Sjálf- stæðisflokksins?“ FJALLAÐ ER UM RÍKISSTJÓRNAR- SAMSTARFIÐ Í LEIÐARA. Austurglugginn 10. janúar. Líta frekar á björtu hliðarnar „En það vekur æ meiri efasemdir að Þorsteinn Davíðsson megi hvergi sjást eða heyrast án þess að því sé hnýtt við, til að þess að gera hann tortryggilegan, að hann sé sonur föður síns.“ EINAR KÁRASON RITHÖFUNDUR Morgunblaðið 10. janúar. Ljúfur geisladiskur Útgáfutónleikar í Listasafni Íslands laugardaginn 12. Jan. Kl. 20:00 Einnig koma fram Þorvaldur Már á gítar og Gospelkór Suðurnesja. Miðasala við inngang, 1.500kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.