Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2008, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 11.01.2008, Qupperneq 22
22 11. janúar 2008 FÖSTUDAGUR taekni@frettabladid.is Vefurinn: Drop.io Einföld leið til að senda ljósmyndir, tónlist, myndbönd eða önnur gögn yfir netið. Settu upp síðu á nokkrum sekúndum og stjórnaðu því hver hefur aðgang að henni. www.drop.io Stríðinu á milli Blu-Ray og HD DVD er því sem næst lokið. Eitt stærsta kvik- myndaver heims, Warner Bros., tilkynnti á dögunum að það myndi hætta að gefa myndir sínar út á HD DVD og nota eingöngu Blu-Ray diska. Aðeins tvö af sjö stærstu kvikmyndaverun- um styðja ennþá HD DVD, og er annað þeirra sagt vera á leið yfir í hitt liðið. Tilkynning Warner Bros., sem hefur meðal annars gefið út Harry Potter-myndirnar, Blade Runner og Pirates of the Caribbean, barst rétt fyrir opnun tækniráðstefn- unnar Consumer Electronics Show í Bandaríkjunum í síðustu viku. Þar kom fram að fyrirtækið myndi eingöngu gefa út myndir á Blu- Ray diskum frá og með maí á þessu ári. Hingað til hefur kvik- myndaverið gefið út myndir á bæði Blu-Ray og HD DVD disk- um. Þegar tilkynningin barst hættu aðstandendur HD DVD við að halda fyrirhugaðan blaðamanna- fund á ráðstefnunni í Las Vegas. Fréttir um yfirvofandi sigur Blu- Ray bárust eins og eldur í sinu um internetið. Stríðið milli háskerpustaðlanna Blu-Ray og HD DVD hefur nú staðið yfir í tæp tvö ár, neytendum til mikils ama. Báðar tegundir mynddiska bjóða upp á hærri upp- lausn og skýrari mynd en forver- inn, DVD-diskar, en Blu-Ray diskar virka ekki í HD DVD spil- ara og öfugt. Þeir sem vilja njóta kvikmynda í háskerpu þurfa því að velja í blindni á milli tveggja staðla, vit- andi að annar þeirra verður úrelt- ur innan skamms. Fyrir vikið hafa neytendur haldið að sér höndum og sleppt því að fjárfesta í nýju tækninni. Stríðinu svipar mjög til þess sem háð var milli VHS og BetaMax myndbandsspóla á áttunda og níunda áratugnum, þar sem BetaMax laut í lægra haldi. Þá var japanski tæknirisinn Sony í taplið- inu sem eigandi BetaMax-tækn- innar, en stendur nú með pálmann í höndunum enda eitt aðalfyrir- tækjanna á bak við Blu-Ray. Að baki HD DVD standa Toshiba og Microsoft ásamt fleirum. Kvikmyndaverin Walt Disney, Twentieth Century Fox, Metro- Goldwyn-Mayer, Sony og Warner Bros. gefa nú sínar myndir aðeins út á Blu-Ray. Þessi fimm kvik- myndaver bera ábyrgð á um 75 prósentum af öllum mynddiska- útgáfum. Aðeins Paramount og Universal styðja enn HD DVD, en Para- mount er sagt vera á leiðinni yfir til Blu-Ray. Í fréttaskýringu í breska dagblaðinu Financial Times segir að í samningi Para- mount við aðstandendur HD DVD sé klausa sem leyfi fyrirtækinu að rifta samkomulaginu ef Warner Bros. taki upp á því að styðja ein- göngu Blu-Ray. Þeir þykja líklegir til að nýta sér þetta ákvæði þar sem útlitið er ekki gott hjá HD DVD-liðinu þessa dagana. salvar@frettabladid.is Endalok í aðsigi fyrir HD DVD ÁFALL Frekar tómlegt var um að lítast í HD DVD básnum á Consumer Electronics Show ráðstefnunni í Las Vegas í síðustu viku. Rétt fyrir opnun ráðstefnunnar tilkynnti Warner Bros. að það hygðist gefa HD DVD upp á bátinn. NORDICPHOTOS/AFP Árlega MacWorld-ráðstefnan verður haldin í Bandaríkjunum í næstu viku. Þar sem mikil leynd ríkir yfir nýjum vörum sem kynnt- ar verða á ráðstefnunni hafa tækniáhugamenn skemmt sér að undanförnu við að spá fyrir um það sem Steve Jobs, forstjóri Apple, mun tilkynna í ræðu sinni. Flestir búast við að ný og afar smá fartölva verði í sviðsljósinu á ráðstefnunni. Hún verði um helm- ingi þynnri en MacBook-fartölv- urnar sem nú eru seldar, hafi leiftur minni í stað harðdisks og jafnvel snertiskjá. Einnig hafa margir spáð því að Jobs kynni kvikmyndaleigu Apple á netinu í gegnum iTunes-verslunina. Annar orðrómur sem heyrst hefur er um nýja kví fyrir fartölv- una smáu, sem virkar eins og brú á milli fartölvu og borðtölvu. Hún líti út eins og venjuleg iMac borð- tölva, og sé með rauf fyrir far- tölvu á hægri hliðinni. Þegar tölv- unni sé stungið inn í raufina breytist kvíin í fullbúna borðtölvu, en þegar notandinn þarf að bregða sér frá getur hann smellt fartölv- unni út og notað hana á ferðinni. Þrátt fyrir alla óvissuna varð- andi ráðstefnuna er eitt öruggt: Steve Jobs verður í svörtum rúllu- kragabol og gallabuxum þegar hann heldur ræðuna sína. - sþs Tækniáhugamenn spá fyrir um nýjungar sem kynntar verða í næstu viku: Beðið eftir guðspjalli Jobs GETGÁTUR Svona spáir einn hugmyndaríkur Apple-aðdáandi að kvíin fyrir nýju fartölvuna líti út. Teikningin er byggð á einkaleyfisumsókn Apple, en þekkt er að fyrir- tæki sæki um einkaleyfi fyrir alls konar vörur sem verða aldrei að veruleika. Bandarískum vísindamönnum hefur tekist að draga úr sjúk- dómseinkennum Alzheimer- sjúkl inga aðeins nokkrum mínútum eftir lyfjameðferð. Niðurstöðurnar koma fram í rannsókn sem birtist í riti taugabólgusérfræðinga, Journal of Neuroinflammation. Í rannsókninni var 81 árs karlmanni með Alzheimer á háu stigi gefið lyf sem verkar gegn ákveðinni tegund prótíns í heilanum. Rétt fyrir lyfjagjöfina gat hann ekki sagt lækninum hvert ártalið væri né í hvaða ríki hann væri staddur, en tíu mínútum eftir að lyfinu hafði verið sprautað í mænu hans átti hann ekki í neinum erfiðleikum með að svara sömu spurningum. Hann var einnig rólegri og eftirtektarsamari. Greinin hefur vakið mikla athygli, enda í fyrsta skipti sem svo góður árangur næst í baráttunni við þennan algenga sjúkdóm. - sþs Ný rannsókn vekur athygli: Bylting í með- ferð Alzheimer Svarthöfði í slagsmálum Svarthöfði og Yoda úr Stjörnu- stríðsmyndunum verða meðal spilanlegra persóna í bardaga- leiknum Soul Calibur 4 sem kemur út síðar á þessu ári. Svarthöfði verður aukapersóna í PlayStation 3 útgáfu leiksins, en Yoda verður gestur í Xbox 360 útgáfunni. Tilkynning- in, sem barst í gær, kemur á óvart þar sem Stjörnustríðsper- sónur hafa hingað til ekki verið tíðir gestir í bardagaleikjum. Heljarinnar græjusýning Consumer Electronics Show, eða CES eins og sýningin er oftast kölluð, fór fram í Las Vegas í Bandaríkjunum í vikunni. Fyrirtæki hvaðanæva að úr heiminum nota tækifærið á sýningunni og kynna gestum ýmiss konar tæki og tól. Meðal þess merkilegasta sem kynnt var á sýningunni í ár eru örþunnir sjónvarpsflatskjáir, GPS-staðsetningartæki sem hjálpa eigandanum að finna bílastæði og sleppa við umferðarhnúta, og raddstýrt margmiðlunarkerfi í bílum. Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, notaði einnig tækifærið og tilkynnti formlega að hann myndi draga sig úr daglegum rekstri fyrirtækisins um mitt árið. Ódýrasti bíll veraldar Indverska fyrirtækið Tata Group kynnti ódýrasta bíl heims í gær. Hann mun kosta sem samsvarar 155.000 krónum. Bifreiðin, sem kallast Nano, er fjögurra dyra, fimm sæta og heil 33 hestöfl. Fyrir- tækið vonast til þess að Nano valdi straumhvörfum í samgöngumál- um á Indlandi, þar sem rúmur milljarður manna býr. Apple lækkar iTunes-verð Apple ætlar að lækka verðið á tónlist sem fyrirtækið selur í gegnum iTunes-verslunina í Bret- landi. Ástæðan fyrir lækkuninni er kvörtun bresku neytendasam- takanna Which? til Evrópusam- bandsins yfir verðlagningu Apple, sem er töluvert hærri í Bretlandi en annars staðar í Evrópu. Verðið verður lækkað innan næstu sex mánaða. Enn er ekkert að frétta af iTunes-verslun á Íslandi. Geimferð um norðurljósin Efnaðir áhugamenn um geiminn geta brátt skoðað norðurljósin í nærmynd ef hugmyndir Richard Branson, stofnanda Virgin-vöru- merkisins, verða að veruleika. Auðkýfingurinn hyggst bjóða ferðamönnum að fljúga í gegnum sjálf norðurljósin á geimferju, sem verður skotið upp frá sænska bænum Kiruna. TÆKNIHEIMURINN „Meistaraverkefnið snerist um að skoða leitaraðferðir fyrir sjálfstýrðan smákafbát, en sprengjuleit er vinsælt verkefni fyrir þannig kafbáta,“ segir Hörður Jóhannsson tölvunar- fræðingur. Hann vann meistaraverkefni sitt undir leiðsögn Hjálmtýs Hafsteinssonar, dósents við Háskóla Íslands, á síðasta ári. Leit með sjálfstýrðum kafbátum fer yfirleitt þannig fram að fyrst er kafbáturinn sendur niður til að safna upplýsingum um botninn með sónartæki, og tekur þannig skuggamynd af botninum. Þá fer hann aftur upp þar sem myndirnar eru skoðaðar og hlutir, til dæmis sprengjur, auðkenndir. Síðan er kafbáturinn sendur niður aftur til að skoða nánar þá hluti sem teljast áhugaverðir. Gallinn við þessa nálgun er að erfitt getur reynst að beina kafbátnum á sama stað aftur, þar sem GPS-tæki og önnur staðsetningartæki eru gagnslaus neðansjávar. Lausn Harðar og Hjálmtýs byggir á því að láta kafbátinn vinna sjálfan úr myndum sem hann tekur af sjávarbotninum, og skoða strax þá hluti sem teljast áhugaverðir. Hörður segir ýmis not fyrir sjálfstýrða kafbáta af þessu tagi, þeir hafi til dæmis verið notaðir fyrir innrás Bandaríkjamanna í Írak. „Áður en þeir fóru inn í Írak þurfti að hreinsa höfnina, og þá skönn- uðu þeir svæðið með kafbátum til að hreinsa siglingarleiðina. Svo eru þessi tæki notuð í margt annað, til dæmis höfum við tekið myndir af flugvélinni sem brotlenti í Skerjafirði, og hjálpuðum við leit að manni þegar bátur fórst við Skarfaklett í Skarðsvík.“ Nú vinna þeir félagar að þróun hug- búnaðar sem gerir kafbátnum kleift að fylgja neðansjávarpípum út frá sónar- myndum sem báturinn tekur. „Við ætlum að prófa bátinn í febrúar, fara með hann í Ánanaust og láta hann fylgja skólplögn- inni sem fer í sjóinn þar,“ segir hann. „Þetta er mjög meðfærilegur bátur, tveir til tveir og hálfur metri á lengd, og auðvelt fyrir tvo menn að koma honum í sjóinn.“ TÆKNISPJALL: HÖRÐUR JÓHANNSSON TÖLVUNARFRÆÐINGUR Forritar dvergkafbát til að leita að sprengjum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.